Fréttablaðið - 05.07.2010, Page 6
6 5. júlí 2010 MÁNUDAGUR
Fæst í heilsubúðum,
og matvöruverslunum
• Lífrænt ræktað hráefni
• Án viðbætts sykurs
• Engin rotvarnarefni
KONGÓ Talið er að rúmlega 230 manns hafi látið lífið
þegar eldsneytis flutningabíll sprakk aðfaranótt
laugardags í þorpinu Sange í Kongó.
Meirihluta þeirra sem fórust var komið fyrir í
fjöldagröf fyrir utan bæinn af hjálparliðum Rauða
krossins. Líkin voru það illa brennd og óþekkjanleg.
Samkvæmt talsmanni Sameinuðu þjóðanna lést að
minnsta kosti 231 í sprengingunni, þar af 61 barn,
og 195 slösuðust.
Flutningabíllinn valt þegar bílstjórinn reyndi að
komast fram úr litlum strætisvagni. Tók olía strax
að leka úr tanki bílsins.
Slysið varð í grennd við þrjár sjónvarpsmiðstöðv-
ar þar sem hundruð manna höfðu safnast saman til
að horfa á heimsmeistarakeppnina í fótbolta. Mikinn
fjölda fólks dreif einnig að með allra handa fötur og
krukkur til að verða sér úti um olíu þrátt fyrir við-
varanir friðargæsluliða Sameinuðu þjóðanna um eld-
hættu. Eldurinn braust út innan við klukkustund eftir
að slysið varð.
Mikil fátækt hrjáir íbúa Kongó en óstöðugt ástand
hefur ríkt í landinu frá stríðslokum árið 2002 en þá
hafði geisað stríð þar frá árinu 1996. - rat
Yfir tvö hundruð fórust þegar eldsneytisflutningabíll sprakk í þorpi í Kongó:
Reyndu að safna olíu í fötur
EFNAHAGSMÁL Eygló Harðardóttir
og Birkir Jón Jónsson, þingmenn
Framsóknarflokksins, óskuðu á
fimmtudag eftir fundi í efnahags-
og skattanefnd og viðskiptanefnd
um tilmæli Seðlabankans og Fjár-
málaeftirlitsins til fjármálafyrir-
tækja um endurútreikning mynt-
körfulána.
Orðið hefur verið við ósk þing-
mannanna og gert er ráð fyrir
fundi í dag. Þar munu Gylfi Magn-
ússon viðskiptaráðherra, Arnór Sig-
hvatsson aðstoðarseðlabankastjóri,
og Gunnar Þ. Andersen, forstjóri
FME, mæta til
að svara spurn-
ingum þing-
mannanna auk
þeirra Gísla
Tryggvason-
ar, talsmanns
neytenda, Frið-
riks Ó. Friðriks-
sonar frá Hags-
munasamtökum
heimilanna og
fleirum. Þingmennirnir spyrja um
hver beri ábyrgð á því að ekki var
tekið tillit til þess við uppgjör nýju
og gömlu bankanna að erlendu lánin
gætu verið ólögmæt. „Sú staðreynd
virðist hafa skert umtalsvert verð-
mæti eignasafns nýju bankanna,“
segir Eygló. „Löngu áður en gengið
var frá uppgjörinu, og þá sérstak-
lega á milli gamla Landsbankans og
NBI, var búið að benda stjórnvöld-
um á vafaatriði um lögmæti þess-
ara lána. Stjórnvöld völdu að hunsa
það. Ef rétt er að núna geti íslenska
ríkið þurft að greiða 100 milljarða
aukalega inn í bankakerfið, þá sér-
staklega NBI, þá hlýtur einhver að
axla ábyrgð á því.“ - shá
Þingmenn Framsóknar krefjast svara vegna tilmæla Seðlabanka og FME:
Spyrja um ábyrgð á uppgjöri
EYGLÓ
HARÐARDÓTTIR
LÖGREGLUMÁL Þrír ungir menn
syntu ölvaðir yfir Hvítá ofan við
Iðubrú í Laugarási aðfaranótt
sunnudags. Voru mennirnir á
tjaldsvæðinu í Laugarási.
Lögreglu barst tilkynning um
atvikið klukkustund eftir að þeir
höfðu ætlað í sundið.
