Fréttablaðið - 23.06.2010, Blaðsíða 24
23. JÚNÍ 2010 MIÐVIKUDAGUR4 ● fréttablaðið ● sumar og börn
Brauðbollur með túnfisksalati, áleggi sem molnar ekki út um allt í litlum höndum. Flatkökur með mysingi, salati og gúrkum er sælgæ
Hluti af bernskunni er að leika
sér úti allan liðlangan daginn á
íslenskum sumrum og oft lítill
tími til að koma inn úr leik að
matast. Því er börnum himna-
sending að fá nesti út í garð til
að maula og bjóða vinum með
í litla lautarferð.
„Nesti er kraftmest og „alvöru“ ef
í því er brauð og þegar smurt er
fyrir yngri börn finnst mér best að
setja álegg sem hægt er að smyrja
og skera í minni bita. Þá er auð-
veldara að halda á brauðinu í ann-
arri hendi án þess að áleggið fari
á flakk,“ segir Heiða Björg Hilm-
isdóttir næringarfræðingur, sem
útbjó barnaboð með dætrum sínum
Sólkötlu Þöll og Ísold Emblu Ögn í
garðinum heima. Heiða er annar
höfunda matreiðslubókarinnar
Samlokur, sem kom út með út-
færslum af smurðu nesti 2003.
„Dæmi um gott álegg fyrir börn
er kæfa, mysingur, hummus, tún-
fisksalat og reyktur lax. Svo set ég
alltaf salat, gúrkur og tómata með
í nestisboxið. Þetta hefur virkað
vel hjá okkur, sérstaklega ef farið
er í hjólaferð þar sem nesti getur
orðið svolítið hrist,“ segir Heiða
og bendir á að litlir rúsínupakkar
slái alltaf í gegn, sem og möndl-
ur og þurrkaðir ávextir ef börn
eru vön þeim, en annars þurfi
að bjóða þeim nokkr-
um sinnum þar
til þau kunna að
meta það yndis-
ljúfa náttúrusæl-
gæti.
„Auðveldast er að kaupa drykk
í fernum, en það er miklu rómant-
ískara og meira spennandi að hella
safa eða mjólk úr flösku. Þá er nóg
að kaupa eina melónu og fara með
út með teppi, eða hvaða ávöxt sem
er. Flóknari en svo þarf nestisferð-
in ekki að vera.“ - þlg
Garðboð fyrir smáfólk
Fersk
Nýba
Heiða Björg Hilmisdóttir næringarráðgjafi með
prinsessunum Ísold Emblu Ögn 2ja ára og Sólkötlu
Þöll 4 ára í nestisferð í garðinum heima.
Sumarsæla, túnfisksalat og
kryddbrauð
Sumarsæla
fyrir fjóra
1 dl frosin jarðarber og hindber
5 dl appelsínusafi eða eplasafi
ef til vill smá fersk mynta
Setjið innihaldið í blandara og
blandið saman þar til verð-
ur mjúkt. Hellið í stór glös
og berið fram. Hér má nota
frysta ávexti og ber að eigin
vali. Góður barnadrykk-
ur sem má laga að óskum
hvers og eins.
Túnfisksalat
fyrir fjóra
1 dós túnfiskur
2 harðsoðin egg
¼ laukur, smátt saxaður
2 dl sýrður rjómi
örlítil tamarisósa
svartur nýmalaður pipar og salt
Hvellur
Smiðjuvegur 30
- Rauð gata
200 Kópavogi
Sími: 577 6400
www.hvellur.com
Sumarið er komið
Hjólum í vinnuna
á Kildemoes
Hringdu í síma
ef blaðið berst ekki
Vatnaskógur
5. Flokkur Örfá sæ laus
6. Flokkur Örfá sæ laus
7. Ævintýraflokkur Örfá sæ laus
8. Flokkur Örfá sæ laus
9. Unglingaflokkur
(bæði kyn)
Nokkur sæ laus
10. Flokkur Laus sæ
Laust er í eftirfarandi flokka:
Tryggðu barninu þínu
ánægjulega sumardvöl.
Skráning og nánari upplýsingar í síma
588-8899 og á www.kfum.is