Samtíðin - 01.02.1971, Blaðsíða 17
SAMTÍÐIN
13
með smánarlega vangoldnu striti í einu
gagnauðugasta þjóðfélagi veraldar.
Ætla má, að bók skáldkonunnar við
skolpfötuna verði brátt þýdd a. m. k. á
önnur Norðurlandamál.
FLUGVÉLAR HANDA ÖLLUM
ÞJÓÐVERJAR spá því, að þegar bíla-
mergðin verði innan skamms orðin þvílík á
flestum ökuleiðum, að þar lendi allt í öng-
þveiti, muni verða horfið að því ráði að
smíða litlar einkaflugvélar, farartæki fyrir
sitt leyti eins og fólksbílana.
Þýzkir kunnáttumenn spá því, að á þess-
um nýbyrjaða áratug muni einkaflug verða
ámóta algengt og bílaakstur. Þeir segja, að
það sé einna helzt kostnaðurinn við það, sem
vaxi mönnum í augum, en ástæðulaust sé að
setja hann fyrir sig, því að gerður hafi verið
uppdráttur að fólksflugvél, sem muni ekki
verða dýrari en 2 bílar. Verksmiðjan Die
Sportavia-Putzer-Werke í Eifel hefur þegar
smíðað tvær gerðir smáflugvéla, aðra með
einu sæti og 39 hestafla vél fyrir 26.500 mörk,
hina tveggja sæta með 68 hestafla vél fyrir
37.000 mörk. Báðar eru vélar þessar af svif-
flugugerð og fljúga með 180 km hraða á
klst.
Sérfræðingamir höfðu á orði eftir reynslu-
flug þessara véla, að þegar farið yrði að
smíða þær í stórum stíl, myndi verð þeirra
lækka það mikið, að hver maður myndi þá
geta eignazt flugvél af þessari gerð engu
síður en bíl að undanförnu.
Það vekur furðu, að hinir þýzku sérfræð-
mgar skuli ekki minnast einu orði á hið mikla
umferðaröngþveiti, sem hlýtur að skapast í
lofti við tilkomu fjölda flugvéla af þessari
nýju gerð. Er þó lítill vafi á, að það verður
stórum hættulegra en bílamergðin á ökuleið-
unum. Okkur er vel kunnugt um, að venju-
legar farþegaflugvélar verða einatt að fara
funga króka vegna mikillar umferðar á bein-
nstu flugleiðum milli stórborga Evrópu.
FRAMKÖLLUN - KÓPÍERING
Awt'Metjluhih
Laugavegi 55, Reykjavík. Sími 22718
BOTNLANGINN ER NAUÐSYNLEGUR
SÚ SKOÐUN hefur lengi verið ríkjandi,
að botnlangi mannsins væri með öllu óþarft
líffæri. Nú hafa þýzkir læknar hins vegar
komizt að raun um, að svo er ekki. Þeir full-
yrða, að hlutverk langans sé að því leyti
áþekkt hlutverki vissra kirtla, að hann verji
líkamann fyrir innrás sýkla, en einnig geti
hann varið fólk fyrir geislavirkni. Sé þetta
rétt, er hér ekki um smávægilega viðurkenn-
ingu á langanum að ræða.
UNDRABARN — EÐA HVAÐ?
SUÐUR í Múnchen er telpa á 4ða ári. Hún
heitir Corinna Reischer og vekur athygli fyr-
ir óvenjulega andlega hæfileika. Við lásum
í þýzku blaði, að hún hefði minni á við
tölvu (svo), að litla höfuðið hennar myndi
allt, sem hún næmi, — og það er ekkert smá-
ræði, miðað við aldur telpunnar.
Corinna þekkir öll lönd jarðar á hnatt-
líkani föður síns og kann auk þess orðið
talsvert í landafræði. Það er ekki nóg með,
að hún viti, að Kólumbus fann Ameríku,
heldur veit hún sitthvað um leiðangur hans
vestur um haf. Eins og 20ustu aldar barni
samir, man hún auðvitað nöfn allra geim-
faranna. Hún kann furðu vel skil á tónlist,
á sér orðið uppáhaldstónskáld (Mozart, Bach
og Jóhann Strauss) og leikur oft þjóðlög á
klarinettu. En það, sem mesta undrun vekur,
er, að hún er svo þaulkunnug leikritinu Faust
eftir Goethe, að hún leikur sér að því að fara
með langa kafla úr því orðrétta utan bókar.
Auðvitað er telpan síspyrjandi foreldra
sína, eins og títt er um gáfuð börn. Faðir
hennar hefur góðan tíma til að sinna spurn-
ingum hennar, því að hann hefur nýlega látið
af veitingastarfi og er því mikið heima við.
Hann gerir lítið úr því, að Corinna litla sé
undrabarn.
Á 20 MÍNÚTUM MILLI FRANKFURT
OG NEW YORK
FLUGVÉLAVERKFRÆÐINGAR áforma
um þessar mundir 20 mínútna flugferðir í
geimþotum milli Frankfurt a. M. og New
York kringum 1980. Þessum þotum er einnig
ætlað að skreppa öðru hverju út í geiminn
með birgðir til stöðva þar.