Samtíðin - 01.12.1949, Blaðsíða 37
SAMTÍÐIN
31
þ.ir VITRU
S ÖC3ÐU:
IVAN TURGENJEV: „Ég vildi
gefa alla frægð mína og list til þess,
að það fyndist ein kona, sem ekki
léti sér á sama standa, hvort ég kæmi
til miðdegisverðar eða ekki“.
HENRY FAUCONNIER : „Þegar
öllu er á botninn hvolft, er ekkert
hlægilegt nema það eitt, er menn
ganga með þá hugmynd, að þeir séu
hlægilegir“.
OSCAR WILDE: „Sérhver heilag-
ur maður á sína fortíð, og sérhver
syndari á sér framtíð“.
ALDOUS HUXLEY: ..Þögn flyt-
ur oss boðskap hugsunarinnar, eins
og marmarinn flytur oss boðskap
myndhöggvaralistarinnar“.
JOHS. V. JENSEN: „Þar, sem börn
og dýr mætast, er paradís“.
SCHOPENHAUER: „Stundum
höldum við, að okkur langi til fjar-
lægra s t a ð a. En í raun og veru
þráum við þann t í m a, sem við
eyddum þar, er við vorum yngri og
frískari. Ef við förum aftur til
þessara staða, munum við verða von-
svikin“.
ANATOLE FRANCE: „Ef ég
hefði skapað manninn og konuna,
hefði ég látið þau vera í skordýra-
líki. Þá hefðu þau breyzt úr lirfu í
fiðrildi, og úr því hefðu þau ekki
hugsað um annað en ást. Ég mundi
hafa látið mannsævina enda á æsku-
árunum“.
NANCY BOYD: „Frakkar eru svo
kurteisir, að ruddaskapur þeirra er
hæversklegri en kurteisi annarra
þjóða“.
IVÝJAR BÆKUR
Oscar Wilde: Myndin af Dorian Gray.
Skáldsaga. Sig. Einarsson ísl. 200 bls.,
íb. kr. 50.00.
Halldór Kiljan Laxness: Alþýðubókin.
Skáldsaga. 3. útg. 202 bls., íb. kr. 75.00.
Jónas Jónsson: Hendingar 1. bindi. 192
bls., íb. kr. 45.00.
Aldrei gleymist Austurland. Austfirzk ljóð
eftir 73 höfunda. Með myndum af höf-
undum. 368 bls., ób. kr. 36.00, ib. 50.00.
Blaðamannabókin 1949. MeS myndum.
Ritstjóri Vilhj. S. Vilhjálmsson. 304 bls.,
íb. kr. 55.00 og 68.00.
Guðni Jónsson: ísl. sagnaþættir og þjóð-
sögur VIII. hefti 160 bls., ób. kr. 12.50.
Að vestan. Þjóðsögur og sagnir 1. bindi.
Arni Bjarnason safnaði og sá um útgáf-
una. 216 bls., ób. kr. 35.00, íb. 45.00.
Joseph Conrad: Blómaður um borð. Skáld-
saga. Böðvar frá Hnífsdal íslenzkaði.
223 bls., ób. kr. 20.00, íb. kr. 31.00.
Piet Bakker: Mannraunir. Skáldsaga. (III.
bindi Franz Rottu). Vilhj. S. Vilhjálms-
son íslenzkaði. 346 bls., ób. kr. 25.00.
Evelyn Stefánsson: Á heimsenda köldum.
Byggðir innan norðurbaugsins. Með
myndum. Jón Eyþórsson íslenzkaði. 190
bls., ób. kr. 44.00, íb. 56.00.
Geir T. Zoega: Ensk-islenzk orðabók. 3.
útg. 712 bls., ib. kr. 40.00.
Geir T. Zoega: íslenzk-ensk orðabók. 3.
útg. 631 bls., ib. kr. 40.00.
Björn Þórðarson: Alþingi og konungsvald-
ið. Lagasynjanir 1875—1904. 150 bls.,
ób. kr. 22.50.
Sveinbjörn Egilson: Ferðaminningar.
Frásögur frá sjóferðum víða um heim. 2.
útg. aukin. 451 bls., ib. kr. 75.00 og 90.00.
Útvegum allar fáanlegar íslenzkar bæk-
ur. Fjölbreytt úrval erlendra bóka. Send-
um gegn póstkröfu um land allt.
BóLabd Wd og.
Laugavegi 19, Reykjavík.
Sími 5055. Pósthólf 392.
tnenrunffar