Samtíðin - 01.06.1937, Blaðsíða 20
16
SAMTÍÐIN
raun og veru brjóstumkennanlegir.
Sunnun þeirra tekst a'ð útvega scr
smávegis hlaupavinnu við kvik-
myndatökur eða þeir krækja sér
öðru hvoru í smáhlutverk. Endir-
inn verður sá, að flestir þeirra
liröklast hurl úr leikstarfinu og
reyna að koma undir sig fótunum
á öðrum vettvangi. Sumir hvrja að
versla, aðrir gerast veitingamenn.
Leikkonurnar taka að læra ein-
hverja iðn, og sumar þeirra giflast.
Þeir, sem lakast eru farnir, lenda í
hinni löngu og dapurlegu röð al-
vinnuleysingjanna, sem lifa á opin-
herum stvrk. Þetta er orðin dapur-
leg saga, en ég hefi orðið að segja
eins og' er. Lesendur Samtíðarinnar
taka vonandi yiljann fvrir verkið.
Nýstárleg
refsiaðferð
I New York liefir verið tekin upp
heldur en ekki nýstárleg refsiaðferð
gegn þeim mönnum, sem gerst hafa
sekir um minni háttar afbrot. Þeir
fá að afplána refsinguna á helgum
dögum. Á rúmhelgum dögum er
þeim liins vegar leyft að stunda
vinnu sína, eins og ekkert liafi í skor-
ist. Verður tæplega lengra komist i
tilhliðrunarsemi við þetta fólk. Há-
markstíminn, sem þessir afhrota-
menn mega afplána þannig, eru tveir
mánuðir, og telja yfirvöldin nægi-
lega refsingu í því fólgna að ræna
menn þannig 60 helgidögum. Þó það
nú væri!
Heimalningurinn drepur á dyr.
LEIÐRÉTTIN G
I greininni Vorhugur, i 1. hefti Sam-
tíSarinnar í ár, stendur (á hls. 27), að
þeir Torfi Hjartarson bæjarfógeti, Björn
SigurSsson i Vigur og Jón II. Fjalldal á
Melgraseyri, séu í skólanefnd Reykjanes-
skólans viS ísafjarSardjúp. Þetta er ekki
rétt, heldur voru menn þessir kosnir i
nefnd af sýslufundi NorSur-ísafjarSar-
sýslu 193C til aS athuga afstöSu sýslunn-
ar til væntanlegs liéraSsskóla. í skóla-
nefnd Reykjanesskólans eru: Jón H.
Fjalldal, síra Þorsteinn Jóhannesson, Páll
Pálsson, SigurSur Pálsson, Halldór Jóns-
son og Ólafur Ólafsson,