Samtíðin - 01.11.1961, Qupperneq 35

Samtíðin - 01.11.1961, Qupperneq 35
SAMTÍÐIN 31 ÞEIR.VITRU öö9 Éu: SIGURÐUR NORDAL: „I Eddukvæð- unum er ekkert láglendi. Þar sem þau láta minnst yfir sér, eru þau háslétta. Þar sem andagift skáldanna lyftir þeim hæst, ber hvíta tinda þeirra við himin. Aldrei hefur íslenzk tunga að tign og fegurð komizt nær því að vera tungumál guð- anna en í frábærustu erindum þessara kvæða. Hverjum Islendingi, sem kynnist þeim, hlýtur að hitna um hjartarætur af þakklátssemi við kynslóðirnar, sem með ræktarsemi sinni við tunguna gerðu hon- um kleift að Iesa þessi fornu kvapði á móðurmáli sínu. Hvílíkur hégómi er það ekki fyrir aðrar þjóðir að eigna sér Eddu- kvæðin og vera síðan að lesa þau eins og torvelda ,texta‘ á erlendri tungu eða í þýð- ingum, sem aldrei geta orðið nema dauft endurskin af ljóma frumkvæðanna!“ VILHELM MOBERG: „Orðskviðurinn er stýtzta tjáning lengstu lífsreynslunn- ar!“ ARTHUR MILLER: „Það fyrsta, sem nýfætt barn verður að læra nú á tímum, er að forðast öskuna úr sígarettu móður sinnar.“ WILLIAM FAULKNER: „Margir menn láta sem þeir séu heimskir til að breiða yfir, að þeir eru það í raun og veru.“ McSPARRAN: „Til allrar óhamingju hafa í okkar landi verið margir gagn- rýnendur og mörg hungursneyð, en aldrei er þess getið, að gagnrýnendurnir hafi horfallið.“ N. BUTLER: „Ég skipti mannkyninu í þrjá flokka: þá fáu, sem láta hlutina ger- ast, þá mörgu, sem horfa á þá gerast, og allan þann aragrúa, sem eng-a hugmynd hefur um, hvað er að gerast.“ Thjjar bœkur ^ Árni Óla: Skuggsjá Reykjavíkur (Sögukaflar). Með myndum. 344 bls., íb. kr. 248.00. Magnús G. Jónsson: Spænska (Málabækur ísa- foldar) 128 bls., íb. kr. 58.00. Magnús G. Jónsson: Franska (Málabækur ísa- foldar) 142 bls., íb. kr. 58.00. Magnús G. Jónsson: ítalska (Málabækur ísa- foldar) 124 bls., íb. kr. 58.00. Aukning hæðar og fegrun vaxtarlags. Æfinga- kerfi upprunniS í Indlandi. Bjarni Sveinsson þýddi. 19 bls., ób. kr. 25.00. Stefán Einarsson: íslenzk bókmenntasaga 874 —1960. Bókmenntasaga, sem tekur til með- ferðar allt tímabilið frá landnámslíð til vorra daga. 519 bls., ób. kr. 300.00, ib. 375.00. Sigurbergur Árnason: Kennslubók í bókfærslu. Verzlunar- og iðnbókhald 4. útg. 157 bls., ób. kr. 55.00. Guðrún frá Lundi: Stýfðar fjaðrir. Skáldsaga. 240 bls., íb. kr. 145.00. Gunnar Dal: Tveir heimar. Indversk heimspeki. Úr sögu heimspekinnar. Önnur bók. 61 bls., ób. kr. 35.00. Sigurður Sveinbjörnsson: Á svölu hausti. Ljóð. 103 bls., ób. kr. 70.00, íb. 90.00. Benjamín Sigvaldason: Sagnaþættir III. bindi. 255 bls., ób. kr. 100.00. Björn Thorsteinsson and Thorsteinn Josepsson: Thingvellir. Birthplace of Nation. Pictures and colour pictures. 75 bls., íb. kr. 150.00. Agatha Christie: Fjórar sakamálasögur. 88 bls., ób. kr. 25.00. Theresa Charles: Milli tveggjá elda. Skáldsaga. Andrés Kristjánsson þýddi. 239 bls., íb. kr. 145.00. Jónas Þorbergsson: Ævisaga Sigurðar Sig- urðssonar fró Draflastöðum. Með myndum. 352 bls., íb. kr. 225.00 og 280.00. Útvegum allar fáanlegar bækur. Kaupið bæk- urnar og ritföngin þar, sem úrvalið er mest. Sendum gegn póstkröfu um land allt. BÓKAVERZLIJIM ÍSAFOLDARPREIMTSMIÐJU H.F. Austurstræti 8. Reykjavík. Sími 1-45-27.

x

Samtíðin

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Samtíðin
https://timarit.is/publication/647

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.