Fréttablaðið


Fréttablaðið - 29.12.2009, Qupperneq 54

Fréttablaðið - 29.12.2009, Qupperneq 54
34 29. desember 2009 ÞRIÐJUDAGUR 1 6 7 8 10 13 119 12 15 16 18 21 20 17 14 19 2 3 4 5 BESTI BITINN Í BÆNUM VEISTU SVARIÐ Svör við spurningum á bls. 8 1 Benjamín Netanjahú. 2 Selma Björnsdóttir. 3 Þeir voru 317.593. LÁRÉTT 2. ullarband, 6. eftir hádegi, 8. máleining, 9. skammstöfun, 11. sam- anburðart., 12. tólf tylftir, 14. beikon, 16. mun, 17. mánuður, 18. temja, 20. átt, 21. svif. LÓÐRÉTT 1. klöpp, 3. tveir eins, 4. fjölmiðl- ar, 5. starf, 7. spörfuglstegund, 10. eldsneyti, 13. er, 15. ávöxtur, 16. kóf, 19. tvíhljóði. LAUSN LÁRÉTT: 2. lopi, 6. eh, 8. orð, 9. rek, 11. en, 12. gross, 14. flesk, 16. ku, 17. maí, 18. aga, 20. nv, 21. flug. LÓÐRÉTT: 1. berg, 3. oo, 4. pressan, 5. iðn, 7. herfugl, 10. kol, 13. sem, 15. kíví, 16. kaf, 19. au. „Hann kom í afgreiðsluna af því hann var með smá gat á hausnum, Stúlkan þurrkaði það og hann fór inn í sal aftur að æfa. Hann vildi ekki gera neitt úr þessu,“ segir Björn Leifsson, framkvæmdastjóri World Class. Eins og Fréttablaðið greindi frá í gær, þá fékk Vilhjálmur Árni Sveinsson, Villi WRX, gat á haus- inn í World Class í lok nóvember. Villi kenndi viðhaldi tækjanna um og sagðist vera búinn að láta málið í hendur lögfræðings vegna þess að starfsfólkið hafi verið með stæla þegar hann fór fram á bætur. Björn kannast ekki við að Villi hafi kvartað og segir engan á stöðinni kannast við það. „Hann hefur ekki haft samband við mig, né neinn annan hérna. Þaðan af síður ein- hver lögfræðingur frá honum,“ segir Björn. „Við vitum ekki hvaða tæki þetta er. Við könn- umst ekki við að eitthvert tæki hafi verið bilað í sex mánuði. Eina tækið sem þú getur fengið í hausinn er ef þú ert í niðurtogi og færð stöngina [í höfuðið]. Mér finnst líklegt að hann hafi ekki stungið pinnanum nógu vel inn í lóðastakkinn.“ Villi sagði umrætt tæki hafa verið bilað í hálft ár, en Björn vísar því á bug og áréttar að tækjunum í World Class sé vel viðhaldið, enda í stöðugri notkun. „Það er ekki eins og tæki geti verið bilað í sex mán- uði, það er bull,“ segir hann. „Okkar mottó er að halda þessu í lagi. Öðru- vísi fáum við ekki viðskiptavini.“ - afb Villi vildi ekkert gera í málinu KANNAST EKKI VIÐ KVÖRTUN Björn hefur ekki heyrt frá Villa WRX. Íslendingar borguðu 25 milljónir króna í aðgangseyri um jólahelg- ina á aðeins tvær myndir. Annars vegar komu níu þúsund manns á Hollywood-stórmynd James Cameron, Avatar og hins vegar mættu ellefu þúsund manns á íslensku kvikmyndina Bjarnfreð- arson sem byggir á Vaktarseríun- um um þá Georg, Daníel og Ólaf Ragnar. Elstu menn í bíóbransanum á Íslandi muna ekki eftir annarri eins aðsókn um jólahelgi sem stóð aðeins yfir í tvo daga. Rúmlega 27 þúsund bíómiðar voru keyptir en það þýðir rúmlega þrjátíu og fimm milljónir í miðasölu. Hafi hver gestur síðan keypt