Samtíðin - 01.09.1935, Blaðsíða 9
SAMTÍÐIN
7
STEFÁN GUÐMUNDSSON:
Þegar ég söng fyrsta óþeruhlutverk mitt
[Stefán Guðmundsson, hinn ungi óperusöngvari vor, sem undan-
farnar vikur hefir dvalist hér heima á Islandi og áunnið sér fádæma
vinsældir fyrir söng sinn og framkomu í hvivetna, hefir leyft SAM-
TÍÐINNI að birta eftirfarandi frásögn. Hann mun nú á komandi ár-
um bera hróður Islendinga víða um lönd, því að enginn vafi leikur
á því, að hann er meðal fremstu listamanna á sínu sviði. Heill og
hamingja fylgi honum].
I.
Ég söng fyrsta óperuhlutverk
mitt í Firenze á ítalíu árið 1933.
En áður en ég vík að því, þykir
mér rétt að drepa lítillega á söng-
nám mitt, þar sem það var nauð-
synlegur undanfari þess, að ég
réðst í að syngja í óperu. Ég skal
annars vera fáorður um alt þetta.
Ég fór frá íslandi í febrúarmán-
uði 1930 og sigldi beina leið frá
Reykjavík til Genúa. Þar dvaldist
ég síðan í rúma tvo mánuði bæði
til þess að komast niður í ítölsku,
sem ég hafði áður aðeins kynst á
bók, og einnig til þess að venj-
ast háttum ítala. Frá Genúa fór
ég síðan til Mílano, en þangað
var ferð minni heitið; þar ætlaði
ég að læra að syngja.
1 Mílano lenti ég fyrst hjá
dönskum hjónum, er seldu mönn-
um fæði og höfðu auk þess her-
bergi til leigu. Þar frétti ég til
ágæts söngkennara, sem þau hjón-
in höfðu bein kynni af, og ráð-
lögðu þau mér eindregið að leita
tilsagnar hjá honum. Þessi söng-
kennari fór um þær mundir yfir
óperur með einum af frægustu
tenórsöngvurum heimsins, Pertile.
Ég var nú hjá honum nokkurn
tíma, en fór frá honum, af því að
mér virtist, að hann væri fremur
píanóleikari en söngkennari. Alt
var þetta þó í besta samkomu-
lagi, enda benti söngkennari þessi
mér á annan kennara, og fór ég
tafarlaust til hans. Hann var gam-
all óperusöngvari (tenór), kom-
inn á sextugsaldur, og hét Pietro
Zeni. Hjá honum var ég síðan,
meðan hann lifði, en hann andað-
ist nálega ári eftir að ég kom til
hans, og sá ég mjög eftir honum.
Því næst hitti ég að máli ýmsa
söngkennara í Mílano í því skyni
að velja mér þann, sem mér lík-
aði best við, og söng ég í því sam-
bandi fyrir ýmsa þeirra. Fyrir vali
mínu varð maður, sem Caronna
heitir, og hefi ég verið hjá honum