Fréttablaðið - 23.06.2010, Blaðsíða 40

Fréttablaðið - 23.06.2010, Blaðsíða 40
24 23. júní 2010 MIÐVIKUDAGUR sport@frettabladid.is Sóknarleikur Keflvíkinga í sumar hefur ekki verið burðugur. Aðeins átta mörk í átta leikjum staðreynd en góð vörn hefur skilað liðinu í efsta sæti Pepsi-deildarinnar ásamt Val og Fram. Þeir sakna líklega Hauks Inga Guðnasonar sem spilaði tuttugu leiki í fyrra en hann er enn og aftur meiddur á hné. Hann hefur ekkert spilað með Keflavík í sumar. „Þetta blessaða hné kemur í veg fyrir að ég nái að fylgja eftir tímabilinu frá því í fyrra. Ég var orðinn bjartsýnn á það,“ sagði Haukur sem hefur átt í vandræðum með hnéð í nokkur ár. „Þetta er sama hnéð og alltaf. Ég er með beinmar í hnénu en það er ekki endilega tengt hinum vandamálunum. Ég meiddist um miðjan febrúar og fór í smá aðgerð. Ég þurfti að hvíla í þrjá mánuði og er núna búinn að því, þá taka við æfingar,“ sagði Haukur sem reyndi að æfa fyrir mótið. „Það gekk ekki upp. Ég er nýbyrjaður að æfa aftur en þeir sem hafa lent í þessu segja mér að þetta geti tekið langan tíma, maður verður bara að vona það besta. Maður má heldur ekki byrja of fljótt.“ Haukur Ingi er þó vongóður um að hann nái að koma sér aftur í form og neitar að leggja skóna á hilluna. Hann spilaði fimmtán leiki með Fylki 2008, þrettán leiki 2007 og ellefu leiki 2006. „Margir furða sig á því af hverju ég er ekki hættur. Það er bara af því að í þessi stuttu skipti sem maður nær að spila þá er það svo gaman og gefur mér virkilega mikið. Vonandi sér fyrir endann á þessu. Ég er með gott fólk í kringum mig sem vinnur með mér að þessu. Meðan ég á möguleika á því að spila aftur gefst ég ekki upp,“ sagði Haukur. Hann segir að áherslubreytingar í leikstíl Keflvíkinga eftir að Willum Þór Þórsson tók við þýði að fínslípun liðsins taki tíma. „Ég hef ekki áhyggjur af þessu markaleysi. Helsti styrk- leikinn okkar í fyrra var sóknin en vörnin var til vandræða. Nú er hún orðin mjög góð og við þurfum bara að finna rétta blöndu í okkar leik,” sagði Haukur sem vonast til að verða góður í seinni umferð deildarinnar. HAUKUR INGI GUÐNASON: ENN Í VANDRÆÐUM MEÐ HNÉÐ Á SÉR EFTIR ÁRALANGA BARÁTTU Margir furða sig á því af hverju ég er ekki hættur > VISA-bikarinn á fullt í kvöld 16-liða úrslit VISA-bikars karla hefjast í kvöld með fimm leikjum. Tvö lið úr 1. deildinni fá lið úr Pepsi- deildinni í heimsókn. Fjölnismenn taka á móti KR og Víkingur tekur á móti Val. Þar mætir Helgi Sigurðsson sínum gömlu félögum. Fjölnir féll úr efstu deild í fyrra og tapaði þá báðum leikjunum gegn KR, 2-1. Stjörnumenn eiga erfiða ferð fyrir höndum á Torfnesvöll þar sem það mætir BÍ/Bolungarvík sem er í öðru sæti 2. deildar. Það verða tveir 1. deildarslagir í kvöld, á Akranesi þar sem ÍA tekur á móti Þrótti og í Ólafsvík þar sem Fjarðabyggð verður í heimsókn. Suðurlandsbraut 20, Reykjavík | Sími 588 0200 | www.eirvik.is Sparaðu með Miele Kynntu þér málið hjá sölumönnum Eirvíkur Íslenskt stjórnborð - Stórt hurðarop Íslenskar leiðbeiningar - 20 ára ending Miele þvottavélar hafa verið framleiddar í yfir hundrað ár. Miele þvottavélar og þurrkarar eru framleidd til að endast. FÓTBOLTI Ísland og Frakkland mætast í úrslitaleik á menningar- nótt um laust sæti í umspili HM. Ísland þarf að vinna leikinn 3-0 en á meðan möguleikinn er til staðar er enn von. Ísland vann Króatíu 3- 0 í gær. Íslenska landsliðið hefur nú leik- ið níu leiki á Laugardalsvelli undir stjórn Sigurðar Ragnars Eyjólfs- sonar, unnið þá alla og markatal- an er 43-0. Liðið hefur semsagt ekki fengið á sig mark í þessum níu leikjum. Fyrri hálfleikur var einstefna að Laugardalshöllinni. Íslenska liðið hélt boltanum