Fréttablaðið - 05.07.2010, Side 18
5. júlí 2010 MÁNUDAGUR2
„Sumarið hefur farið í að undir-
búa vöruna til framleiðslu og hún
kemur í sölu 9. eða 10. júlí í Kraumi
og í kjölfarið í safnverslanir Lista-
safns Reykjavíkur,“ segir Helga
Björg Jónasardóttir vöruhönnuður
og ein þriggja aðstandenda hönn-
unarfyrirtækisins Björg í bú, sem
átti vinningstillöguna í samkeppni
Listasafns Reykjavíkur, Kraums og
Hönnunarmiðstöðvar Íslands um
nytjahlut í anda Ásmundar Sveins-
sonar myndhöggvara.
Tveir vöruhönnuðir standa að
Björg í bú auk Helgu, þær Edda
Jóna Gylfadóttir og Guðrún Hjör-
leifsdóttir og saman hönnuðu þær
púsluspil úr formum sem finna má
í verkum Ásmundar sem þær kalla
Minn Ásmundur.
„Við köfuðum í karakter Ásmund-
ar sjálfs en hann var kallaður
alþýðuskáld í myndlist. Hann var
natinn við krakka og vildi að þau
léku sér og klifruðu í skúlptúrun-
um hans og tækju þátt í verkinu. Við
notuðum því hluta úr verkum hans
og virkjum fólk eins og hann gerði,“
útskýrir Helga. Undirtitill verksins
er Skapaðu þinn eigin skúlptúr og
er hægt að raða formunum saman á
mismunandi vegu.
„Þeir sem þekkja verk Ásmundar
kannast strax við formin og bygg-
inguna í spilinu en við notuðum
áberandi tákn og form frá honum.
Höndin er til dæmis sterkt form í
mörgum verka hans og hún er því
sterkur partur í púsluspilinu líka.“
Spilið er samsett úr níu stykkj-
um sem skorin eru út í krossvið og
er framleitt af fyrirtækinu Format.
Helga segir það skipta þær máli að
varan sé framleidd hér á landi.
„Við skoðuðum þann möguleika að
láta framleiða erlendis en við vilj-
um helst framleiða á Íslandi. Okkar
hugsjón er að skapa atvinnu með
okkar vörum, og leggja okkar að
mörkum við uppbyggingu atvinnu-
lífsins í landinu,“ segir Helga en
Björg í bú hefur meðal annars verið
að þróa kartöfluflögur í samvinnu
við íslenskan kartöflubónda sem
væntanlegar eru á markaðinn með
haustinu.
Helga segir ferlið frá því að vara
sé fullhönnuð og þar til hún kemst
í framleiðslu geta tekið tíma og
íslenskir hönnuðir rekist gjarnan á
veggi þegar kemur að því að finna
efni til framleiðslu og framleiðend-
ur að vöru. Hún segir það þó ekki
draga úr kraftinum í hönnuðum en
frá því að Björg í bú tók til starfa
fyrir tæpu ári hefur það þegar sent
frá sér línu af Skínandi skartgrip-
um og nú púsluspilið, auk þess sem
mörg verkefni eru í farvegi.
„Við rekumst á marga veggi í
framleiðsluferlinu en erum orðnar
þokkalega klárar að fella þá. Björg
í bú er bæði með eigin verkefni og
verk í samvinnu við aðra í vinnslu
og mun kynna nýjar vörur í haust,
bæði matartengdar og ekki.“
Nánar má forvitnast um Björg í
bú á Facebook. heida@frettabladid.is
Ásmundi púslað saman
Minn Ásmundur er heiti á púsluspili eftir þrjá íslenska vöruhönnuði sem er væntanlegt á markaðinn í
lok vikunnar. Púsluspilið er framleitt á Íslandi og fékk fyrstu verðlaun í hönnunarsamkeppni nú í vor.
Hér eru þær Helga Jónasardóttir og Edda Gylfadóttir. Á myndina vantar Guðrúnu
Hjörleifsdóttur en hún eignaðist litla stúlku fyrir nokkrum dögum og er heima í
barneignarleyfi. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN
Úr iðrum jarðar er yfirskrift sýn-
ingar sem stendur yfir í Listhúsi
Ófeigs á Skólavörðustíg 5.
Listakonan IngaElín sýnir nýjustu
verk sín á sýningunni Úr iðrum
jarðar. Um er að ræða skreyting-
ar sem undirstrika kraft íslenskr-
ar náttúru en IngaElín notar ösku
úr Eyjafjallajökli í verkin. Í sýn-
ingarskrá segir að Eyjafjallajökull
hafi haft áhrif á líf fjölda íbúa Evr-
ópu undanfarna mánuði og umbrot-
in veki fólk til umhugsunar um líf
forfeðranna sem lifðu við erfiðar
aðstæður án nútímaþæginda. „Hug-
myndin með þessum verkum var að
búa til varanlegan minjagrip um
Eyjafjallajökul, askan er þarna ekki
bara duft sem fýkur burt,“ útskýrir
IngaElín en aska er notuð í glerjung
í verkunum.
Sýningin opnaði 16. júní síðastlið-
inn og stendur til 14. júlí og er opin
á verslunartíma. - rat
Askan nýtt í listina
Skreytingar InguElínar eru glerjaðar með
ösku úr Eyjafjallajökli. MYND/ÚR EINKASAFNI
- Gefðu íslenska hönnun
Lín Design • Laugavegi 176, gamla sjónvarpshúsið • sími 533 2220 • www.lindesign.is
Sængurfatnaðurinn frá Lín Design er ofinn úr bómullardamask.
Yfir 30 tegundir af íslenskum sængurfatnaði til brúðargjafa.
Íslensk hönnun á góðu verði.
Dúnmjúkarbrúðargjafir
Taktur - