Samtíðin - 01.11.1961, Page 20
16
SAMTÍÐIN
Síðan þrýsli hún andlitinu að brjósti
luins og sagði með hjartans einlægni:
„Mikið er nú yndislegt að hitta þig
aftur, ástin mín!“
★
BÓKIN UM MUGG
HELGAFELL hefur sent frá sér stærð-
ar hók um ævi og lisl Guðmundar Tlxor-
steinssonar — Muggs — eftir Björn Th.
Björnsson.
Okkur, sem áttum þess kost að kynn-
ast Guðmundi Thorsteinsson, verður
hann ógleymanlegur. Og þeðþekkar eru
endurminningarnar um leíkstjórn hans á
„Andbýlingunum" eftir Hostrup, sem
nokkrir háskólastúdentar sýndu í Iðnó
veturinn 1923. Guðmundiir átti þá aðeins
hálft annað ár ólifað. Vafalaust hefur
hann þá borið dauðann i brjósti sór, en
það vissum við ekki. Við kynntumst að-
eins liámenntuðuin manni, er sýndi okkur
slafróf mikillar listar með þeim hætti,
að við lærðum a. m. k. að meta liána bet-
ur en ella hefði orðið. Hann kenndi þann-
ig, að seinl mun gleymast, en góðvild
hans og persónutöfrar voru frábærir.
Samt var leiklist ekki sérgrein þessa
fjölhæfa manns, heldur mjmdlistin, sem
náði hámarki sinu í þjóðsagnateikning-
urn Iians og helgimýndum ófullgerðrar
altaristöflu. Sú mynd er að því leyti tákn-
ræn, að Guðmundur féll frá á miðjum
aldri, frá fjölda ólej'stra verkefna.
Með samningu þessarar ævisögu hefur
Björn Th. Björnsson unnið afrek. Innsýn
hans i myndsköpun Guðmundar er mjög
glögg. Hanri hefur með mikilli elju viðað
að sér margháttuðum heimildum úr öll-
um áttum, og úr þeim hefur honum
auðnazt að semja bók, sem bæði er
skemmtileg og sönn. Við bókarlok hefur
lesandinn kynnzt einum fjölhæfasta
listamanni, sem islenzka þjóðin liefur
eignazt, hugstæðum persónuleika, góðum
dreng. Bókin er 181 hls. í stóru broli,
prýdd fjölda mynda, m. a. mörgum lit-
myndum eftir málverkum.
Við lestur bókarinnar vaknar umhugs-
un um ýmsa ísl. menn, er enn liggja
óbættir hjá garði. Hvenær eignumst við
t. d. viðhlítandi ævisögu Emils Thorodd-
sens ?
HEIL8A,
VINÁTTA,
Á8TRÍKI
HAMINGJAN er á næstu grösum við
okkur. Ilún er alls ekkert fágæti, sem
ætlað er útvöldum. llún felst ekki í sjald-
gæfum gáfum, miklum lærdómi, sér-
stöku hugviti né valdi yfir öðrum. Ekk-
ert af þessu gerir fólk hamingjusamt.
Hamingjan er í þvi fólgin að njóta
góðrar heilsu, vináttu manna og ástrík-
is á heimili sínu. Hún birtist okkur í
rödd saklauss barns og skini sólar. Hún
felst í þeirri blessun, sem flestir menn
geta öðlazt, en alls ekki einhverjir fáir
útvaldir.
Heill og hamingja eru náðargjafir, sem
Guð hefur stráð við götu sérhvers manns.
í NEW YOBK, eða nánara tiltekið á
Manhattan, er vonlaust að reisa annað
en háhýsi nú orðið. Þar er því hætt að
selja lóðir, en i stað þess selja menn loft
fyrir skýjakljúfa upp af lóðunum. Þann-
ig voru 8.400 fermetrar af lofti nýlega
seldir á 1.065.000 dollara. Þar álti að
reisa 27 liæða ihúðarhús á 15 metra há-
um súlum, yfir 16 akreina breiðum bíl-
vegi.