Fréttablaðið - 31.05.2010, Qupperneq 40
24 31. maí 2010 MÁNUDAGUR
SÍMI 564 0000
16
14
16
L
12
12
L
L
SÍMI 462 3500
16
12
L
L
BROOKLYN´S FINEST kl. 8 - 10.30
ROBIN HOOD kl. 8 - 10.30
SKÓGARDÝRIÐ HÚGÓ 3 kl. 6
THE SPY NEXT DOOR kl. 6
SÍMI 530 1919
14
10
16
12
YOUTH IN REVOLT kl. 5.50 - 8 - 10.10
DATE NIGHT kl. 6 - 8 - 10
UN PROPHÉTE kl. 6 - 9
IMAGINARIUM OF DR. P.... kl. 6 - 9
SÍMI 551 9000
L
16
12
L
CENTURION kl. 5.45 - 8 - 10.10
YOUTH IN REVOLT kl. 3.40 - 5.50 - 8 - 10.10
SNABBA CASH kl. 5.30 - 8 - 10.30
SKÓGARDÝRIÐ HÚGÓ 3 kl. 4
ROBIN HOOD kl. 5 - 10.20
ROBIN HOOD LÚXUS kl. 5 - 8
THE BACKUP PLAN kl. 8
THE SPY NEXT DOOR kl. 3.40
NÝTT Í BÍÓ!
OCEANS kl. 6 - 8 - 10
SNABBA CASH kl. 5.30 - 8 - 10.30
ROBIN HOOD kl. 6 - 9
THE BACKUP PLAN kl. 5.40 - 8 - 10.20
Ó.H.T - Rás 2
Ó.H.T - Rás 2
FRÁBÆR GAMANMYND
MEÐ MICHAEL CERA ÚR JUNO OG SUPERBAD
ÞEGAR HANN KYNNIST DRAUMASTÚLKUNNI
ER MIKIÐ Á SIG LAGT TIL AÐ MISSA
SVEINDÓMINN!
ÁLFABAKKA KRINGLUNNI
AKUREYRI
SELFOSSI
12
12
12
12
14
14
10 10
10
10
L
L
L
L
L
L
Gísli Örn Garðarsson er mættur í
sinni fyrstu Hollywood mynd
MILEY CYRUS LIAM HEMSWORTH OG GREG KINNEAR
„THE NOTEBOOK”
FRÁ FÖFUNDUM
enterta inment weekly
PRINCE OF PERSIA : SANDS OF TIME kl. 8 - 10:30
LAST SONG kl. 8
IRON MAN 2 kl. 10:30
PRINCE OF PERSIA kl. 5:30D - 8D - 8:30 - 10:30D
PRINCE OF PERSIA kl. 5:30 - 8 - 10:30
THE LAST SONG kl. 5:40 - 8 - 10:30
ROBIN HOOD kl. 10:30
IRON MAN 2 kl. 5:20 - 8 - 10:40
COPS OUT kl. 8
KICK ASS kl. 10:50
AÐ TEMJA DREKANN SINN M/ ísl. Tali kl. 6
PRINCE OF PERSIA kl. 5:30D - 8D - 9:50-10:30D
THE LAST SONG kl. 5:40 - 8 - 10:20
STUTTMYNDADAGAR Í KRINGLUNNI 2010 kl. 6
PRINCE OF PERSIA kl. 8 - 10:30
BACK UP PLAN kl. 8
ROBIN HOOD kl. 10:10
- bara lúxus
Sími: 553 2075
ROBIN HOOD 4, 7 og 10 (POWER) 12
CENTURION 6, 8 og 10.30 16
BROOKLYN´S FINEST 8 16
HUGO 3 4 L
NANNY MCPHEE & THE BIG BANG 5 L
Þ.Þ. -FBL
T.V. -Kvikmyndir.is
Ó.H.T. -Rás 2 S.V. -MBL
POWERSÝNING
KL. 10
Borghildur Gunnarsdóttir
hannar flíkur og fylgihluti
undir heitinu Milla Snorra-
son, flíkurnar minna eilítið
á litríkan ömmuklæðnað en
þó í nýjum og hátískulegri
búningi.
Borghildur Gunnarsdóttir útskrif-
aðist úr fatahönnunardeild Lista-
háskóla Íslands í fyrravor og var
það útskriftarlína hennar sem vakti
sérstaka athygli tískuáhugamanna.
„Ég skoðaði mikið gömul sníðablöð
frá fimmta áratugnum þegar ég
var að hanna útskriftarlínuna og
þess vegna virka flíkurnar svolít-
ið ömmulegar. Reyndar hef ég voða
gaman af þessum ömmustíl sjálf og
fannst allt í lagi að hann fengi að
skína í gegn,“ útskýrir Borghild-
ur. Samhliða útskriftarverkefninu
sótti hún námskeið í gerð fylgihluta
og ákvað að tvinna því inn í línuna
meðal annars í formi hnappa og
axlapúða.
