Fréttablaðið - 05.07.2010, Blaðsíða 2

Fréttablaðið - 05.07.2010, Blaðsíða 2
2 5. júlí 2010 MÁNUDAGUR Sveitarstjórar í Hveragerði hafa verið í hópi lægst launuðu sveit- arstjóra.” ALDÍS HAFSTEINS- DÓTTIR BÆJARSTJÓRI Í HVERAGERÐI SPURNING DAGSINS Oddi – umhverfisvottuð prentsmiðja. Höfðabakka 7, 110 Reykjavík, sími 515 5000, www.oddi.is SAMFÉLAGSMÁL Áströlsk sam- tök samkynhneigðra hafa sent Jóhönnu Sigurðardóttur forsætis- ráðherra bréf og óskað eftir því að hún hjálpi þeim í baráttunni við lögleiðingu hjónabanda samkyn- hneigðra þar í landi. Alex Greenwich, sem fer fyrir samtökunum, skrifar undir bréf- ið til Jóhönnu. Hann óskar for- sætisráðherra til hamingju með ný hjúskaparlög, sem tóku gildi 27. júní síðastliðinn. Með gildis- töku þeirra verða eftirleiðis ein samræmd hjúskaparlög í landinu óháð kynferði. Jóhanna gekk að eiga Jón- ínu Leósdótt- ur sama dag og lögin tóku gildi. Netmiðillinn IceNews hefur eftir Greenwich að Julia Gill- ard, sem nýver- ið settist í stól forsætisráðherra Ástralíu, hafi í útvarpsviðtali á dögunum sagt núgildandi lög um hjónaband eiga aðeins að ná til karls og konu. Rík- isstjórnin sé að skoða aðrar leiðir til að jafna hlut samkynhneigðra. Greenwich bendir á að það sé í andstöðu við vilja landsmanna en sextíu prósent Ástrala munu hlynnt því að samkynhneigðir fái að ganga í hjónaband. Forsætisráðherra hefur verið í fríi frá því að lögin tóku gildi og hefur erindi áströlsku samtak- anna ekki verið svarað. Líklegt er að það verði gert fljótlega, sam- kvæmt upplýsingum Fréttablaðs- ins úr stjórnarráðinu. - jab Samtök samkynhneigðra í Ástralíu óska eftir stuðningi Jóhönnu Sigurðardóttur: Vilja brúðkaup samkynhneigðra MEXÍKÓ Kosningar til ríkis- og borgarstjóra eru hafnar í nærri helmingi ríkja Mexíkó. Ofbeldi og ógnanir hafa varpað skugga á kosningarnar þar sem tveir frambjóðendur hafa verið myrtir í kosningabaráttunni. Fréttaritarar breska ríkisút- varpsins segja kosningabaráttuna þá blóðugustu í meira en fimmtán ár. Litið er á kosningarnar sem óop- inbera þjóðaratkvæðagreiðslu um baráttu forsetans Felipe Calderón gegn ofbeldi tengdu fíkniefnum. Um fimm þúsund dauðsföll hafa verið tengd við fíkniefni í ár. - mmf Kosningar í Mexíkó: Morð í aðdrag- anda kosningaSVEITARFÉLÖG Minnihluti A-listans í bæjarstjórn Hveragerðis segir laun Aldísar Hafsteinsdóttur bæjarstjóra vera of há. Nýr ráðningarsamningur við Aldísi var ræddur á bæjarstjórn- arfundi á þriðjudag. Minnihlut- inn benti á að samkvæmt honum yrðu laun og hlunnindi Aldísar um 1.050.000 krónur á mánuði. Minnihlutinn kveðst ekki gera athugasemdir við 487 þúsund króna grunnlaun bæjarstjór- ans en segir honum ætluð önnur réttindi og starfskjör sem séu umfram það sem aðrir starfs- menn bæjarins fái. „Sem er full- komlega óeðlilegt og mismun- un við aðra starfsmenn,“ segir í bókun minnihlutans. Aldís Hafsteinsdóttir segir ráðningarsamninginn nú sam- bærilegan við fyrri samn- ing. Breyting- in sé aðallega sú að nú greiði bærinn ekki bifreið fyrir bæjarstjór- ann heldur borgi aksturs- peninga. Þetta muni bær- inn væntan- lega þurfa að greiða minna í bifreiðakostn- að bæjarstjóra en áður. Þess utan lækki hún um tvo launaflokka. Gagnrýni fulltrúa A-listans beinist að því að bæjarstjóri fái greiddar 72 klukkustundir í fasta yfirvinnu alla mánuði ársins, greiddan bílastyrk fyrir 1.300 kílómetra akstur á mánuði og skuli eiga rétt á sex mánaða bið- launum. Sérstaklega óeðlilegt sé að bæjarstjóri fái yfirvinnu og akstursgreiðslur á orlofstíma. Meirihluti D-listans sagði gagn- rýni A-listans ranga og misvísandi og felldi tillögu minnihlutans um að bæjarstjórinn fengi aðeins greitt fyrir þá yfirvinnu sem hann vinni eða þá að taka yfirvinnu- tíma sem frí. Sömuleiðis var fellt að hann fengi greiddan bílastyrk í samræmi við akstursbók eins og aðrir bæjarstarfsmenn og að bið- launarétturinn yrði þrír mánuðir í stað sex mánaða. „Það hefur verið könnun á kjör- um sveitarstjóra á vegum Sam- bands íslenskra sveitarfélaga sem sýnir að sveitarstjórar í Hvera- gerði hafa verið í hópi lægst laun- uðu sveitarstjóra í sveitarfélög- um af okkar stærðargráðu,“ segir Aldís sem gefur lítið fyrir þá til- lögu minnihlutans að hún taki yfir- vinnu út í fríum. „Ég held að flest- ir sem þekkja störf bæjarstjóra viti að hann er alltaf á vaktinni og það væri fátt um vinnudaga ef ég ætti að taka yfirvinnuna út í fríum.“ gar@frettabladid.is Milljónalaun sögð of góð fyrir bæjarstjóra Bæjarstjórinn í Hveragerði nýtur launa og hlunninda sem nema 1.050.000 krónum á mánuði segir minnihlutinn sem gagnrýnir sex mánaða biðlaunarétt og greiðslur fyrir akstur og yfirvinnu á öðrum kjörum en aðrir bæjarstarfsmenn njóti. JÓHANNA SIGURÐ- ARDÓTTIR STÓRIÐJA Alþjóðleg rannsóknar- nefnd kemur til landsins í dag til að rannsaka banaslysið sem varð í járnblendiverksmiðjunni á Grund- artanga síðastliðinn þriðjudag. Einar Þorsteinsson, fram- kvæmdastjóri járnblendiverk- smiðjunnar, sagði í samtali við Vísi.is í gær að vonast væri til að fá betri upplýsingar um orsakir slyssins þegar líður á vikuna. Járnblendiverksmiðjan á Grund- artanga rekur þrjá ofna. Búið er að einangra þetta atvik við þennan eina ofn en hinir tveir eru komnir í fulla framleiðslu aftur. - mmf Rannsókn á Grundartanga: Alþjóðleg nefnd rannsakar slys Helgi, komstu í hlaðið á hvít- um hesti? „Já og ég söng og fagnaði góðum gesti.“ Tónlistarmaðurinn Helgi Björnsson sendi nýverið frá sér plötuna Þú komst í hlaðið, ásamt hljómsveitinni Reiðmenn vindanna. VIÐSKIPTI „Ég get ekki annað en beðið kröfuhafa afsökunar. Maður getur ekki verið stoltur þegar lagasetning á lánafyrirkomulagi sem hefur viðgeng- ist í níu ár er dæmd ólögmæt,“ segir Árni Tómas- son, formaður skilanefndar Glitnis. Skilanefndin hefur kannað réttarstöðu sína eftir dóm Hæstaréttar fyrir rúmum hálfum mánuði og hefur skoðað grundvöll þess að höfða skaðabótamál á hendur ríkinu vegna forsendubrests í samningum. Við flutning á eignum Glitnis til Íslandsbanka var ekki gert ráð fyrir kostnaði vegna ólögmætra geng- istryggðra lána. Skilanefnd Kaupþings er í sömu sporum, að sögn fréttastofu Stöðvar 2. Skilanefnd Glitnis á 95 prósenta hlut í Íslandsbanka en skila- nefnd Kaupþings á 87 