Samtíðin - 01.09.1935, Blaðsíða 5
SAMTÍÐIN
September 1935. Nr. 15. 2. árg., 7. hefti.
SAMTÍÐIN vill komast inn á sem flest íslensk heimili í bæjum
og sveitum, og mun hún reyna að bregðast ekki þeim vinsældum, sem
hún hefir þegar hlotið víðsvegar um landið. Vér viljum flytja lesendum
vorum stuttar og gagnorðar greinar, snjallar sögur, dulrænar sagnir,
kveðskap, skrítlur og íhugunarverðar smágreinar. En auk þess viljum
vér reyna að birta yður smám saman yfirlit um ýmislegt af því merk-
asta og besta, sem út kemur af bókum árlega, bæði hér á landi og sr-
lendis. SAMTÍÐIN vill vera boðberi til þeirrar kynslóðar, sem þráir að
lesa s a n n a n fróðleik sér til gagns og skemtunar. Oss er það ljóst,
að margir af lesendum vorum hafa nauman tíma til lestrar. En því kær-
komnari vonum vér, að þeim verði s t u 11 u sögurnar og greinarnar,
sem SAMTÍÐIN flytur þeim, og þeir geta lesið í örstuttum tómstundum.
Til þess að afla nýrra áskrifenda hefir oss dottið í hug sú leið, að
snúa oss beint til lesenda vorra, og munum vér greiða 1 k r ó n u fyrir
hvern þann áskrifanda, sem oss er útvegaður. Viljum vér beina þeirri
spurningu til unglinga nær og fjær, hvort þeir mundu ekki vilja vinna
sér inn nokkrar krónur á þennan hátt. Þeir, sem vilja sinna þessu, þurfa
ekki annað en senda SAMTÍÐINNI (Pósthólf 607, Reykjavík) nöfn og
heimilisfang hinna nýju áskrifenda, sem þeir útvega, og árgjald hvers
þeirra, 5 krónur, að frádreginni 1 krónu á mann, og munum vér þá
tafarlaust senda nýju áskrifendunum tímaritið frá ársbyrjun 1935.
Vér viljum vekja athygli lesenda vorra á forustugrein þessa heft-
is, er nefnist Lokað land. Ber að skoða hana sem framhald af
greinum þeim í fyrri heftum, er ritaðar hafa verið til þess að opna augu
manna fyrir þeirri nauðsyn, að ísland geti veitt erlendum ferðamönn-
um viðtöku. Nú er loks farið að skrifa um þetta stórmál í blöðin.
í þessu hefti segir hirm vinsæli söngvari vor Stefán Guð-
mundsson (Stefano Islandi) frá merkasta áfanganum á lista-
mannsbraut sinni.