Fréttablaðið - 05.07.2010, Side 4
4 5. júlí 2010 MÁNUDAGUR
Í kvöld opnum við
litla flösku af kampa-
víni og á morgun opnum við
stóra flösku.“
KOMOROWSKI
VERÐANDI PÓLLANDSFORSETI
AUGLÝSINGADEILDIR FRÉTTABLAÐSINS – AUGLÝSINGASTJÓRI: Jón Laufdal jonl@frettabladid.is ALMENNAR SÍMI 512-5401: Hendrik Sigurðsson hendrik@frettabladid.is, Guðmundur Steinsson gudmundurs@365.is, Laila Awad laila@365.is, Örn Geirsson orn.geirsson@365.is, Hjördís Zoëga hjordis@frettabladid.is
ALLT SÍMI 512-5402: Jóna María Hafsteinsdóttir jmh@365.is, Henný Árnadóttir henny@365.is, Þórdís Hermannsdóttir thordish@365.is SÉRBLÖÐ SÍMI 512-5016: Sigríður Sigurbjörnsdóttir sigridurdagny@365.is, Hlynur Þór Steingrímsson hlynurs@365.is, Bjarni Þór Sigurðsson bthor@365.is, Benedikt Freyr Jónsson benediktj@365.is
RAÐAUGLÝSINGAR /FASTEIGNIR SÍMI 512-5403: Hrannar Helgason hrannar@365.is, Viðar Ingi Pétursson vip@365.is ÞJÓNUSTUAUGLÝSINGAR SÍMI 512-5407: Sigrún Helga Guðmundsdóttir sigrunh@365.is, Arna Rut Kristinsdóttir arnarut@365.is
GENGIÐ 02.07.2010
GJALDMIÐLAR KAUP SALA
HEIMILD: Seðlabanki Íslands
212,4388
GENGISVÍSITALA KRÓNUNNAR
125,04 125,64
190,03 190,95
156,38 157,26
20,989 21,111
19,368 19,482
16,35 16,446
1,4262 1,4346
186,47 187,59
Bandaríkjadalur
Sterlingspund
Evra
Dönsk króna
Norsk króna
Sænsk króna
Japanskt jen
SDR
SAMGÖNGUMÁL Dregið hefur
úr myndun raða við gatnamót
Reykjanesbrautar og Bústaða-
vegar eftir að vinstri beygja var
bönnuð þar á álagstímum. Þetta
segir á vef Reykjavíkurborgar.
Ástandið var verst síðdegis.
Teygðu biðraðir sig þá eftir
Sæbrautinni og inn á Miklubraut,
sem olli töfum og slysahættu.
Bannað er að beygja til vinstri
af Bústaðavegi út á Reykjanes-
braut á morgnana og síðdegis
virka daga en áfram er leyft að
taka þessa beygju um helgar. - þeb
Borgin segir árangur góðan:
Styttri raðir eft-
ir beygjubann
Enginn slasaðist
Engin meiðsl urðu á fólki þegar bíll
með fjórum ungmennum lenti utan
vegar á Skagastrandarvegi klukkan
hálf fimm aðfaranótt sunnudags.
Bíllinn er þó mjög illa farinn.
Fíkniefni á Írskum dögum
Skemmtanahald fór vel fram á Írskum
dögum á Akranesi um helgina. Einn
var tekinn með innan við gramm
af fíkniefnum til eigin neyslu en var
látinn laus að lokinni skýrslutöku.
LÖGREGLUFRÉTTIR
UMHVERFISMÁL Svandís Svavars-
dóttir umhverfisráðherra opnaði
Surtseyjarstofu í Vestmannaeyj-
um á föstudag. Surtseyjarstofa er
gestastofa fyrir friðlandið Surts-
ey en þar er að finna fróðleik um
friðlandið og heimsminjasvæðið
Surtsey.
Einnig er þar til húsa skrif-
stofa Umhverfisstofnunar í Vest-
mannaeyjum og Surtseyjar-
sýning sem byggð er á sýningu
Náttúrufræðistofnunar Íslands
frá árinu 2007 þegar Surtsey var
tilnefnd á heimsminjaskrána.
