Samtíðin - 01.06.1937, Blaðsíða 24
20
SAMTÍÐIN
ég sagði við sjálfa mig: — Hingað
læt ég flytja föður minn, þegar
liann er dáinn.
En maðurinn minn var ekki á-
nægður. Hann var hræddur um, að
hin skjótu sinnaskifti mín væru
vegna áhrifa frá sér og' bað mig
því að ráðgast um það við ein-
hvern gamlan vin föður míns, Iivað
gera skyldi. En ég hafði tekið þá
ófrávíkjanlegu ákvörðun, að láta
brenna lík föður míns. Likbrenslan
kostaði 40 dollara, og við hjónin
ákváðum að stofna sjóð til minn-
ingar um ioður minn, er næmi
þeirri fjárhæð, sem sparaðist við
það að hætta við venjulega jarðar-
för. Þessi sjóður skyldi vera lil
styrktar fátækum stúdenlum, er
stunduðu nám við sama háskóla og
faðir minn hafði endur fyrir löngu
numið við.
Faðir minn andaðist viku síðar.
Mér auðnaðist að taka andláti lians
með ró. Daginn eftir fór fram
kveðjuathöfn yfir líki hans í kap-
ellu fyrnefnds háskóla. A leiðinni
þaðan til bálstofunnar fórum við
framhjá kirkjugarðinum, sem áður
er getið. Ég leit með hryllingi á
hráblauta moldarhaugana og sót-
uga legsteinana, sem þarna bar fvr-
ir augun. Ég hugsaði til þess með
ánægju, að í stað þess að leggja
föður minn i kalda gröf, ætti lík-
ami hans nú að leysast upp i ljósi,
sem væri eins og sólarbirta.
nokkur drög að þjóðarlýsingu
eftir dr. Guðm. Finnbogason
landsbókavörð, 386 bls. Verð 10
kr. ób., 13 kr. ib. (shirt.), 18 kr.
ib. (skinn),
Þetta stórmerka rit um ís-
lendinga og lyndiseinkunn
þeirra, verða allir að eignasl.
Höf. ræðir hér uin uppruna ís-
lendinga, landnámsmennina,
stjórnskipun, lifsskoðun og trú,
dularhneigð íslendinga, málið,
sögurnar, kveðskap, lislir, vís-
indi o. m. l'l. -—• ÖIl er bókin
fjörlega og skemtilega rituð.
Fæst hjá bóksölum
um land alt.
Aðalútsala:
MÍMIR h/f
Bókaverslun, Austurstræti 1,
Reykjavík.