sér mið- stærð af poppi og kók, en slík- ur dúett kostar að meðaltali 620 krónur, þá eyddi þjóðin rúmlega sextán milljónum í slíkan varning á þessum tveimur dögum. Heild- artalan nálgast því rúmlega 50 milljónir sem þjóðin greiddi fyrir í kvikmyndahúsum landsins á aðeins tveim dögum. Sigurður Victor Chelbat hjá Sambíóunum, sem dreifir Bjarn- freðarsyni, segir þetta vera ótrú- legar tölur. „Með forsýningu og frumsýningu hafa í kring- um fjórtán þúsund manns séð myndina sem er náttúrlega frá- bært,“ útskýrir Sigurður Vict- or en mikil stemning myndaðist fyrir utan miðasölu Sambíóanna og menn reyttu af sér kunnug- lega frasa sjónvarpsþáttanna við fólkið í afgreiðslunni. Sem stend- ur er Mýrin, stórmynd Baltasars Kormáks, tekjuhæsta íslenska myndin síðan mælingar hófust en rúmlega 83 þúsund manns sáu hana fyrir tveimur árum. Sig- urður Victor neitar því ekki að í ljósi þessarar miklu aðsóknar og góðra dóma sem myndin hefur fengið í fjölmiðlum sé ekkert óraunhæft að horfa til mets Mýr- arinnar. „Nei, nei, það þýðir ekk- ert annað.“ Guðmundur Breiðfjörð, mark- aðsstjóri Senu sem hefur stór- myndina Avatar á sinni könnu, segir aðsóknina lyginni líkast. „Á sjö dögum hafa rúmlega þrjá- tíu þúsund manns séð hana og um þessa jólahelgi, sem er jú aðeins tveir dagar, sáu níu þúsund gest- ir Avatar. Sem er auðvitað ótrú- legt,“ segir Guðmundur. GUÐMUNDUR BREIÐFJÖRÐ: ÞJÓÐIN EYDDI MILLJÓNUM Í BÍÓMIÐA ÓTRÚLEG AÐSÓKN Á BJARN- FREÐARSON OG AVATAR Þau Iben Hjejle og Casper Chris- tensen, þekktust hér á landi fyrir leik sinn í Klovn-þáttunum vin- sælu, héldu jólin hátíðleg hér á Íslandi. „Það er alltaf jafn yndis- legt að koma til Íslands og þessi ferð var engin undantekning,“ sagði Casper þegar Fréttablaðið náði tali af honum. Hjónakornin sáust spóka sig um í miðborg Reykjavíkur í gær og komu meðal annars við í versl- uninni KronKron við Vitastíg og kíktu á vöruúrvalið þar. Sam- kvæmt heimildum Fréttablaðsins eiga Casper og Iben danska vini hér á landi og hafa gist í íbúð vina- fólks síns sem er nálægt Klappar- stíg. Þau hafa komið hingað ansi oft og var Iben meðal annars formaður dómnefndar á RIFF-kvikmyndahá- tíðinni fyrr á þessu ári. Casper segir að þau hafi eigin- lega haldið tvenn jól þetta árið. „Hinn 22. desember vorum við með risastór fjölskyldujól heima í Danmörku með börnunum þar sem gjafirnar voru opnaðar og hinn dæmigerði jólamatur reiddur fram. Og þá fengum við hvít jól. Svo komum við hingað tvö 24. desember og vorum hérna yfir hina eiginlegu jólahátíð í ró og næði. Og náðum í skottið á hvítum jólum,“ segir Casper en það ætti ekki að hafa farið fram hjá neinum höfuð- borgarbúa að snjónum hreinlega kyngdi niður í gær. Casper og Iben héldu síðan heim til Danmörku í dag. - fgg Klovn-hjónin héldu jól á Íslandi DÖNSK OG ÍSLENSK JÓL Casper Christensen og Iben Hjele héldu tvenn jól í ár: ein í Danmörku og