Fréttablaðið - 29.12.2009, Blaðsíða 22
29. DESEMBER 2009 ÞRIÐJUDAGUR2 ● fréttablaðið ● áramót
Hefð hefur myndast fyrir því
að Hrafn Gunnlaugsson kvik-
myndaleikstjóri bjóði til mikill-
ar fjölskyldubrennu á heimili
sínu í kringum gamlárskvöld.
„Mér finnst alltaf jafn heillandi
að horfa á eld og sjó á hreyfingu á
bak við. Það sést líka nokkuð vel í
kvikmyndunum sem ég hef gert,
að þetta tvennt spilar mjög mikið
saman,“ segir Hrafn Gunnlaugs-
son kvikmyndaleikstjóri. Á þrett-
ándanum heldur Hrafn fjölskyldu-
brennu á heimili sínu á Laugarnes-
tanganum.
Hrafn býður til brennunnar í
nafni Hadúa-fjölskyldunnar, af-
komenda Þórðar Sveinssonar,
afa Hrafns og fyrrum yfirlækn-
is á Kleppi. „Þetta er stór ættliður
og ég á von á um það bil hundrað
manns. Á sínum tíma fékk ég op-
inbert leyfi til að halda brennu í
fjöruborðinu hjá mér, í gömlu eld-
stæði frá því á stríðsárunum, og
með tímanum hefur skapast hefð
fyrir þessu. Brennan er þó aldrei
mjög stór, eiginlega meira eins og
góður varðeldur,“ segir Hrafn.
Hann segir mikið og margt brall-
að þegar stórfjölskyldan hittist.
„Það er dansað í kringum jólatréð,
flutt ávörp, fólk kemur með gaml-
ar ljósmyndir úr ættinni sem liggja
frammi og ýmislegt fleira, en ann-
ars fer þetta auðvitað mikið eftir
veðrinu. Svo býð ég auðvitað upp á
kúbanskt romm, sem er ómissandi
í góðum veislum,“ segir Hrafn og
hlær. „Karakterarnir í ættinni eru
oft mjög sérstæðir. Þetta er mjög
gott tækifæri til að sjá ný andlit í
hópnum, því þeim fjölgar hratt, og
rifja upp öll þessi andlit svo maður
heilsi nú ættingjum sínum á götu.“
Brennan hefur hingað til verið
haldin á milli jóla og nýárs eða á
gamlárskvöld, en Hrafn segist
hafa fært tímasetninguna yfir á
þrettándann vegna þess hve marg-
ir væru yfirleitt uppteknir á þeim
tíma.
„Ég hef líka alltaf brennu á miðju
sumri, því ég hef gaman af þessu.
Það má segja að Hadúa-jólin séu
punkturinn yfir i-ið í jólahaldinu
hjá mér,“ segir Hrafn Gunnlaugs-
son. - kg
Eldur alltaf jafn heillandi
Áramótunum er fagnað víða um
heim og þó sinn sé siður í landi
hverju er ýmislegt sem er sam-
eiginlegt mörgum þjóðum á þess-
um tímamótum. Hér eru nokkrir
áramótasiðir:
Átök eru sett á svið milli lífs og
dauða og hins gamla og hins nýja.
Plöntur og ávaxtatré eru barin með
prikum og vatni er hellt niður til að
hreinsa umhverfið og andann.
Nýja árið getur ekki komið
fyrr en það gamla er farið. Brúða
úr tuskum eða greinum sem á að
tákna dauðann er borin um stræti
og að lokum grafin, brennd eða
henni drekkt.
Áramótabrennurnar sem við
þekkjum gætu átt uppruna sinn í
þessum sið.
Á miðnætti ættu bæði vasar og
magar heimilismanna að vera út-
troðnir til að tryggja það að hung-
ur og fátækt eigi ekki aðgang að
heimilinu á nýja árinu.
Talið var að gamla árið skildi
eftir sig fjölda illra anda og ann-
arra ókinda. Því var ráð að gera
sem mestan hávaða til að hræða
óvættina burt. Í þeim tilgangi var
flugeldum til dæmis skotið á loft
á miðnætti en einnig voru haldn-
ar hávaðasamar veislur sem stóðu
alla nóttina.
Á bálið með gamla árið
Gamla árið brennur.
Hrafn Gunnlaugsson hefur safnað í dágóða brennu sem hann mun kveikja í á þrettándanum. FRÉTTABALDÐIÐ/VALLI
● FJÖLSKYLDUDAGATAL
Fjölskyldudagatalið er upplagt
fyrir önnum kafnar barnmarg-
ar fjölskyld-
ur sem stunda,
utan vinnu og
skóla, alls kyns
áhugamál og
íþróttir. Daga-
talið er búið
sex höfuðreit-
um og getur
hver fjöl-
skyldumeðlimur því átt sinn reit
dag hvern allt árið um kring.
Kolbrún Ösp Guðrúnardóttir
hannaði dagatalið og kom það
til af einskærri nauðsyn enda
rekur hún fimm manna heimili.
Eiginmaður hennar er í vakta-
vinnu og eldri börnin í íþróttum
og átti hún orðið erfitt með að
halda utan um dagskrána hjá
öllum í fjölskyldunni.
Dagatalið er veggdagatal
af stærðinni A3 og hefur hver
mánuður mismunandi útlit í
takt við árstíðina. Reitirnir eru
stórir og er auðvelt að skrifa
inn í þá. Dagatalið má nálgast
á slóðinni www.idagsinsonn.
is og í versluninni A4 en hluti
af söluandvirði þess rennur til
Fjölskylduhjálpar Íslands. - ve
Golfklúbbur Keilis heldur áramótapútt-
mót milli 11 og 16
„Við höfum vanalega verið bæði
með golfmót úti og inni en ákváð-
um að vera með stórt innipúttmót í
ár þar sem snjór er yfir öllu,“ segir
Ólafur Ágústsson, vallarstjóri
golfklúbbsins Keilis. Á gamlárs-
dag stendur klúbburinn fyrir ára-
mótapúttmóti frá 11 til 16 í glæsi-
legri inniaðstöðu í Hafnarfirði.
„Með þessu móti reynum við að
draga til okkar golfara alls stað-
ar að,“ segir Ólafur en mótið er
opið öllum. Keilir hefur staðið
fyrir golfmóti á gamlársdag síð-
ustu fimmtán árin en innipúttmót-
ið verður nú haldið í þriðja sinn.
Ólafur býst við talsverðri aðsókn
kylfinga ef miðað
er við síðustu
ár. „Í fyrra
komu
um 150
manns á
púttmót-
ið og yfir
100 manns á
golfmótið úti,“ segir
hann glaðlega. Hann
segir ekki óalgengt að
golfklúbbar haldi gaml-
ársdagsmót en býst þó við
að flest muni verða blás-
in af vegna
færðar. Þá
er bara um
að gera að
nýta hina
góðu aðstöðu
Keilismanna og
reyna sig í púttinu inn-
andyra.
„Við vonumst til að sjá sem
flesta. Flugeldar og fleira
skemmtilegt verður í verð-
laun og menn geta fengið sér
kaffibolla eða annað, rætt golf
og klárað árið með stæl.“
- sg
Ljúka árinu með átján
holu innipúttmóti
Perlan · Sími 562 0200 · Fax 562 0207 · perlan@perlan.is
Hefst 9. janúar
Tilvalið fyrirárshátíðina!