Samtíðin - 01.05.1941, Síða 14

Samtíðin - 01.05.1941, Síða 14
10 SAMTÍÐIN lega tvö lieyri ég klukkur Dómkirkj- unnar hringja. Ósjálfrátt geng ég á hljóðið. Frú Hlaðgerður á það eigin- lega skilið, að ég sýni jarðneskum leifum hennar virðingu. Ég geng að kirkjunni.en því miður kemstégekki inn, því að hún er troðfull af fólki. Ég stend undir austurhlið Alþingis- hússins og bíð átekta. Loks er kirkju- athöfnin um garð gengin. Kjólklædd- ir horgarar hera kistuna út i líkvagn- inn. Síðan er haldið af stað suður í garð, hina öruggu höfn. Ég geng afl- astur og læt lítið á mér hera. Það eru svo margir viðstaddir, sem ná- komnari eru. Likmenn í dökkum fötum hera kistuna að gröfinni. Prest- urinn les bæn og fer með nokkur falleg orð. Hann biður fyrir sál hinn- ar látnu. Það er reyndar óþarfi, að- eins forms-atriði. Svo kastar hann rekunum. Af jörðu ertu komin, að jörðu skaltu verða, af jörðu skaltu aftur upp rísa. Amen. — Söng- flokkur syngur: Allt eins og blómstrið eina. Það er fallegur sálm- ur. Vinir, vandamenn og væntanleg- ir erfingjar ganga að gröfinni, gera krossmark, tauta eitthvað og fara, þvi að lífið bíður eftir þeim. Að lok- um erum við ein eftir, frú Hlaðgerður og ég. Skilnaðarstundin er komin. Ég geng að hinni opnu gröf og kasta minni hinztu kveðju á frúna. Ég hafði ætlað mér að hreyta ónotum ofan í gröf liennar, en þegar til kem- ur, geri ég það ekki. Ég sti-ý'k húfuna af höfði mér, geri krossmark, rélt eins og hinir, og segi: „Eg fyrirgef yður aljt, frú Hlað- gerður. Ég vona, að guð geri það lika, þó hann sé vinur smælingjanna." Ég þéra hana, vegna þess að við höfum aldrei fengið tækifæri til þess að drekka dús. Svo geng ég frá gröf- inni og rölti niður í bæinn. Mér er hálfkalt, því að það er norðannepja. Á leið minni niður Suðurgötuna held égiáfram að hugsa til frú Hlaðgerðar. En nú er ekki laust við, að ég öfundi liana, því að ég veit, að hún þarf ekki að kviða kuldanum framar. ELÍZABETH ARDEN er gervi- nafn þeirrar konu, sem hefur liæstar tekjur allra kvenna í heimin- um. Hún heitir réttu nafni Florence Nightingale Graliam frá Woodhridge i Canada og er rúmlega fimmtug. Genvinafnið tók hún úr skáldskap, sem hún var mjög hrifin af, og staf- ar síðari hluti þess frá Enoch Arden eftir Tennyson lávarð. Fyrir 30 árum fékk Elízabeth Ard- en sér léð 1.200 sterlingspund og stofnsetti snyrtistofu. Árið 1929 voru henni hoðnar 3 milljónir sterlings- punda í þessa stofnun sína, en hún neitaði óhikað því boði. — Dóttir yðar ætlar að giftast mér. — Hvað get ég að því gert? Ekki hef ég beðið yður að vera að lóna gfir lienni á hverju kvöldi. Yður þýðir ekkert að leita huggunar til mín! Afgreiðslan er eftir röð eins og hespa og kengur, svo ?.ð næsta símastöð er sjaldan opin lengur.

x

Samtíðin

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Samtíðin
https://timarit.is/publication/647

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.