Fréttablaðið - 29.12.2009, Qupperneq 31
vín&veisla 7
JACOB‘S CREEK SHIRAZ
Framleiðandi: Pernod Ricard Ástralía
Hérað/Svæði: Suður-Ástralía
Þrúgur: Shiraz
Litur: Djúpfjólurautt.
Ilmur: Kirsuber og dökk ber með jurtailmi og kryddi.
Bragð: Þétt brómber og plómur með þægilegri sætu og
flauelsmjúku tanníni.
Ljúffengt vín, meðalfylling og þéttur ávöxtur í frábæru víni
skilar sér í glasið. Mjúkt vín með nettum eikartóni.
TOMMASI ROMEO
Þrúgur: Corvina - Rondinella
Merlot frá Ítalíu
Litur: Rústrauður.
Ilmur: Ávaxtaríkt með kröftugum kirsuberjum og
cappuccino.
Bragð: Vín í góðu jafnvægi, ljúft með sætum
kirsuberjum og súkkulaði í forgrunni.
Með ljúfri angan af cappucino gefa ljúffeng og sæt
kirsuber fögur fyrirheit sem er fylgt eftir með
undirliggjandi súkkulaðitón. Fínlegt og fágað vín í
góðu jafnvægi.
J.P. CHENET CABERNET-SYRAH.
Land: Frakkland
Þrúgur: Cabernet-Syrah.
Litur: Ríflega meðaldjúpur, plómurauður.
Unglegur.
Ilmur: Tæplega meðalopið. Sætt og þroskað.
Kirsuberjasulta, möndlumassi, sólber,
rósapipar og súkkulaði.
Bragð: Meðalbragðmikið og ljúft. Góð sýra og
mjúk tannín. Kirsuber. Dökk ber.
CAMPO VIEJO CRIANZA
Land: Spánn
Hérað/Svæði: Rioja
Þrúgur: Tempranillo 75% Garnacha 20%
Mazuelo 5%
Litur: Ljósrautt.
Ilmur: Kryddaður ilmur af dökkum berjum,
múskat og vanillu.
Bragð: Eikað og kryddað vín með kirsuberjum,
vanillu og rúsínum.
Frábært Crianza frá einu vinsælasta vínræktar-
svæði Spánar. Frábært með tapas og ostum.
TRIO MERLOT - CARMENÉRE -
CABERNET SAUVIGNON
Land: Chile - Framleiðandi: Concha y Toro
Hérað/Svæði: Rapel dalur / Central dalur
Litur: Dimmrauður með fallegum bláma.
Ilmur: Mjög opið og aðlaðandi vín sem leikur
við lyktarskynið.
Bragð: Frábær blanda af þremur þrúgum sem
gefur af sér mikla mýkt, þroskað tannín með
kröftugum endi og löngu eftirbragði.
Magnað vín með kjötréttum af ýmsu tagi.
Kjúklingur og lambakjöt passa mjög vel með
en líka bragðmeira kjöt eins og til dæmis
nautakjöt og villibráð.
MARQUEZ DE ARIENZO RESERVA
Land: Spánn
Framleiðandi: Pernod Ricard Spánn
Hérað/Svæði: Rioja
Þrúgur: Tempranillo
Litur: Glansandi rúbín með eikartón.
Ilmur: Þroskaðir ávextir og fínlegt krydd.
Bragð: Frekar flókið vín sem gefur mikið af sér.
Töluverður pipar, negull og fínleg eik.
Fullkomið með villibráð, til dæmis rjúpu, gæs eða
hreindýri.
FREIXENET CARTA
NEVEDA SEMI SECO
Strá gult með miðlungsstórum
loftbólum, sæt og blómleg
ávaxtaangan sem heldur áfram
í munni. Þægileg sæta með
nægilegri þykkt einkennir
eftirbragðið. Ljómandi að
drekka þetta eitt og sér jafnvel
sem fordrykk. Hentar með
eftirréttum, þá sérstaklega
kökum. Einnig með austur-
lenskum krydduðum mat.
FREIXENET COR-
DON NEGRO BRUT
Ljósgult með fínlegum
loftbólum í glasinu, ferskur
ákafur ávaxtailmur. Létt og
leikandi í munni með
ferskum sýruríkum blæ og
þægilega freyðandi.
Hentar sem fordrykkur þar
sem fersk sýran æsir upp
hungrið. Upplagt að drekka
með fiskréttum.
FREIXENET COR-
DON NEGRO SECO
Ljósgult með fínlegum
loftbólum í glasinu, ferskur
og örlítið sætur ákafur
ávaxtailmur. Þægileg sæta
fyllir muninn ásamt góðum
ávexti og fersku þægilegu
eftirbragði. Góður fordrykkur
fyrir þá sem kjósa ekki of
þurrt eða sýruríkt, hentar
fiski og kjúklingi. Má nota í
sósur „Oriental Style“.
FREIXENET CORDON
ROSADO BRUT
Laxableikt með flottum
loftbólum og fínlegri blóma
angan með fersku bragði og
mikilli fyllingu með löngu
þægilegu eftirbragði.
Hentar bragðmiklum fiski- og
sjávarréttum gjarnan
grilluðum, kjúklingi að sama
skapi. Passar í standandi
móttökur þar sem boðið er
upp á tapas-borð eða
blandaðan pinnamat.
NAUTAKJÖT
MONTES CLASSIC MERLOT
RESERVE - COLCHAGUA CHILE
Sólbakaður berjarauði, lyng, mosi, eik, vanilla. 1.798 kr.HUMAR OG FISKUR
DOMAINE DES MALANDES PETIT CHABLIS
Ungur Chablis sem einkennist af ljósum ávexti og eplum í góðu
jafnvægi. Þessi frábæri Petit Chablis nýtur sín sérstaklega vel
með humri og kalkúni en passar einnig vel með öllu ljósu kjöti.
2.290 kr.
Ljúffengt
með áramótamatnum
Hér eru nokkrar tillögur að víni með áramótamatnum.
KALKÚNN
MONTES CLASSIC CHARDONNAY
RESERVE CURICO
Ljóssítrónugult, meðalfylling, þurrt og ferskt. Sítrus,
epli, vanilla og eik. 1.698 kr.
TURNING LEAF ZINFANDEL - KALÍFORNÍA
Rúbínrautt. Meðalfylling, þurrt og ferskt með miðlungs
tannín. Kirsuber, bláber og krydd. 1.898 kr.
SENORIO DE LOS LLANOS RESERVA -
VALDEPENAS SPÁNN
Kirsuberjarautt, meðalfylling, þurrt og ferskt, miðlungs
tannín. Skógarber, skógarbotn, vanilla og eik.
1.798 kr.
WILLM PINOT GRIS RESERVE
Vínið er bjart með sætum perum og kantalópumelón-
um í nefi ásamt hunangi. Þykkt og feitt í munni með
þægilegum sætum ávexti. Afskaplega vel balanserað
og einfaldlega ljúffengt. Passar með kalkúni og humri.
2.500 kr.
FONSECA BIN 27 FINEST RESERVE - PÚRTVÍN
Ríkt og flauelsmjúkt vín, gómsætt bragð af sólberjum og
kirsuberjum, langt og ljúffengt eftirbragð.
Bin 27 hentar hvort sem fordrykkur eða eftir mat með til dæmis ostum eða súkkulaðieftirréttum. 4.711 kr.
4 FREYÐIVÍN
6 RAUÐVÍN