Björgunarsveitir voru kallaðar
út en var snúið við eftir að lög-
reglan hafði fundið þremenning-
ana heila á húfi. Ungu mennirnir
höfðu gengið í um klukkustund
þaðan sem þeir komu í land í
Auðsholti í Hrunamannahreppi.
Að sögn vakthafandi varð-
stjóra á Selfossi voru þremenn-
ingarnir blautir og kaldir þegar
þeir fundust. - mmf
Björgunarsveitir kallaðar út:
Þrír drukknir
syntu yfir Hvítá
LÖGREGLUMÁL Margar tilkynningar
bárust um aðfinnsluvert ökulag
ökumanna í umdæmi lögreglunnar
á Selfossi um helgina.
Lögreglan fékk einnig tilkynn-
ingu um nakinn mann sem var að
húkka sér far á Suðurlandsvegi við
Selfoss um klukkan sjö á laugar-
dagskvöld. Þegar lögreglumenn
komu á staðinn var engan nakinn
mann að sjá. Að sögn vakthafandi
varðstjóra er ekki vitað hvort til-
kynningin hafi verið gabb eða
hvort einhver hafi tekið manninn
upp í. Aðrar tilkynningar sner-
ust um glæfralegan akstur og að
ökutæki rásuðu á vegi. - mmf
Óhefðbundinn vegfarandi:
Nakinn maður
húkkar sér far
BRIDDS Íslenska landsliðið í bridds
endaði í 4. sæti Evrópumótsins í
ár. Mótinu lauk nú í gær. Íslenska
liðið vann sinn síðasta leik 19 gegn
11 á móti Rússum og fengu 289
stig á mótinu.
Ítalir urðu Evrópumeistarar í
ár með 314 stig. Pólverjar urðu í 2.
sæti með 308 stig og Ísraelar í því
3ja með 304,5 stig.
Íslenska liðið mun spila á heims-
meistaramótinu sem haldið verð-
ur í Hollandi haustið 2011. Ísland
hefur einu sinni áður komist á
heimsmeistaramót. Það var árið
1991 í Yokohama og urðu Íslend-
ingar þá heimsmeistarar. - rat
Evrópumótinu í bridds lokið:
Íslendingar í
fjórða sæti
LANDSLIÐIÐ Í BRIDDS Íslenska liðið
vann sér inn rétt til að taka þátt í heims-
meistaramótinu sem fram fer haustið
2011 í Hollandi.
BORGARMÁL Meirihluti Besta
flokksins og Samfylkingarinn-
ar í borgarstjórn Reykjavíkur
nýtur stuðn-
ings 71 pró-
sents borg-
arbúa. Þetta
kemur fram
í nýrri könn-
un sem Miðlun
ehf. vann fyrir
Morgunblað-
ið á tímabilinu
11. til 28. júní.
Meirihlutinn
nýtur stuðnings í öllum aldurs-
hópum, þó mestan meðal ungs
fólks eða 85,3% stuðnings hjá
18 til 24 ára og 76,6% hjá 25 til
34 ára.
Fleiri konur en karlar styðja
meirihlutann eða tæp 74%
kvenna gegn 68% karla. 680 ein-
staklingar á aldrinum 18 til 75
ára voru spurðir og tóku 87%
afstöðu til spurningarinnar. - rat
Skoðanakönnun í Reykjavík:
Nýr meirihluti
með mikið fylgi
JÓN GNARR
BÍLHRÆIÐ Flutningabíllinn valt þegar bílstjórinn reyndi að
komast fram úr litlum strætisvagni. Á þriðja hundrað létust er
hann sprakk. NORDICPHOTOS/AFP
IÐNAÐUR Verðmæti seldra fram-
leiðsluvara árið 2009 var 574
milljarðar króna. Það er 28 millj-
örðum króna meira en árið 2008.
Þetta kemur fram á vef Hagstofu
Íslands. Framleiðsla fiskafurða
og framleiðsla á málmum vegur
þyngst, fiskafurðirnar námu 34,8
prósentum af heildarverðmæt-
inu og málmarnir 33,4 prósentum.
Verðmæti seldra framleiðsluvara
árið 2009 án fiskafurða og fram-
leiðslu málma nam tæplega 183
milljörðum króna og dróst saman
um 4 milljarða frá fyrra ári. - kóp
Aukin sala framleiðsluvara:
Seldum fyrir
574 milljarða
Ferðaðist þú um landið um
helgina?
