Samtíðin - 01.03.1942, Page 30
26
SAMTÍÐIN
ur heimili sitt úr einum stað í annan,
fyrst milli bæja í Fjörðum, þá að
Þverá í Dalsmynni, að Bárðartjörn í
Höfðahverfi, að Mosfelli í Göngu-
skörðum, Fagranesi á Reykjaströnd,
Tjörn á Borgarsandi, Sauðárkróki,
Húsavik, Flatey á Skjálfanda — og
svo hefur hann aðra vegferð þaðan
á gamals aldri og nemur að lokum
staðar i Réykjavík. En sagan, sem
hann segir, gerist ekki nema að litlu
Ieyti þar, sem hann á heima, heldur
að mestu leyti í verunum, þar sem
hann ýmist dregur fisk úr sjó eða
er aðgerðarmaður, og svo á leiðinni
i verin og úr þeim, þegar hann ýmist
gengur á fund bókmenntamannanna
eða situr bekkinn með þeim, sem eru
á ferð og flugi eins og liann. Hvar,
sem hann fer, sér hann og skilur und-
arléga margt, og því er líkast, að
hann sé jafn kunnugur á öllum svið-
um þjóðlífsins. En umfram allt hef-
ur hann undra-glöggt auga fyrir
mönnum, hvar sem hann kemur.
Hann leiðir fram fjölda manna, sem
við sjáum ljóslifandi fyrir okkur, um
leið og við lesum bókina. Lesandan-
um finnst hann verða nákunnugur
foreldrum lians, Sigurði gamla kolla
í Uppibæ, Jóni í Krosshúsum, Bjarna
frá Vestari Krókum, séra Árna Jó-
hannessyni, séra Sigurði á Þöngla-
hakka og maddömu Guðrúnu, Ás-
mundi á Tindriðastöðum, Sæmundi
Sæmundssyni frá Látrum, Kussungs-
staðasystrum, Jónasi í Hróarsdal,
Davíð niðursetningi, Jónasi kokk,
Trausta hreppstjóra í Garði, Ingvari
á Bárðartjörn, Helgu gömlu Steins-
dóttur á Sauðárkróki, Veðramóts-
fólkinu í Skagafirði, Kristjáni kaup-
Pjóðfræg
vörumerki:
Tip Top-þvottaduft
Mána-stangasápa
Paloma — óviðjafnanleg
handsápa.