prósenta hlut í Arion banka. Árni bendir á að kröfuhafar Glitnis hafi tapað á milli fimmtán hundruð til tvö þúsund milljörðum króna á falli bankans og séu mjög ósáttir. Skilanefndin hefur reiknað út hugsanlegan kostn- að bankans í tengslum við dóm Hæstaréttar og mið- ast hann við ýmsar hugsanlegar niðurstöður. Árni segir erfitt að gefa upp tölur. Það geti orðið dýr- keypt komist Hæstiréttur að þeirri niðurstöðu að ólögmæt gengislán nái til íbúðalána og fyrirtækja- lána og láti samningsvexti standa. - jab ÁRNI TÓMASSON Kröfuhafar Glitnis eru mjög ósáttir vegna dóms Hæstaréttar í gengislánamálinu, að sögn formanns skila- nefndar Glitnis. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN Skilanefndir bankanna íhuga skaðabótamál á hendur íslenska ríkinu: Biður kröfuhafa afsökunar ALDÍS HAFSTEINSDÓTTIR Bæjarstjórn hefur endurnýjað ráðningarsamning við Aldísi Hafsteinsdóttur bæjarstjóra. Minnihlutinn er ósáttur við að Aldís njóti ríflegra kjara miðað við aðra bæjarstarfsmenn sem tekið hafi á sig skerðingar. MYND/EGILL BJARNASON LÖGREGLUMÁL Umferð þyngdist töluvert í umdæmi lögreglunnar á Selfossi eftir hádegið í gær. Tveir árekstrar urðu á hring- torginu við Hveragerði seinni partinn. Annar áreksturinn var milli tveggja bíla en hinn var fjög- urra bíla árekstur. Að sögn vakt- hafandi varðstjóra hjá lögreglunni á Selfossi sakaði engan. Töluverð umferð var seinni partinn hjá lögreglunni í Borgar- nesi en að sögn lögreglunnar gekk hún vel. Umferð hjá lögreglunni á Blönduósi gekk vel og tók að minnka eftir því sem líða tók á kvöld. - mmf Þung umferð síðdegis í gær: Tveir árekstrar við Hveragerði ATKVÆÐI GREITT Mexíkósk kona greiðir atkvæði í kosningum gærdagsins í Mexikó. NORDICPHOTOS/AFP FASTEIGNIR Fasteignaverð á höfuð- borgarsvæðinu mun hrynja á næstu árum niður í 150 þúsund krónur á fermetra úr um 220 þús- und krónum sem það er í dag að meðaltali, ef eftir ganga spár sér- fræðinga Landsbankans. Eins og fram kom í kvöldfrétt- um Stöðvar tvö gat nýi Lands- bankinn, með því að spá svo lágu verði, yfirtekið lánasafn gamla Landsbankans með talsverðum afslætti. Þegar fasteignalán voru því færð úr gamla Landsbankan- um í þann nýja voru þessar sömu spár notaðar til að réttlæta allt að 75 prósenta afslátt á fasteigna- lánunum. - rat Svört spá Landsbankans: Sjá fyrir hrun í fasteignaverði TÆKNI Markaðssetning nýja iPhone-farsímans frá Apple er sú besta í sögu fyrirtækisins. Þetta kemur fram í tilkynningu sem Apple sendi frá sér á föstudag. Síminn kom á markað fyrir rúmri viku og hefur selst í um tveimur milljónum eintaka. Í tilkynningu Apple er lýst yfir furðu á kvörtunum um lélegt talsamband símans og meintan galla á loftneti hans. Þar kemur fram að galli sé í símunum sem sýnir styrk talsambands. Síminn sýni betri skilyrði en þau raun- verulega eru. Skekkjan verður löguð með uppfærslu á hugbúnaði á næstu vikum. - jab Selst eins og heitar lummur: iPhone sá besti í sögu Apple NÝI SÍMINN Steve Jobs, forstjóri Apple, kynnti nýja iPhone-farsímann í byrjun júní. FRÉTTABLAÐIÐ/AP

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.