Surtsey var friðlýst árið 1965
í þágu rannsókna og náttúru-
verndar. - rat
Surtseyjarstofa opnuð:
Hýsir sýningar
og fróðleik
VEÐURSPÁ
Alicante
Basel
Berlín
Billund
Frankfurt
Friedrichshafen
Gautaborg
Kaupmannahöfn
Las Palmas
London
Mallorca
New York
Orlando
Ósló
París
San Francisco
Stokkhólmur
HEIMURINN
Vindhraði er í m/s.
Hitastig eru í °C.
Gildistími korta er um hádegi.
28°
28°
30°
22°
30°
27°
21°
21°
22°
21°
25°
35°
30°
21°
24°
21°
23°Á MORGUN
Vaxandi NA-átt
um kvöldið.
MIÐVIKUDAGUR
Stíf NA-átt NV- og SA-
lands, annars hægari.
12
13
12
14
14
11
10
16
13
12
14
3
3
6
4
3
6
3
7
2
3
5
12
14
16
11 13
8
1010
16
13
HVESSIR ANNAÐ
KVÖLD Það verður
víða hægviðri á
landinu í dag en
á morgun verð-
ur nokkuð kröpp
lægð fyrir sunnan
land og fáum við
þá heldur hvassa
norðaustanátt með
dágóðum skammti
af vætu, einkum
um landið suðaust-
anvert.
Elísabet
Margeirsdóttir
veður-
fréttamaður
FJARSKIPTI Vodafone hefur stefnt
Fjarskiptasjóði ríkisins og Sím-
anum vegna samnings á milli
þessara aðila um háhraðanet-
tengingar í dreifðum byggðum
landsins.
Lægsta tilboð í verkið barst frá
Símanum og hljóðaði upp á 378
milljónir. Þegar samningurinn
var undirritaður var samnings-
upphæðin 606 milljónir. Samn-
ingurinn tryggir Símanum einka-
rétt á að veita þjónustu um þann
búnað sem settur er upp.
Vodafone telur að samningur-
inn feli efnislega í sér verulegar
ívilnanir af almannafé fyrir einn
aðila á fjarskiptamarkaði og
raski verulega samkeppni. - mmf
Vodafone stefnir ríkinu:
Símanum sagt
hyglað af ríkinu
RÚSSLAND Neðri deild rússneska
þingsins hefur samþykkt algjört
bann við akstri
undir áhrifum
áfengis. Það
þýðir að ekkert
áfengi má finn-
ast í blóði öku-
manna.
Dmitry Med-
vedev for-
seti kallaði
eftir banninu í
desember síðast-
liðnum. Hann sagði þá að ef lítið
magn af áfengi væri leyft hvetti
það fólk til þess að drekka meira.
Búist er við því að efri deildin
samþykki bannið líka og því
verði tillagan að lögum.
Yfir tvö þúsund manns létust
og átján þúsund slösuðust í bíl-
slysum sem rekja má til ölvunar-
aksturs í Rússlandi á síðasta ári.
- þeb
Tillaga forsetans samþykkt:
Bann við akstri
undir áhrifum
DMITRY MEDVEDEV
UMHVERFISRÁÐHERRA Opnaði Surts-
eyjarstofu, gestastofu fyrir friðlandið
Surtsey, í Vestmannaeyjum.
MYND/ÓSKAR
DÓMSMÁL Hæstiréttur Bandaríkj-
anna hefur úrskurðað að erlendir
fjárfestar geti ekki sótt mál þar
í landi á hendur erlendum fyrir-
tækjum fyrir hlutabréfaviðskipti
á erlendum mörkuðum.
Þykir dómurinn marka tíma-
mót, enda hafði það færst í vöxt
að fjárfestar utan Bandaríkjanna,
einkum frá Evrópu, sem töldu
sig hafa verið hlunnfarna í hluta-
bréfaviðskiptum, nýttu sér banda-
ríska löggjöf um hópmálsóknir til
að sækja málin þar í landi. Málum
sem þessum verður framvegis
vísað frá dómi og stefnendum
gert að höfða
málið í heima-
landi sínu.
Slitastjórn
og skilanefnd
Glitnis hafa
höfðað mál á
hendur sjö fyrr-
verandi eigend-
um og stjórn-
endum Glitnis
í Bandaríkjun-
um. Sjömenn-
ingarnir eru krafðir um sem
nemur 260 milljörðum íslenskra
króna fyrir að hafa staðið að
meintu samsæri um að svíkja
lánsfé út úr bankanum til að nota
í eigin fyrirtæki.
