Samtíðin - 01.12.1949, Side 9

Samtíðin - 01.12.1949, Side 9
SAMTiÐIN Desember 1949_Nr. 158_16. árg., 10. hefti SAMTIÐIN kemur mánaðarlega, nema í janúar og ágúst. Árgjaldið er 20 kr. og greið- ist fyrirfram. Áskrift getur byrjað hvenær sem er. Úrsögn er bundin við áramót. Ritstjóri og útgefandi: Sigurður Skúlason magister, sími 2526, pósthólf 75. Áskriftar- gjöldum veitt móttaka i verzluninni Bækur & ritföng hf., Austurstr. 1, Bókabúð Aust- urbæjar, Laugaveg 34, og á Bræðraborgarstig 29. Prentuð í Félagsprentsmiðjunni. ÍSLENZKT RÍKISLEIKHÚS ^ERULEGUR hluti þeirrar menningar- viðleitni, sem vart hefur orðið hér á landi á þessari öld, hefur miðazt við höf- uðstað landsins og íbúa hans. í Reykjavík eru helztu menntastofnanir þjóðarinnar, og þar eru lífsþægindin mest. En sú þjóð, sem ætlar sér ekki að safna öllum börn- um sínum í höfuðstað sinn (og hverjum dettur slíkt í hug?!), má aldrei gleyma þörfum þess fólks, sem býr utan endi- marka hans. Þegar ég var við upplestrarnám í Stokk- hólmi sumarið 1936, átti ég oft tal við sænska leikara. Þeir sögðu mér frá stofn- un og starfi hins unga sænska ríkisleik- húss, sem gengist fyrir því að senda úr- vals leikflokka víðsvegar um Svíþjóð í því skyni, að fólkinu í smábæjum og sveitum landsins gæfist kostur á að sjá öndvegis- leiksýningar, sem áður hefðu einungis far- ið fram í stærstu bæjum landsins. Áttu þeir naumast nógu sterk aðdáunarorð um starf- semi ríkisleikhússins. Þar er ekki um neina smávægilega menningarstarfsemi að ræða. Nýlega las ég í erlendu blaði, að sænska ríkisleikhúsið héldi árlega 900 leiksýningar víðsvegar um Svíþjóð. Stofn- unin var þá orðin rösklega 15 ára gömul. Ríkið veitir henni Vi milljón króna styrk á ári, og á hverju sumri þjóta 35 geysi- stórir langferðabílar eftir sænsku þjóð- vegunum með úrvalsleikflokka, sem flytja leikhúsmenningu stórbæjanna til fólks- ins víðsvegar í byggðalögum landsins. Nú hafa Norðmenn farið að dæmi Svía í þessum efnum. Norskt ríkisleikhús hef- ur verið stofnað. Það hefur til að byrja með 200.00 kr. ríkisstyrk á ári, eða sama krónafjölda og sænska ríkisleikhúsið hafði í upphafi. Það á enn engan lang- ferðabíl handa leikurum sínum til þess að þjóta í eftir þjóðvegum Noregs, en það á sér hina norsku menningarlegu bjart- sýni, eldskírða í undangengnum þjáning- um hernáms og heimsstyrjaldar, ódrep- andí með öllu. Og forstjóri hefur verið ráðinn hámenntaður maður, Frits von d e r L i p p e, hinn kunni norski leik- listargagnrýnandi, sem á sér ósvikið leik- arablóð í æðum. Þegar norska ríkisleik- húsið varð til sl. ár, komst forstjóri þess að orði eitthvað á þessa leið í blaðavið- tali: „Ég hef fulla ástæðu til þess að vera mjög bjartsýnn, hvað snertir áhuga norsku þjóðarinnar fyrir leiklist. Til að byrja með verður örðugt að uppfylla allar þær óskir og vonir, sem þjóðin elur í brjósti sér á þessu sviði. Við verðum að skipu- leggja .starfsemi ríkisleikhússins í áföng- um. En við Norðmenn erum glaðir yfir því, að áformið um ríkisleikhús er nú loks orðið að veruleika. Það var á miðjum fjórða tug aldarinnar, að Axel Otto Nor- mann leikhússtjóri hreyfði hugmyndinni um ríkisleikhús. En við marga örðugleika hefur verið að etja, áður en lög um þessa stofnun voru loks knúin fram skömmu fyrir sl. jól. Ég held, að ríkisleikhúsið komi á réttum tíma. Fólk er opnara fyrir áhrifum en það var áður. Og leikhúsið hefur aldrei átt sér mikilvægara hlutverk en það að sameina þjóðina einmitt nú. þegar svo margt ber á milli hjá einstakl- ingunum. Leikhúsið verður að stuðla að því að vekja fólkið til sannrar mannúðar og manndóms. Norska ríkisleikhúsið get- ur ekki sent leikflokka um allar byggðir

x

Samtíðin

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Samtíðin
https://timarit.is/publication/647

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.