Samtíðin - 01.11.1961, Qupperneq 33
SAMTÍÐIN
29
ÚR EINU -
BURT LANCASTER
hóf göngu sína sem fim-
leikamaður í liringleik-
húsi (circus). í dag er
hann einn mesli hátekju-
leikari í Ilollywood og
forstjóri kvikmynda-
tökufélags. Hann fæddist i New York 2.
nóv. 1913 og er kvæntur Normu Ander-
son. Eiga þau hóp barna. Burt er ágæt-
ur leikari. Eitt af nýjustu leikafrekum
lians er hlutverk Elmer Gantrys í kvik-
mynd, sem nýlega var tekin eftir sam-
nefndri skáldsögu Sinclair Lewis.
IIÁSKÓLINN í Exeter í Englandi
rausnaðist nýlega við að gera glæpa-
sagnahöfundinn frú Agötliu Christie að
lieiðursdoktor fvrir ritstörf. Bókmennta-
söguprófessornum, þeim fína manni, sem
látinn var halda ræðu við þctla tækifæri,
dámaði víst ekki að ritstörfum frúarinn-
ar, því að ásjóna hans var þrungin vand-
lætingar- og mæðusvip, meðan hann var
að tala. Óviljandi gaf hann þessar at-
hygliverðu upplýsingar: Frú Christie hef-
Ur varið 41 ári ævinnar til að skrifa 65
afbrotasögur og 12 leikrit. Þessi rit hafa
verið prentuð í samtals 60 milljónum
eintaka.
FRANSKT tímarit gerði nýlega þá fyr-
irspurn til kvenlesenda sinna, hvernig
þeir vildu, að eiginmenn þeirra væru.
Flestar konurnar, sem svöruðu fyrir-
spurninni, gerðu þá kröfu, að eiginmenn
þeirra drykkju ekki og væru stundvísir.
Auk þess átlu þeir að kunna að búa til
ttiat, þvo upp og kunna að meta visllegt
heimili.
AUGLYST var vegleg staða i stjórnar-
ráði í Washington. Tvir mjög liæfir
menn úr ráðinu sóttu um hana. Annar
þeirra varð fyrir valinu. En þar sem
hinn maðurinn var talinn nákvæmlega
jafnhæfur, fékk hann í sárabætur ókeyp-
is hílstæði utan við stjórnarráðið. Mað-
urinn var hinn ánægðasti og kvaðst
mundu græða meira á þessu heldur en
þótt hann liefði verið hækkaður í sessi.
MARGIR þekkja umferðina í London.
En ekki er víst, að þeir viti, að daglega
ferðast þar 7 milljónir manna í strætis-
vögnum og 3 milljónir með neðanjarð-
arlestunum. Tapið á þeim síðarnefndu
er greitt með ágóðanum af þeiin fyrr-
nefndu.
60.000 kirkjur hafa verið reistar í
Bandaríkjunum seinustu 20 árin. Nú eru
þar samtals 310.000 kii’kjur.
i
BANDARÍSKAR húsmæður gegna
mikilsverðu bílstjórastarfi. Á morgnana
aka þær mönnum sínum til járnhrautar-
stöðvanna, síðan hörnunum í skólana,
og að því loknu fara þær í bílum til að
kaupa heimilum sínum lífsnauðsynjar.
Síðdegis sækja þær menn sína og hörn
í bíl.
GREGORY PECK segir, að yndislegt
sé að vera í Kaliforníu — ef maður sé
appelsína!
HÁRPRÚÐIR menn hafa mjög mis-
mörg hár á höfðinu, rauðhærðir þetta
100.000, en dökkhærðir allt upp í 250.000
að sögn sérfræðinga.
- í ANNAÐ