Steinunn Guðbjartsdóttir, for-
maður slitastjórnarinnar, hafði
ekki kynnt sér dóm Hæstarétt-
ar Bandaríkjanna en sagðist við
fyrstu sýn telja að hann hefði
ekki áhrif á málareksturinn gegn
Glitni. Hann væri vegna skulda-
bréfaútboðs í Bandaríkjunum
og meint brot sjömenninganna
beindust því gegn hagsmunum
bandarískra lögaðila. Málið yrði
hins vegar skoðað gaumgæfilega.
- sh
Tímamótadómur í Bandaríkjunum bannar málsóknir ótengdar landinu:
Hefur tæpast áhrif á mál Glitnis
STEINUNN GUÐ-
BJARTSDÓTTIR
PÓLLAND, AP Bronislaw Komorow-
ski verður næsti forseti Póllands
ef marka má útgönguspár. Í gær
fór fram önnur umferð forseta-
kosninganna í Póllandi. Búist er
við lokatölum í dag.
Kosið var milli þeirra tveggja
frambjóðenda sem flest atkvæði
fengu í fyrri umferðinni sem fór
fram fyrir hálfum mánuði, þeirra
Bronislaw Komorowski sem hlaut
þá 41,5 prósent atkvæða og Jaroslaw
Kaczynski sem hlaut 36,5 prósent.
Komorowski hefur gegnt for-
setaembættinu frá því að Lech
Kaczynski forseti fórst í flugslysi
10. apríl síðastliðinn ásamt eig-
inkonu sinni og 94 öðrum. Mót-
frambjóðandi hans, Jaroslaw
Kaczynski, er fyrrverandi for-
sætisráðherra og tvíburabróðir
Kaczynski forseta.
„Í kvöld opnum við litla flösku af
kampavíni og á morgun opnum við
stóra flösku,“ sagði Komorowski
er hann ávarpaði fagnandi flokks-
félaga sína í Varsjá í gærkvöldi.
Hann lýsti þó ekki yfir formleg-
um sigri þar sem enn væri verið að
telja atkvæði en leyfði sér að vera
bjartsýnn. Jaroslaw Kaczynski
virtist einnig að sama skapi ekki
reikna með sigri en hann sagðist
í gær „óska sigurvegaranum til
hamingju og óska þá Bronislaw
Komorowski til hamingju“.
Strax á fyrstu fimm klukkutím-
um kosninganna höfðu um 27 pró-
sent kosningabærra manna skilað
atkvæði sínu en um 30 milljónir
hafa kosningarétt af 38 milljónum
íbúa Póllands.
Ljóst var frá upphafi að mjótt
yrði á mununum en Komorowski
nýtur vinsælda sem traustur og
friðelskandi leiðtogi. Flokkur hans
hefur stýrt Póllandi gegnum efna-
hagsþrengingarnar sem dunið hafa
á heimsbyggðinni undanfarin miss-
eri, án þess að efnahagur landsins
hafi hrunið. Hann hefur einnig
sagst munu vinna náið með ríkis-
stjórn Donalds Tusk, forsætisráð-
herra að upptöku evrunnar innan
fimm ára og draga allt pólskt herlið
frá Afganistan fyrir árið 2012.
Kaczynski þykir aftur á móti
harðfylginn og ríkisstjórnartíð
hans á árunum 2006 til 2007 þótti
skipulagslaus. Skoðanakannanir
sýndu þó aukið fylgi við hann síð-
ustu daga sem skrifaðar voru á
samúð vegna dauða bróður hans.
heida@frettabladid.is
Komorowski næsti
forseti Póllands
Annarri umferð forsetakosninganna í Póllandi lauk í gærkvöldi. Búist er við
lokatölum í dag. Ef marka má útgönguspár fór Bronislaw Komorowski með
sigur af hólmi gegn Jaroslaw Kaczynski, tvíburabróður fyrrverandi forseta.
BJARTSÝNN Á SIGUR Bronislaw Komorowski ávarpar flokksfélaga sína í gærkvöldi
þegar það þótti ljóst að hann færi með sigur af hólmi í forsetakosningunum.
NORDIC PHOTOS/AFP