Fréttablaðið - 29.12.2009, Blaðsíða 11
ÞRIÐJUDAGUR 29. desember 2009 11
ÖRYGGISMÁL Þrátt fyrir að engin
íslensk fiskiskip hafi verið á sjó
um jólin voru um þrjátíu erlend
skip á siglingu um íslensku lög-
söguna. Samkvæmt varðstjórum
Landhelgisgæslunnar voru þar á
meðal norska gasflutningaskip-
ið Arctic Princess sem er rúm-
lega 121 þúsund brúttótonn og
288 metra langt. Þetta er með
stærri skipum sem siglt hafa hér
við land.
Skipið sigldi fyrir Vestfirði og
var næst landi um þrjátíu sjómíl-
ur norðvestur af Straumnesi.
Skipið er á leið til Cove Point í
Bandaríkjunum með 146 þúsund
rúmmetra af metangasi og er
væntanlegt þangað 4. janúar.
Haft var samband við skipið
og það beðið um að senda Land-
helgisgæslunni flutningsskýrslu
ásamt upplýsingum um farm og
eigin olíubirgðir. Arctic Princ-
ess er sérstaklega hannað til sigl-
inga við Norður-Noreg og á Norð-
ur-Atlantshafi. Lítill eða enginn
hafís var á siglingaleið skipsins
við Vestfirði. - shá
Um þrjátíu erlend skip á siglingu við Ísland yfir jólahátíðina:
Risa gasflutningaskip sigldi vestur fyrir land
ARCTIC PRINCESS Skipið er
litlu styttra en þrír fótbolta
vellir á lengdina. MYND/LHG
LÖGREGLUMÁL Sérsveit Ríkislög-
reglustjóra var kvödd að íbúðar-
húsi í Reykjanesbæ í fyrri-
nótt eftir að maður tilkynnti að
honum hefði verið hótað þar líf-
láti. Húsráðandinn er góðkunn-
ingi lögreglunnar og var vitað að
hann ætti skotvopn. Til að gæta
fyllsta öryggis voru því kallaðir
til vopnaðir sérsveitarmenn.
Maðurinn, sem er ríflega tví-
tugur, var handtekinn á vett-
vangi og veitti enga mótspyrnu.
Innandyra fannst haglabyssa
og óskráður riffill, auk einnar
kannabisplöntu í fullum blóma.
Manninum var sleppt að lokinni
skýrslutöku. - sh
Tilkynnt um hótanir í Keflavík:
Sérsveitin fann
óskráðan riffil
og kannabis
FÉLAGSMÁL Siðareglur Knatt-
spyrnusambands Íslands (KSÍ)
munu taka gildi 1. janúar næst-
komandi.
KSÍ fékk á sig gagnrýni í síð-
asta mánuði vegna máls Pálma
Jónssonar fjármálastjóra, en
hann hafði kort KSÍ undir hönd-
um þegar þrjár milljónir króna
voru teknar út af því á nektarstað
í Sviss árið 2005.
Í siðareglunum eru reglur um
hegðun fulltrúa KSÍ. Þá verður
skipuð siðanefnd sem mun dæma
í málum sem upp koma. Siða-
nefndin verður skipuð þremur
fulltrúum, karli og konu frá KSÍ,
og einum fulltrúa frá ÍSÍ. - þeb
Knattspyrnusamband Íslands:
Siðareglur taka
gildi á nýju ári
KRÓATÍA, AP Önnur umferð forseta-
kosninganna í Króatíu fer fram
10. janúar næstkomandi þar sem
enginn frambjóðenda fékk meira
en helming atkvæða í kosning-
unum sem fram fóru um nýliðna
helgi.
Kosið verður á milli tveggja
efstu manna í nýafstöðnum kosn-
ingum. Í þeim hlaut lagapróf-
essorinn og þingmaðurinn Ivo
Josipovic 32,4 prósent atkvæða og
umdeildur borgarstjóri Zagreb,
Milan Bandic, 14,8 prósent. Fram-
bjóðandi Íhaldsflokksins, sem er
við völd í landinu, heltist úr lest-
inni og er það sagt til marks um
óánægju almennings með hag-
stjórn landsins og ásakanir um
spillingu í stjórnkerfinu.
Báðir frambjóðendur sem eftir
standa eru sagðir líklegir til að
styðja inngöngu landsins í Evr-
ópusambandið sem gæti orðið árið
2011 eða 2012. - óká
IVO JOSIPOVIC Þingmaðurinn, Ivo
Josipovic og Milan Bandic, borgarstjóri í
Zagreb, takast á í annarri umferð kosn-
inganna 10. janúar.
Forsetakosningar í Króatíu:
Enginn fram-
bjóðenda fékk
afgerandi kjör
Prestur komst ekki í messu
Séra Sigríður Óladóttir, prestur á
Hólmavík, þurfti að aflýsa messu í
Árneshreppi yfir jólin. Ástæðan var sú
að ekki var hægt að komast þangað.
Hún messaði þó á fjórum öðrum
stöðum á Ströndum.
VESTURLAND
Afgreiðslutími um hátíðirnar
Þriðjudagur 29. des. kl. 11.00 - 18.00
nema Skeifan, Dalvegur og Skútuvogur kl. 9.00 - 20.00
Miðvikudagur 30. des. kl. 11.00 - 20.00
nema Skeifan, Dalvegur og Skútuvogur kl. 9.00 - 20.00
Fimmtudagur 31. des. kl. 10.00 - 13.00
nema Skeifan, Dalvegur og Skútuvogur kl. 9.00 - 13.00
Föstudagur 1. jan. Lokað
Laugardagur 2. jan. kl. 11.00 - 18.00
nema Reykjanesbær og Selfoss kl. 11.00 - 16.00
Vínbúðirnar á höfuðborgarsvæðinu,
Akureyri, í Reykjanesbæ og á Selfossi.
Nánari upplýsingar um afgreiðslutíma er að finna á vinbudin.is