Samtíðin - 01.11.1961, Qupperneq 23

Samtíðin - 01.11.1961, Qupperneq 23
SAMTÍÐIN 19 „EN HVAÐ þetta er fallegur fugl!“ sagði Nonni litli við mömmu sína, þegar hún kom með páfagaukinn. „Já, og liann grætur aldrei,“ sagði mamma hans. „Það er nú bara af því, að honum er aldrei þvegið,“ svaraði barnið. HANDLANGARI stakkst á höfuðið of- an af háum vinnupalli og lenti i stórri sandhrúgu. Fólk dreif að, og maður spurði: „Hvað er að?“ „Það veit ég ekki,“ svaraði handlang- arinn, „ég var að koma.“ ALKUNNUR SYNDASELUR dó og hélt rakleitt til himnaríkis. Á leiðinni þangað var hann að hugsa um, hvað hann liefði nú gert gott á lífsleiðinni, en mundi þá ekki eftir öðru en því, að einu sinni hafði hann keypt dagblað af krókloppinni, gamalli konu í kalsarigningu, rétt lienni fimmkall og sagt henni að eiga afgang- inn, af því að hún gat ekki skipt og hann var sjálfur að missa af strætisvagni. Þegar maðurinn kom að gullna hlið- inu, kom Sankti Pétur út með engil við hlið sér. Gesturinn var spurður, hvað hann hefði gert, sem réttlætt gæti inn- göngu hans í sæluvistina. Hann tilfærði fyrrnefnt örlæti sitt. Þá sagði postulinn við engilinn: „Góða gefðu honum þessar tvær krón- ur lil baka og segðu honum svo að fara beint til helvítis!“ Vitni fyrir rélli bar svo óðan á, að rétt- arritarinn var alveg að niðurlotum kom- inn að bóka bununa úr því. Allt í einu sneri vitnið sér sprengmótt að ritaranum og sagði: „Hamizt \)ér ekki svona voðalega við að skrifa, maður. Ég er alveg að springa á })ví að hafa við gður.“ Ný gerS AUTO-LITE rafkerlanna þýðir betri ræsingu og jafnari gang vélannnar. Þ. Jónsson & Co., Brautarholti 6. Símar 19215 — 15362.

x

Samtíðin

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Samtíðin
https://timarit.is/publication/647

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.