Samtíðin - 01.09.1935, Blaðsíða 30
28
Stærsta kirkja
heimsins
SAMTÍÐIN
Mannkynið hefir jafnan fórnað
miklu fé og kröftum fyrir trú sína.
Um það bera hinar veglegu kirkjur
og musteri víða um heim sýnilegan
vott. Stærsta kirkja heimsins er Pét-
urskirkjan í Rómaborg, og hefir til
byggingar hennar verið varið sem
svarar nálega 220 miljónum króna.
Kirkjan rúmar um 54000 manns, og
stendur hún þar, sem Cajus Caligula
reisti hringleikhús mikið á 1. öld. Það
hringleikhús er frægt, þó að ekki
sé nema vegna þeirra endema, sem
þar gerðust á dögum Nerós keisara í
sambandi við ofsóknir hans gegn
kristna söfnuðinum í Rómaborg. Pét-
urskirkjan stendur sem dýrlegur
bauti á þeim stað, sem píslarvottar
safnaðarins létu lífið hópum saman
fyrir trú sína, og þar, sem háaltari
kirkjunnar stendur, er mælt, að sjálf-
ur Pétur postuli hafi verið kross-
festur.
Til minningar um Pétur postula
lét Konstantín mikli reisa kirkju árið
323 þar, sem nú stendur Péturskirkj-
an. En að 12 árum liðnum var sú
kirkja orðin svo hrörleg, að ákveðið
var að rífa hana og reisa þarna nýja
kirkju. Uppdráttinn að þessari vænt-
anlegu kirkju gerði Bramante, en
Michael Angelo og fleiri endurbættu
hann síðar.
Péturskirkjan er 693 fet á lengd,
434 fet á hæð og tekur yfir 163,182
□ feta svæði.
Þóroddur E. Jónsson.
Hafnarstræti 15, Reykjavík.
Sími 2036.
Kaupir ætí8 hæsta verði sel-
slcinn. — Allskonar vefnaðar-
vörur ætíð fyrirligqjandi í heild-
sölu.
KIRKJURITIÐ
er tímarit, sem á erindi til allra
þeirra lesenda, sem áhuga hafa
fyrir andlegum málum. Það er
gefið út af Prestafélagi íslands,
og ritstjórar eru Sigui'ður P.
Sívertsen og Ásmundur Guð-
mundsson.
í síðasta hefti birtist itarleg frásögn
um fjölmennasta kirkjufund, sem hald-
inn hefir verið á Islandi.
Ritið kemur út 10 sinnum á ári,
er um 27 arkir að stærð og kostar
aðeins kr. 4.00 árgangurinn.
Gerist áskrifendur og pantið rit-
ið hjá síra Helga Hjálmarssyni,
Hringbraut 144, Reykjavík.