Samtíðin - 01.09.1935, Blaðsíða 8
6
SAMTÍÐIN
TIL ÍHUGUNAR
Ef við semjum f járhagsáætlun, verðum við óánægð áður en við
eyðum fjármunum okkar; en að öðrum kosti kemur óánægjan ekki
fyr en eftir á.
I hvert sinn, sem við hopum fyrir örðugleikunum, nálgumst við
það, sem kallað er að fara í hundana.
James L. Halliday.
Hlutverk bókmentanna er ekki í því fólgið, að við séum sjálf að
gutla við að yrkja, heldur í því, að þær ljá okkur til fylgdar vitrustu
andans menn allra alda og allra landa.
Ruskin.
Það er vissulega frekar óskynsamlegt að ráðleggja mönnum að
neyta nokkurs, ef þeir eru veikir og lystarlausir. Engar skepnur leggja
sér neitt til munns, þegar þær eru veikar; það er svo illur að, að jafn-
vel svínin þverneita að éta, þegar þau eru veik.
Mennirnir einir virðast halda, að þeir verði að neyta fæðu til þess
að viðhalda líkamskröftum sínum, hvort sem þeir eru heilbrigðir eða
sjúkir.
Dr. Hay.
Það er mjög eftirtektarvert, hve náið samband er milli gigtar og
armæðu í lífinu. Það er algengt, að gigtveikt fólk geti rakið upphaf
veikinnar til andlegrar vanlíðanar. Kona ein varð t. d. gigtveik, cr
maður hennar misti atvinnu sína og barn hennar varð fyrir því að
kveikja í húsinu, sem fjölskyldan bjó í. Önnur kona varð skyndilega
gigtveik, er dóttir hennar fyrirfór sér.
Gagnvart hundinum sínum er hver maður Napoleon; af því eru
hundar jafnvinsælir og raun er á.
Aldous Huxley.
Því meira sem þú hugsar, því voldugri mun skynsemi þín verða.
George A. Dorsey.