Samtíðin - 01.12.1949, Qupperneq 11

Samtíðin - 01.12.1949, Qupperneq 11
SAMTÍÐIN 5 Samtai uiJ ÉG BYRJAÐI AÐ TEIKM ÞRIGGJA ÁRA GAMALL HALLDÓR PÉTURSSDN LISTMÁLARA tfALLDÓR PÉTURSSON listmálari ““ er að því leyti mjög hamingju- samur maður, að meðan íslenzku þjóðina skortir tilfinnanlega mál- verkasafn til varðveizlu á myndlist, eru verk hans skoðuð og varðveitt, ekki einungis á fjölda ágætra heimila um gervallt Island, heldur langt út fyrir endimörk landsins. Hann hefur nefnilega valið sér það nytsamlega hlutverk að myndskreyta bækur og tímarit og hefur á skömmum tíma orðið þjóðkunnur maður í þeirri grein. Ég skrapp á dögunum inn í vinnustofu hans á Túngötu 38 og bað hann að segja lesendum „Sam- tíðarinnar“ frá námi sínu og starfi á sviði myndlistarinnar. Byrjaði þriggja ára. „Ég byrjaði að teikna og reyndar einnig að rísla mér við liti, þegar ég var þriggja ára, og síðan hef ég aldrei verið í neinum vafa um, hvað ég ætlaði að gera að lífsstarfi mínu“, segir Halldór. „Hvenær hýrjaðirðu myndlistar- nám?“ „Þegar ég var sex eða sjö ára, var ég einn vetur í teikniskóla, sem Guðmundur Thorsteinsson listmálari hafði hér í bæniun. Satt að segja man ég nú óljóst eftir því námi, enda þótt kennarinn yrði mér ógleymanlegur. Seinna var ég svo í einkatímum hjá Júlíönu Sveinsdóttur listmálara, sam- Jiliða námi minu í Gagnfræðaskóla Reykvíkinga. Ég varð nú reyndar að leggja dráttlistar- og málaranámið að mestu á hilluna, meðan ég var í skóla, en að loknu stúdentsprófi vor- ið 1935 fór ég til Danmerkur og hóf þar nám í auglýsingateikningu við Listiðnaðarskólann (Kunsthánd- værkerskolen). Ég lauk þar prófi í þeirri grein eftir þriggja ára nám.“ Gerist auglýsingateiknari. „Hafði Ágústa, systir þín, ekki lok- ið námi í sömu grein um þessar mundir.“ „Jú, einu ári á undan mér, og að þvi búnu stofnaði hún auglýsinga- teiknistofu hér heima. Ég hóf starf mitt árið 1938 í félagi við hana.“ „1 hverju er áuglýsingateikning fólgin ?“ „Það er mikill siður erlendis að myndskreyta auglýsingar. Hér er minna gert að slíku. Þess vegna beindist starf okkar systkinanna af sjálfu sér að því að teikna einkum bréfhausá og merki fyrir alls konar félög, myndir á flöskumiða og reyndar alls konar vöruumbúðir, en síðast en ekki sízt bókakápur og myndir í bækur.“ Framhaldsnám í Bandaríkjunum. „Leiddist þér augl>rsingateikn- ingin?“ „Mig fýsti að hverfa frá henni og læra meira. Þess vegna réðst ég til námsfarar vestur um haf á gamlárs- dag 1941. Það var skömmu eftir að

x

Samtíðin

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Samtíðin
https://timarit.is/publication/647

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.