lengst af og skapaði tólf færi. Tveimur þeirra lauk með marki. Áður en Hólmfríður Magn- úsdóttir skoraði eftir frábæran einleik skallaði hún í stöngina. Dóra María skaut í slá en Hólmfríður tvöfaldaði forystuna skömmu fyrir hálfleik. Eftir langa sendingu fram tók hún boltann af varnarmanni og skoraði. Þjálfari liðsins trylltist, grýtti vatnsflösku í jörðina og húðskammaði dómar- ann alla leið inn í klefa í hálfleik. Aðrir þjálfarar klöppuðu einnig kaldhæðnislega fyrir dómaranum á meðan hún gekk framhjá þeim. Staðan 2-0 í hálfleik. Seinni hálfleikurinn var svip- aður, hann byrjaði með skalla frá Söru í slána, hún skaut einnig í slána síðar í hálfleiknum, og yfir- burðirnir héldu áfram. Það var viðeigandi að Katrín Jónsdóttir skyldi skora í sínum 100. landsleik. Frábær árangur hennar með landsliðinu og viðeig- andi að skora í leik sem hægt er að tileinka henni. Leikurinn fjaraði út og þrátt fyrir mikla yfirburði skoraði Ísland ekki meira. Þrátt fyrir að ólíklegt sé að markatalan muni skipta máli, sem gerist aðeins ef Ísland vinnur Frakkland 2-0, hefði íslenska liðið átt að skora meira, bæði í gær og gegn Norður-Írum á laugardaginn. „Ég er mjög ánægður með hvern- ig leikmenn leystu þetta verkefni af hendi,“ sagði Sigurður Ragnar Eyjólfsson landsliðsþjálfari eftir leik. „Við spiluðum góðan leik, héldum markinu hreinu og gáfum ekki færi á okkur. Við vorum pínu óheppnar að skora ekki fleiri mörk því við sköpuðum nóg af færum.“ Úrslitasendingar brugðust að mati Sigurðar. „Þetta er eitthvað sem við verðum að vinna með áfram og bæta okkur í. Sóknarlega þurfum við að gera betur og skora fleiri mörk. Við fáum ekki svona mörg færi í leiknum gegn Frökk- um,“ sagði Sigurður. - hþh, egm Lygilegar í Laugardalnum Ísland vann öruggan 3-0 sigur á Króatíu í gær. Það hefur nú unnið alla níu leik- ina undir stjórn Sigurðar Ragnars Eyjólfssonar á Laugardalsvelli með markatöl- una 43-0. Katrín Jónsdóttir skoraði í sínum 100. leik með íslenska landsliðinu. HÓLMFRÍÐUR MEÐ TVÖ Leikmenn íslenska landsliðsins fagna öðru tveggja marka Hólmfríðar Magnúsdóttur í leiknum. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI FÓTBOLTI Katrín Jónsdóttir var ánægð með að skora í sínum hundr- aðasta leik en hún segist ekki hafa stefnt neitt sérstaklega á það fyrir leikinn að setja mark. „Ég hugsaði bara út í það að ég ætlaði að spila góðan leik og við ættum að vinna þetta,“ sagði Katrín með bros á vör eftir leikinn. „Það var mikið gert úr því að þetta væri hundraðasti leikur minn en það sem skipti máli var að þetta var sigur og ég er ótrú- lega glöð með að það tókst.“ Katrín sleppti því að vera í bol innanundir landsliðstreyjunni með tölunni 100 en fyrir leik fékk hún blómvönd frá KSÍ. „Það er rosa flott en mér leið mjög kjánalega í þessari afhendingu. Mér fannst ég vera eins og fífl þegar ég horfði upp í stúku,“ sagði Katrín og hló. „Það er rosa gaman að vera búin að vera svona lengi í þessu og sjá allar þessar breytingar sem hafa átt sér stað.“ Katrín er sammála því að mörk- in hefðu átt að vera fleiri í gær. „Það er jákvætt að við sköpuðum okkur færi en það er jákvætt að við héldum hreinu. Ég man ekki hvenær við fengum síðast á okkur mark á Laugardalsvelli. „Næsti leikur er gegn Frakk- landi og við verðum að eiga topp- leik til að vinna hann. Við vitum það alveg. Það er allt hægt í fót- bolta og höfum trú á að við getum unnið þann leik 3-0.“ - egm Katrín Jónsdóttir skoraði í sínum hundraðasta landsleik: Fannst ég vera eins og fífl FYRIRLIÐINN HEIÐRAÐUR Katrín Jónsdóttir lék sinn 100. landsleik í gær og var heiðr- uð fyrir leikinn gegn Króatíu í gær. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.