Samtíðin - 01.09.1935, Blaðsíða 31
SAMTÍÐIN
29
Tímarnar breytast
Meðal fornþjóðanna voru böð í
hávegum höfð. En þau lögðust
mjög niður með hruni rómverska
ríkisins. Það varð síðar aðeins
skylda að fara í bað kvöldið áð-
ur en menn voru slegnir til ridd-
ara.
Konungar og drotningar voru
hér síst betri en aðrir. í höllum
stórhöfðingja voru engin baðher-
bergi fyr en á 19. öld.
I íslensku er enn varðveitt orð-
ið baðstofa, sem bendir til hrein-
lætis og manndóms íslenskra forn-
manna. Öldum saman hefir þetta
orð verið ávísun á dautt hugtak,
ef svo mætti segja. Orðið baðstofa
hefir varðveist í móðurmáli voru,
þrátt fyrir breytta siði og æpir
nú á oss í hvert skipti, sem það
er nefnt, eins og óskemtileg áminn-
ing um það, að vér stöndum á
lægra menningarstigi um þrifnað
en forfeður vorir aftur í grárri
forneskju. Vonandi verður þetta
orð boðberi frá fornöldinni til hins
unga íslands um það, að láta ekki
staðar numið fyr en baðherbergi
er aftur orðið til á hverju heimili
hér á landi.
Frú Anna: Af hverju þykir þér
mest til Wagners koma af öllum tón-
skáldum ?
Frú Guðrún: Það er vegna þess, að
hans músík heyrist, hvað hátt sem
talað er.
er nærandi og styrkjandi
drykkur, neytið þess
daglega og njótið hinna
styrkjandi áhrifa þess.
Leiðarvísir eftir matreiðslukonu
Helgu Sigurðardóttur, um tilbún-
ing á þessu súkkulaði er prent-
aður á hvern pakka.
Það er
hagkvæmt að
gera kaupin í
Kaupfélagi
Reykjavíkur.