Fréttablaðið - 29.12.2009, Síða 56

Fréttablaðið - 29.12.2009, Síða 56
DREIFING: dreifing@posthusid.is EF BLAÐIÐ BERST EKKI: 512 5060 VIÐ SEGJUM FRÉTTIR SMÁAUGLÝSINGASÍMINN OG SKIPTIBORÐ: 512 5000 Mest lesið VISIR.IS Ritstjórn: 512 5313, Fax: 512 5301, ritstjorn@frettabladid.is Auglýsingadeild: auglysingar@frettabladid.is PRENTUN: Ísafoldarprentsmiðja FRÉTTIR AF FÓLKI Jogastudio.org Í björgunarsveitum Slysavarnafélagsins Landsbjargar eru á þriðja þúsund sjálfboðaliða sem leggja fram árlega meira en 650 þúsund vinnustundir. Fólk úr öllum starfsgreinum sem er tilbúið þegar kallið kemur og stendur upp frá vinnu sinni eða fer úr fríi hvenær sem nauðsyn krefur. Þetta fólk leggur fram 1780 klukkustundir að meðaltali á dag á hverju ári. Þennan hóp og landsmenn alla skiptir miklu máli að til taks séu tæki sem geta tekist á við þær erfiðu aðstæður sem upp geta komið í íslenskri náttúru. Með því að kaupa flugeldana af okkur styður þú björgunarsveitirnar – því flugeldasalan heldur okkur gangandi. Aðalbakhjarlar Slysavarnafélagsins Landsbjargar eru: Yfirburðir Fréttablaðsins staðfestir! Fréttablaðið er með 143% meiri lestur en Morgunblaðið. Meðallestur á tölublað, höfuðborgar svæðið, 18 – 49 ára. Könnun Capacent í ágúst 2009 – október 2009. Allt sem þú þarft... MORGUNBLAÐIÐ FRÉTTABLAÐIÐ 71,4% 29,3% Í bíó á Patró Eins og kemur fram á öðrum stað í blaðinu var aðsóknin á íslensku kvikmyndina Bjarnfreðarson með ólíkindum en ellefu þúsund sóttu hana um jólahelgina. Bíóhús úti á landi voru með sýningar og í einu þeirra, nánar tiltekið á Patreksfirði, sat einn aðalleikar- anna og horfði á myndina með bæjarbúum. Þetta var að sjálfsögðu Jörundur Ragnarsson en hann er sonur bæjarstjóra Patreksfjarðar, Ragnars Jörundssonar. Hræringar innan VG Vinstrihreyfingin – grænt framboð þarf víst að fara að leita sér að nýjum framkvæmdastjóra. Drífa Snædal hefur lengi verið í því hlutverki en er nú að hætta og sögð ætla í framhaldsnám. Margir eru nefndir til sögunnar til að fylla skarð Drífu, til dæmis Halla Gunnarsdóttir, sem var aðstoðarmaður Ögmundar Jónassonar meðan hann var heilbrigðisráð- herra. - kóþ / óká 1 Sérsveit kölluð að húsi í Reykjanesbæ 2 Stakk lögregluna af á 185 kílómetra hraða 3 Slökkviliðsmaður hætt kominn þegar báturinn sökk 4 Enginn fréttaritari í Brussel 5 Jón skipaði Árna sem tilnefndi Jón og sig sjálfan í bankastjórn Þristur á leik Nokkuð hefur verið slúðrað um að frú forsætisráðherra ætli að segja af sér um áramót. Ábyrgir fjölmiðl- ar leyfa sér þó ekki að vera með getgátur um svo mikilvægt mál. Því fékk Útvarp Saga talnaspekinginn Hermund Rósinkranz til að rýna í fæðingardag Jóhönnu Sigurðar- dóttur í gær. Hann staðfesti að hún myndi hætta. Jóhanna er nefnilega „þristur“. En þristurinn Jóhanna neitaði þessu nú samt í gærkvöldi.

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.