Samtíðin - 01.09.1935, Blaðsíða 26
24
SAMTÍÐIN
fróðleikur um land og þjóð, og er að-
dáunarvert, hve næm eftirtekt höf-
undar hefir verið og hve vel honum
tekst að segja frá því, sem hann er
að lýsa. Er altaf gaman að lesa um-
mæli útlendinga um okkur, og getur
slíkt verið lærdómsríkt, ef gestsaug-
að, sem horfir á okkur, er glögt.
Aage B. Vaslev sendi þessa bók frá
sér í maí 1930, og var henni fyrst og
fremst ætlað að vekja athygli manna
á þeim geysilegu framförum, er þá
höfðu gerst hér á undanförnum ár-
um. Var slíkt vel til fundið í sam-
bandi við Alþingishátíðina. Höfundur
skiptir bókinni í tvo höfuðþætti og
lýsir í þeim fyrri sögu íslands í fám
dráttum, en síðari kaflinn, sem er
þungamiðja bókarinnar, nefnist „Is-
land i Dag“ og er honum skipt í 14
smærri kafla, sem fjalla um alla
helstu þætti menningar okkar, bæði
verklegrar og andlegrar.
Það er hætt við, að lítið hafi borið
á þessum tveim bókum í vitund
manna hér á landi 1930. Þá var at-
hygli flestra bundin við hátíðahöld-
in og alt það umvés, sem þeim fylgdi.
En nú þegar veislukliðurinn er löngu
þagnaður, standa þessar tvær bækur
eftir meðal hinna varanlegu verð-
mæta ársins og bera vott um fram-
takssemi og ræktarsemi hins íslenska
prentara og rithöfundarins frá sam-
bandsþjóð okkar.
Smiðum
húsgögn við allra hæfi
eftir nýjustu tisku. —
Árni Skúlason
Húsgagnaverksmið ja
Mjóstræti 6, Reykjavik
og fallegar tennur prýða. Þetta
er auðvelt að veita sér, með því
að nota stöðugt
Hvífar, hreinar
S. Sk.