Samtíðin - 01.11.1961, Síða 17

Samtíðin - 01.11.1961, Síða 17
SAMTÍÐIN Árið 1957 lék Georg í fyrstu kvikmvnd- inni, „Að deyja eins og hetja“. Næst kom hlutverk í Kóreumyndinni, „Heim frá hæðinni". En 1959 vann hann mikinn leiksigur í mynd, sem nefnist á ensku „The Subterraneans“. Georg Peppard er kvæntur og á 5 ára gamlan son og 3ja ára dóttur. Fjölskyld- an hýr i Cliuta Vista, skammt frá San Diego. —- SAGT------------------------------ -------------— ER: að ímyndunarveikum manni líði bezt, þegar eitthvað gengur að honum. . + að piparsveinn grannskoði allar aðstæð- ur, áður en hann vogar sér að stökkva — og stökkvi svo aldrei. ♦ að andartak sé stundin, frá því að græna Ijósið hlikar, þangað til hílstjórinn fvrir aftan þig bvrjar að flauta. ♦ að fjallhá dánartrygging geri menn fá- tæka alla -ævi, en auðuga, þegar þeir sálast. ♦ að snjöllustu matsveinarnir skíri sömu súpuna daglega nýju nafni. „Hvar er mijnclin, sem ég sagði þér að teikna, Siggi minn?“ spurði kennarinn. „Ég sé ekkert á blaðinu lijá þér.“ „Ég hef verið að teikna kú, sem er á heit úti í nátthaga,“ svaraði Siggi. „En lwar er grasið, sem hún á að bíta ?“ „Hún er búin með það.“ „Og lwar er kýrin?“ „Hún er komin inn í einhvern annan nátthaga, af því að hún var búin með allt grasið í þessum." 13 Sumarið 1931 heimsótli óvenjulegur gestur isíenzka skákmenn, en það var Alexander Aljekhín, er þá var heims- meistari í skák. Aljekhín var af rúss- neskum aðalsæltum, en húsettur í París og frakkneskur ríkisborgari. Hann var doktor i lögum og kenndi um skeið við franskan herforingjafe'kóla, en framar öllu átti skákin þennan gáfaða og fjöl- liæfa mann. Aljekhín var 39 ára er hann kom hingað til lands, liann var ]iá tví- mælalaust snjallasti skákmaður heims, enda voru yfirburðir hans yfir íslenzka skákmenn slíkir, að liann tefldi við tíu beztu menn okkar samtímis og hlaut 8Y> vinning. Aljekhín hreif reykvíska. skákmenn mjög með taflmennsku sinni og um málakunnáttu hans sköpuðust þjóðsögur. Hann talaði helztu heimsmál reiprennandi, og þeir, sem með honum ferðuðust hér, töldu hann jafnvel skilja slitur í íslenzku! En Aljekhin virðist einnig liafa kunn- að vel við sig hér, ef dæma má af tafl- mennsku hans, hann tefldi alveg sérstak- lega vel, meðal annars eina afhurða- snjalla skák við Ásmund Ásgeh’sson, sem gaman væri að hirta við tækifæri. Og héðan fór hann beint á öflugt al- þjóðaskákmót i Bled í Júgóslavíu og vann þar einn sinn frægasta sigur. Hef- ur sjaldan sézl annað eins hil milli fyrsta og annars manns á skákmóti, og voru ]ió keppinautar Aljekhins engir aukvisar. Nú eru liðin þrjátíu ár síðan þetta gerðist og enn tefla frægustu meislarar

x

Samtíðin

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Samtíðin
https://timarit.is/publication/647

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.