Borghildur er einn þeirra ung-
hönnuða sem tekið hafa þátt í PopUp
markaðnum sem skotið hefur upp
kollinum víða undanfarið ár. Þar
hefur hún selt viðarhálsmen sem
eru í laginu eins og sjóngleraugu og
fallega háa sokka. Aðspurð segist
hún ekki hafa fjármagn til að fram-
leiða útskriftarlínuna skemmtilegu
að svo stöddu en stefnir á að hanna
nýja línu bráðlega sem ódýrari væri
að framleiða. „Ég er í fullri vinnu
á daginn og þá getur verið erfitt að
finna tíma til þess að setjast niður
og hanna heila fatalínu, en ég er
alltaf að hanna eitthvað í hausnum
á mér,“ segir hún og hlær. Spurð út
í nafnið Milla Snorrason segir hún
móðursystur afa síns hafa heitið
þessu nafni. „Mér þótti mjög vænt
um hana enda var hún mikill töff-
ari. Hún var með fjólublátt hár og
fannst ómögulegt að vera ekki með
ættarnafn og tók þess vegna upp
eftirnafn eiginmanns síns. Þegar
ég var að velja nafn á línuna mína
vildi ég nafn sem hefði einhverja
merkingu fyrir mig og þess vegna
varð þetta nafn fyrir valinu.“ segir
hún að lokum. Hönnun Borghildar
má skoða á Facebook síðu Millu
Snorrason og þar er einnig hægt að
sérpanta háa sokka frá henni.
sara@frettabladid.is
ÖMMULEGAR TÍSKUFLÍKUR
Stórleikarinn Dennis Hopper lést á heimili sínu í Kali-
forníu á laugardag, 74 ára að aldri. Banamein hans var
krabbamein í blöðruhálskirtli. Hopper var umkringdur
fjölskyldu og vinum á dánarbeðinum. Hann hafði bar-
ist við meinið síðan í september í fyrra og hafði það
náð að breiðast um líkama hans.
Ferill Dennis Hopper spannaði fimm áratugi. Hann
hófst á sjötta áratugnum með hlutverki í Rebel Without
a Cause á móti James Dean. Á sjöunda og áttunda ára-
tugnum blómstraði Hopper í listrænum kvikmyndum
og hann varð fljótt stórt nafn þegar tímabil stórmynd-
anna í Hollywood gekk í garð. Þá var ekki óalgengt
að honum væri falið hlutverk vonda kallsins. Alls lék
Hopper í yfir hundrað myndum á ferlinum. Þær þekkt-
ustu eru án efa Easy Rider frá 1969 sem hann leik-
stýrði einnig, Apocalypse Now og Blue Velvet.
Hopper hafði það orð á sér í Hollywood að ómögu-
legt væri að vinna með honum. Svipað virðist hafa
verið uppi á teningnum í einkalífinu því hann kvæntist
fimm sinnum og eignaðist fjögur börn. Annað hjóna-
band hans, með söngkonunni Michelle Phillips úr The
Mamas and the Papas, entist bara í átta daga árið 1970.
Um það sagði Hopper eitt sinn: „Sjö af þessum dögum
voru fínir, sá áttundi var slæmur.“ Hjónaerjur fylgdu
Hopper fram á síðasta dag því hann stóð í skilnaði við
eiginkonuna Victoriu Duffy. Hann var svo ákveðinn í
að klára skilnaðinn að hann hafði meðal annars beðið
um nálgunarbann á eiginkonuna á dánarbeði sínum.
Miklar sögur fóru af drykkju Hoppers og eiturlyfja-
neyslu. Hann játaði eitt sinn að hafa notað kókaín til að
draga úr áhrifum áfengis, til þess eins að hann gæti í
kjölfarið drukkið meira. Árið 1984 var Hopper lagður
inn á geðdeild eftir að hafa fengið alvarlegar ofskynj-
anir eftir neyslu sína.
Goðsögnin Hopper er látinn
MEISTARI KVEÐUR Dennis Hopper lést á laugardag, 74 ára að
aldri. NORDICPHOTOS/AFP
Hljómsveitin Klaxons lauk nýlega
við aðra plötu sína og er nú farin
í tónleikaferð um Bretlandseyj-
ar. Nýja platan hefur hlotið nafn-
ið Touching The Void en hún fylgir
hinni frábæru Myths of the Near
Future sem kom út árið 2007 og
vann Mercury-verðlaunin eftir-
sóttu.
Hljómsveitin skellti nýlega laginu
Flashover á netið, en það var eitt
af 14 lögum sem hljómsveitin lék á
tónleikum í vikunni - þeim fyrstu í
langan tíma. Söngvarinn og hljóm-
borðsleikarinn James Righton var
ánægður með tónleikana og sagði í
viðtali við NME að þeir væru nýtt
upphaf. „Við erum klárlega að hefja
nýjan kafla,“ sagði hann.
Óvíst er hvenær nýja platan
kemur út, en talið er að það verði
á næstunni vegna þess að hljóm-
sveitin er búin að bóka tónleika-
ferð í sumar.
Klaxons snýr aftur
KOMNIR AFTUR Klaxons sendir frá sér
nýja plötu á næstunni.
SKEMMTILEGUR HÖNNUÐUR Borghildur Gunnarsdóttir hannar undir nafninu Milla Snorrason. Hönnun hennar hefur vakið mikla
athygli tískuspekúlanta. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI
MILLA SNORRASON Hér má sjá kápu
úr útskriftarlínu Borghildar. Sokkana er
hægt að sérpanta hjá henni í gegnum
Facebook.