Já 18,1%
Nei 81,9%
SPURNING DAGSINS Í DAG
Hefur þú borðað hvalkjöt?
Segðu þína skoðun á visir.is
Ég er tiltölu-
lega ánægður
með skýrsl-
una. Hún
er vönduð
og inniheld-
ur góðar
ábendingar.
Ég held að
skattkerfið fái
þarna tiltölu-
lega jákvæða
umfjöllun.“
STEINGRÍMUR J.
SIGFÚSSON
FJÁRMÁLARÁÐHERRA
EFNAHAGSMÁL Íslenska skattkerf-
ið er í grunninn skilvirkt og hafa
breytingar bætt úr göllum sem á
því voru. Á móti þykir hluti skatt-
kerfisins flókinn og bjóða upp á
skattaundanskot.
Þetta er á meðal þess helsta
sem fram kemur í óbirtri skýrslu
Alþjóðagjaldeyrissjóðsins (AGS)
um íslenska
skattkerfið.
Ýmsar ábend-
ingar er að
finna í skýrsl-
unni, svo sem
um það hvern-
ig s t y rkja
megi skatt-
stofna.
Eft ir því
s e m n æ s t
verður komist
mun AGS ekki
hafa afskipti
af breyting-
um á skatt-
kerfinu svo
lengi sem þær
stangist ekki á
við efnahags-
áætlun AGS og
stjórnvalda og
séu liður í því
að grynnka á
skuldum hins
opinbera.
Starfshópur
á vegum fjármálaráðuneytis sem
á að leggja fram heildartillögur að
breytingum á skattkerfinu fyrir
árslok mun hafa skýrslu AGS til
hliðsjónar. Gert er ráð fyrir að til-
lögurnar bæti afkomu ríkissjóðs
í samræmi við áætlun um jöfnuð
í ríkisfjármálum en miði um leið
að því að dreifa skattbyrði með
sanngjörnum hætti og hlífa tekju-
lágum við skattahækkunum.
Steingrímur J. Sigfússon fjár-
málaráðherra, segist tiltölulega
ánægður með skýrsluna. Hún sé
vönduð og innihaldi góðar ábend-
ingar.
„Ég held að skattkerfið fái þarna
tiltölulega jákvæða umfjöllun.
Það voru göt á kerfinu fyrir hrun
og ljóst að það var mjög vanbúið.
Nú er búið að taka á því. Ýmislegt
er þó enn ógert. En skattkerfið er
skilvirkt og þjónar tilgangi sínum.
Þeir sem hafa gagnrýnt skattkerf-
ið fá ekki liðsstyrk í skýrslunni,“
segir fjármálaráðherra.
Hópur sérfræðinga AGS kom
til Íslands að ósk á fjármálaráð-
herra í vor og gerði ítarlega úttekt
á skattkerfinu. Skattkerfið hér
var borið saman við önnur lönd
og gerðar tillögur að breyting-
um. Steingrímur fékk helstu nið-
urstöður í hendur í maí og gerði
þá ríkisstjórn grein fyrir þeim.
AGS leit á skýrsluna sem vinnu-
skjal fyrir stjórnsýsluna og varð
Steingrímur að óska eftir því sér-
staklega að hún yrði gerð opinber.
Hann fékk endanlega gerð skýrsl-
unnar í hendur fyrir stuttu. „Ég
reikna með að hún verði birt á
næstu dögum,“ segir ráðherra.
jonab@frettabladid.is
STEINGRÍMUR J. Skattkerfið var vanbúið og götótt fyrir banka- og gengishrunið. Búið
er að staga í helstu göt og verður það bætt á nýju ári, að sögn fjármálaráðherra.
FRÉTTABLAÐIÐ/GVA
Íslenska skattkerfið
er skilvirkt segir AGS
Breytingar á skattkerfinu eru jákvæðar, að mati Alþjóðagjaldeyrissjóðsins. „Ég
er tiltölulega ánægður,“ segir fjármálaráðherra, sem telur skattkerfið hafa verið
vanbúið og götótt fyrir hrun. Hann vonast til að skýrslan verði birt fljótlega.
KJÖRKASSINN