Samtíðin - 01.05.1941, Side 16

Samtíðin - 01.05.1941, Side 16
12 SAMTÍÐIN dóm liafði öðlazt furðu glög'gan skiln- ing á mannlegu eðli. Jafnframt ljirt- ast Færeyjar og lífsbarátta Færeyinga oss hér i skynjun raunsæs útlaga á fjarlægri strönd, en margt er hér með þeim liætti, að það er hvorki bundið við stað né stund,þó að skáld- ið bafi setl það á sviðí draumheimum átlhaga sinna. Höfundur teflir fram fjölda fólks í þessari bók, sem flest- allt er jafn bráðlifandi, en mesta ást- úð leggur hann við hina vergjörnu prestkonu Barböru, sem flestallir karlmenn í Færeyjum snarsnúast í kringum, nauðugir viljugir Þessi bók er skrifuð með bispurs- lej'si þess manns, sem er að kveðja jarðneskt Iíf, fullkomlega óskelfdur við alll það, sem koma kann. í bverl sinn, er ég kem lil Þórshafnar, finnst mér ég sjá spegilmynd af Reykjavík á dögum Jónasar Hallgrimssonar, enda þótt þar sá mörgu ólíku saman að jafna. En yfir öllu finnst mér hvíla ömurleiki skilningslítils, erlends valds, sem hneppir hina innlendu menningu í eins konar rúma bónda- beygju. Margt, sem sagt er frá í Bar- böru, gæti hafa gerzl á íslandi. Og sjálfsagt hefði það kvenfólk hér á landi, sem frægast genst nú að end- emum í viðskiptum sinum við útlendinga, gaman af að bera sjálft sig saman við færeysku stúlkurnar, sem sagt er frá á bls. 85, ef þetta „botnfall“ þjóðfélags vors kynni að vera læst á bókmenntir. Jörgen-Frantz Jacobsen lifði jiað ekki,að Barbara hans yrði gefin út og seldist í skjótri svipan í 20.000 ein- tökum. Hann dó, þegar handritið að sögunni var fullgert. Nú hefur Aðal- steinn Sigmundsson íslenzkað sögu hans á þann liátt, að samboðið er lienni og minningn höfundarins. Kallar þýðandi bókina: Far, veröld, þinn veg (upphaf á sálmi eftirThom- as Kingo), og á það heiti að öllu leyti vel við. Þetta mun vera fyrsta fær- eysk skáldsaga, sem gefin er út á ís- lenzku. Á hið ágæta forlag, Víkings- útgáfan, þakkir skildar fyrir þelta frumkvæði sitt, og ekki síður fyrir það, hve bókin er myndarlega úr garði gerð. S. Sk. ISBIRNIR eru nógu kænir til þess að gera sér ljóst, bve dökkt nefið á þeim er. Þegar ísbjörn ætlar að ráðast á sel úti á klakaauðnum kuldabeltisins, læðist Iiann ofurhægt i áttina lil selsins, og í hvert skipti, sem selurinn opnar augun og svipast um, hylur björninn snjáldrið á sér með bvítum hramminum. Á selurinn þá mjög örðugt með að greina björn- inn frá livítri snjóbreiðunni allt i kringum hann. (New York Times). SAMTÍÐINNI bætast nú daglega nýir áskrifendur hvaðanæva af Iandinu. Fjölgun áskrifenda síðan um áramót er þ r e f a 11 m e i r i en þegar hún hefur verið mest á sama tíma áður. Þannig meta menn það, að ritið hefur ekki hækk- að í verði, þó að útgáfukostnaður hafi hækkað gífurlega og sé síhækkandi. Vér þökkum allan þp.nn fjölda bréfa, sem tjá oss öruggar og sívaxandi vinsældir rits- ins, og munum gera allt til þess að bæta það sem mest. — Sendið oss sem flesta nýja áskrifendur.

x

Samtíðin

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Samtíðin
https://timarit.is/publication/647

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.