Samtíðin - 01.09.1935, Blaðsíða 29
SAMTÍÐIN
27
Stolin krækiber
[Eftir frásögn frú Ingunnar Jónsdóttur
frá Kornsá.]
1 veislu einni hélt prestur ræðu og
óskaði þess, sjálfsagt þó í gamni, að
sama veður mætti haldast í 5 aldir,
en þennan dag var hlýtt veður og lít-
ils háttar rigning. Þingeyska skáld-
konan, Þura í Garði, var í veislunni,
og orti hún þá þessa vísu:
Ykkur fyndist ævin dimm
andans feyskjunjólar,
ef alltaf rigndi í aldir fimm
og aldrei nyti sólar.
Þura fór í bíl til Húsavíkur. Þegar
þangað kom, spurði hún bílstjórann,
hvað farið kostaði.
— Eitt krækiber, svaraði hann og
kastaði fram þessum hendingum:
Oft hafa svalað sárum þorsta
súr og frosin krækiber.
Þura botnaði vísuna þegar:
Er þér sama hvað þau kosta
og hver hefur tínt þau handa þér?
Ungur maður, sem oft hafði heim-
sótt stúlku, fór lolcs á fund föður
hennar og mælti:
— Það er nú meira svona formsins
vegna að ég tala um þetta við yður,
en ég geri það nú samt til þess að
taka af öll tvímæli.
Faðirinn (öskuvondur): Má ég
spyrja, hver það var, sem sagði, að
samþykki mitt til þessa ráðahags
væri aðeins formsatriði?
Biðillinn: Já, með ánægju. Það var
konan yðar.
Höfum
oftast fyrirliggj-
andi á v e x t i
nýja, þurkaða
og niðursoðna
frá Suðurlönd-
um.
Heildversl. HEKLA.
Sími 2385. Tryggvagötu 28.
Reykjavík.
Það er ekki
hátí ðisdagur
áhverjum degi,
en þeir, sem ganga í föt-
um frá okkur, eru altaf
sparibúnir.
Andrés Andrésson.
Laugaveg 3, Reykjavík.
AV. Saumum nú einnig dömu-
kápur, telpukápur og
drengjaföt.