önnur á Íslandi. MÖGNUÐ BARÁTTA Bjarnfreðarson með Ólaf Ragnar fremstan í flokki átti í harðri baráttu við velsmurða Hollywood-vél James Cameron og kvikmyndar hans, Avatar, um jólahelgina. Alls komu ellefu þúsund á Bjarnfreðarson sem Ragnar Bragason leikstýrir um helg- ina en níu þúsund á Avatar. Þjóðin eyddi rúmlega 35 milljónum í bíó- miða um jólahelgina og elstu menn í íslenska bíóbransanum muna ekki eftir annarri eins aðsókn. „Mér finnst tandoori kjúklingur- inn á veitingastaðnum Aust- ur-Indíafjelaginu alltaf mjög góður.“ Friðrika Hjördís Geirsdóttir sjónvarps- kona. Hinir árlegu Þorláksmessutónleikar Ullarhattanna eru fyrir löngu orðnir fastur liður í jólaundirbúningi Reyk- víkinga. Hefð hefur verið fyrir því að leynigestur stígi á svið með Stefáni Hilmarssyni, Eyjólfi Kristjánssyni og félögum og varð engin undantekn- ing á því í ár. Í þetta sinn varð held- ur óvæntur gestur fyrir valinu, eða Björn Jörundur Friðbjörnsson sem hingað til hefur haldið sig fjarri jólalögum á löngum tónlistarferli sínum. Björn fór á kostum á tónleikunum og flutti gamla Wham!-slagar- ann Last Christmas með miklum tilþrifum og bætti síðan Ragga Bjarna-laginu Líða fer að jólum á þennan nýja afrekalista sinn. Þrautakóngs-þættir Stöðvar 2 með Friðriku Hjördísi í broddi fylk- ingar, Wipeout Ísland, hafa heldur betur slegið í gegn hjá íslensku þjóðinni. Þeir eru nú vinsælasti þátturinn á landinu í aldurshópn- um 12-48 ára. Sem verður að telj- ast nokkuð gott. Útsvar á RÚV held- ur sem fyrr sigurgöngu sinni áfram en þessi spurningaþáttur sveitar- félaganna hefur heldur betur slegið í gegn og er nú vinsælasti þátturinn í aldurshópnum 12-80 samkvæmt áhorfs- mælingu Capacent Gallup. Spaugstofan er auðvitað löglega afsökuð frá þessum aðsóknarlista því hún var jú farin í jólafrí. Hjarta handboltaheimsins tók mik- inn kipp í gær þegar það kvisaðist að einn ástsælasti handboltamaður þjóðarinnar, Logi Geirsson, væri að verða pabbi í fyrsta skipti. Logi og Ingibjörg Elva, unnusta hans, eru víst í skýjunum yfir þessum tíðindum. Logi er auðvitað sonur eins fremsta hand- boltamanns þjóð- arinnar fyrr og síðar, Geirs Hallsteinssonar. Binda menn því vonir við að nýr snillingur líti dagsins ljós 4. júlí 2010. - fgg FRÉTTIR AF FÓLKI Nýtt 4 vikna byrjendanámskeið hefst 4. Janúar. Skráning hafi n í síma 695 8464 / 772 1025 eða á jogastudio.org Verð 14.900 kr. Hot jóga • Hatha jóga • Byrjendanámskeið Meðgöngujóganámskeið Stakur tími 1.500 kr. • Mánaðarkort 10.900 kr. • 3 mánaðakort 23.900 kr. • 6 mánaðakort 36.000 kr. • 10 tíma klippikort 10.000 kr. Meðgöngujóganámskeið 10.500 kr. Innifalið í kortum eru allir opnir tímar ásamt þeirri þjónustu sem boðið er upp á í Veggsport. Stórhöfði 17 (gengið inn um Veggsport) Sími: 695 8464 og 772 1025 www.jogastudio.org Ný og persónuleg jógastöð

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.