Fréttablaðið - 23.06.2010, Blaðsíða 48

Fréttablaðið - 23.06.2010, Blaðsíða 48
Mest lesið DREIFING: dreifing@posthusid.is EF BLAÐIÐ BERST EKKI: 512 5060 VIÐ SEGJUM FRÉTTIR SMÁAUGLÝSINGASÍMINN OG SKIPTIBORÐ: 512 5000 VISIR.IS Ritstjórn: 512 5313, Fax: 512 5301, ritstjorn@frettabladid.is Auglýsingadeild: auglysingar@frettabladid.is PRENTUN: Ísafoldarprentsmiðja FRÉTTIR AF FÓLKI Strippað áfram, án Geira Geiri Goldfinger, eða Ásgeir Davíðs- son, er nú að selja nektarstaðinn sinn í Kópavogi. Hann segist vera orðinn of gamall í bransann. Hinn 1. júlí verða sett lög sem banna nektardans á Íslandi, en Geiri segist ekki sjá að það hafi sérstök áhrif á reksturinn. Lögin segi að ekki megi gera út á nektina. „Og maður hefur ekki verið að gera svo mikið út á nektina hvort eð er,“ segir Geiri. Lögin hafi þó þau neikvæðu áhrif að nektarstaðir verði ekki taldir eins spenn- andi og áður að heimsækja. Sýslumaður frestar ættar- móti fyrir Stóns Það leikur enginn vafi á því að Ólafur Helgi Kjartansson, sýslumaður á Selfossi, er mesti aðdáandi hljómsveitarinnar Rolling Stones á Íslandi. Ólafur verður því heiðursgestur á tónleikum Stóns í Mosfellsbæ á laugardag, en hljómsveitin sérhæfir sig í að taka óaðfinnanlegar útgáfur af lögum gömlu Rolling Stones. Meðlimirnir eru engir aukvisar, en Bjössi, Bjarni og Krummi úr Mínus eru allir í band- inu ásamt hinum stimamjúka Birgi Ísleifi úr Motion Boys. Sagan segir að Ólafur Helgi neyðist til að fresta komu sinni á ættarmót vegna tónleik- anna, sem hann ætlar alls ekki að missa af. - afb ÓDÝRT FYRIR ALLA! Hjónin Knútur og Helena rækta tómata á Friðheimum í Reykholti. Þau eru einu garðyrkjubændurnir sem rækta plómutómata allt árið um kring en auk þeirra rækta þau hefðbundna tómata og konfekttómata. Á Friðheimum gefst gestum tækifæri til að skoða gróðurhúsin og kynna sér hvernig tómatarækt gengur fyrir sig. 1 Körfuboltamaður ætlar að áfrýja nauðgunardómi 2 Nýráðin dagskrástjóri sjónvarps segir starfi sínu lausu 3 Barn hætt komið í verslun - lífshættulegar rúllugardínur 4 Karlarnir prjóna og drekka bjór 5 Gagnrýnir ráðningu Sigrúnar sem dagskrárstjóra

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.