Fréttablaðið - 23.06.2010, Blaðsíða 26

Fréttablaðið - 23.06.2010, Blaðsíða 26
 23. JÚNÍ 2010 MIÐVIKUDAGUR6 ● fréttablaðið ● sumar og börn Langar bílferðir geta verið lýj- andi fyrir litla krakka. Ef börn- in eru vön að leggja sig á daginn getur verið sniðugt að miða öku- ferðirnar við lúrinn og leggja af stað þegar stutt er í að barnið sofni. Þá má komast lengra áleiðis ef langt ferðalag er fyrir höndum áður en huga þarf að afþreyingu fyrir barnið. Þegar barnið vaknar er gott að geta gripið til leikfanga fyrir það að dunda sér með. Einn- ig er hressandi að syngja hástöfum lög og vísur sem barnið kann og getur tekið undir. Fyrir eldri börn er hægt að leika klassíska ferða- leiki eins og hver er maðurinn, eða hvað gerðirðu við peningana sem frúin í Hamborg gaf þér. Eins má búa til leiki í kringum örnefni sem ekið er fram hjá og segja sögur af atburðum úr Íslandssögunni þegar það á við. Hafið einnig heima- smurt nesti með í för og stoppið oft svo krakkarnir geti teygt úr sér og fengið sér hressingu. Ferða- spilarar, hvort sem er fyrir tónlist eða myndbönd, eru einnig góðir ferðafélagar og geta gert ferðina ánægjulega og afslappaða. - rat „Ég heiti Þorsteinn Freyr Gíslason – kall- aður Steini,“ segir þessi piltur um leið og hann stígur upp á hjólið og lætur sig hverfa, ásamt vini sínum. Segist ætla að vökva seinna. Jökull Freysteinsson nýtur tilsagnar föður síns, Freysteins Sigmundssonar, fyrsta daginn í gróðursetningunni. Honum þykir verkið skemmtilegt. Skólagarðarnir eru heilmiklir samkomustaðir á sumrin þegar þangað safnast börn á aldrinum átta til tólf ára ásamt leiðbein- endum sínum og jafnvel ættingjum. Við skólagarðana safnast börn, þeirra nánustu og leiðbeinendur á sumr- in, fyrst til að setja niður kartöflur, sá fræjum og gróðursetja grænmet- isplöntur, síðan til að vökva og fylgjast með vextinum, hlúa að ræktuninni og reyta illgresi. Þarna komast börnin í bein tengsl við móður náttúru og njóta útiveru í ýmsum veðrum. Sól skín í heiði og líflegt er í skólagörðun- um í Litla Skerjafirði daginn sem Fréttablaðsfólk rennir þar við. - gun Emilía Rán Benediktsdóttir, átta ára, er önnum kafin þegar ljósmyndari heilsar upp á hana. Sólrún Ásta Reynisdóttir og Marta Alexandra Jamesdóttir eru tíu ára bekkj- arsystur sem hjálpast að við að vökva grænmetisgarðinn sinn. Tengsl við móður náttúru Ástrós Lena Ægisdóttir fær Margréti Steinþórsdóttur, vinkonu sína úr Melaskólanum, til að hjálpa sér að planta. Ástrós segir ekki skyldu að vera í skólagörðunum en hún geri það uppskerunnar vegna. Ísabella Ýrr Hallgrímsdóttir og Senía Guðmundsdóttir eru með hundinn Blossa með sér. Þær eru að reyta illgresið áður en þær stinga upp beðið og eru sammála Stefáni ljósmyndara um að það sé leiðinlegasta verkið í matjurtaræktinni. „Því arfinn kemur aftur og aftur.“ FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN Emilía Rán Benediktsdóttir, átta ára, hefur aldrei fyrr gróðursett plöntu en ber sig þó að eins og alvön, eftir að Elísabet Davíðsdóttir aðstoðarstúlka hefur sýnt henni handtökin. Gott er að miða ökuferðina við lúr barnsins til að komast lengra áleiðis. ●AFTUR FISKAR Í VESTURBÆJARLAUG Nýtt fiskabúr verð- ur tekið í notkun í Vesturbæjarlaug í dag. Þá geta gestir sundlaug- arinnar aftur notið framandi fiska en árum saman stóð fiskabúr í anddyri sundlaugarinnar, hannað af Gísla Halldórssyni arki- tekt árið 1965. Það búr var tekið niður á níunda áratugnum en eftir söfnun sem Vináttufélag Vesturbæjar stóð að hefur nú aftur verið sett upp fiskabúr í anddyrinu. Safnað var í samskotabauka í and- dyri laugarinnar og víðar í Vesturbænum og var hápunktur söfnunarinnar fjölskylduhátíð með útitónleikum sem haldin var í laug- inni í sumarlok 2009. Hönnuður búrsins að þessu sinni eru Bjarki Gunnar Halldórsson arkitekt, Margrét Leifsdóttir arkitekt og Sigurður Gunnarsson verkfræð- ingur. Aðstandendur söfnunarinnar, sem og forsvarsmenn Vesturbæjar- laugar, bjóða alla velkomna á vígsluathöfnina í dag klukkan 17.30. Litlir og lúnir ferðalangar ● HREYFING OG HEILBRIGÐI Í FYRIRRÚMI Ungmennafé- lag Akureyrar, UFA, og KEA standa fyrir Akureyrarhlaupi KEA næstkom- andi laugardag og verður ræst af stað klukkan 10 árdegis. Að þessu sinni verða nýjar leiðir farnar og áhersla lögð á að gera hlaupið sem þægi- legast fyrir alla þátttakendur, en hægt er að velja um hálfmara þon, tíu kílómetra hlaup og loks 2,5 kílómetra skemmtiskokk. Akur- eyrarhlaup er fyrir alla, stóra sem smáa, unga sem aldna, íþrótta- fólk og almenning. Átak býður þátttakendum í heita pottinn eftir hlaupið til að slaka á og láta þreytuna líða úr kroppnum. Allir þátttakendur fá þátttökupening og eiga möguleika á útdráttar- verðlaunum. Nánar á www.akur- eyrarhlaup.is.

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.