Samtíðin - 01.05.1941, Qupperneq 15
SAMTÍÐIN
11
Far, veröld,
þinn veg
Aron Guðbrandsson :
Minni Árnesþings
Við þig, blessaða byggð,
hef ég bundið þá tryggð,
sem er heitari en Heklunnar glóð.
Je.fnt í helkaldri hríð
og um hásumartíð
ert þú, fóstra mín, fögur og góð.
Ollum undraverð sýn
eru leikföngin þín,
bæði Gullfoss og Geysir í senn.
Yzt við útvarðasker
aldan hróður þinn ber,
kveður Ijóð sitt og lag um þig enn.
Fögur mynd þín, sem mér
mikil gersemi er,
var í fyrstu af guðunum gjörð.
Hér á bóndinn sitt bú,
þar sem börnin þín trú
breyta grjótmel í gróandi jörð.
Hér var hámarkið sett:
Hér fann Geitskör þann blett,
þar sem Alþing um aldir var háð.
Þú átt Þingvelli enn,
þar sem göfugir menn
hafa framtíðar frækornum sáð.
*
Hátt um heiðloftin tær
fljúga himninum nær
bæði valur og vígdjarfur örn.
En í blómgaðri byggð,
sem er blágresi skyggð,
drekka lífsveig þinn dalanna börn.
TÓMLÆTI íslendinga gagnvart
tungu og bókmenntum Fæi-
eyinga er gersamlega óafsakanlegt,
enda þjóð vorri bæði til skaða og
skammar. Þá íslendinga má telja á
fingrum sér, sem nokkurn tíma á
ævinni hafahandleikið færeyska bók,
og fáir munu þeir menn vera hér á
Iandi, er kannast við hinn fagra þjóð-
söng Færevinga, hvað þá að þeir liafi
nokkra hugmynd um, hvernig eigi að
hera hann fram!
Það verður jtví að teljast allmerkur
viðhurður, að hér skuli vera nýkomin
út löng skáldsaga eftir færeyskan
höfund, ósvikið færeyskt verk, enda
þótt hókin sé frumsamin á dönsku.
Höfundur bókarinnar, Jörgen-Frantz
Jacobsen, var fæddur í Þórshöfn 29.
nóv. 1900. Hann var bráðgáfaður
maður og var, eins og lög gera ráð
fyrir, settur til mennta í Khöfn. Þar
las liann sagnfræði og frakknesku við
háskólann og lauk embættisprófi i
þeim greinum, þrátt fyrir það þótl
hann hefði 22 ára gamall sýkzt af
banvænni berklaveiki. Jakobsen gerð-
ist að afloknu prófi hlaðamaður við
Politiken og skrifaði þar fjölda at-
hygliverðra greina einkum um mál-
efni Færeyinga. Skáldsöguna Bar-
böru skrifaði hann að mestu leyti á
banasænginni. Það er voldug ástar-
saga, sköpuð úr færeyskri arfsögn,
mótuð af gerhvgli djúpviturs sálfræð-
ings, sem í baráttu við harðan sjúk-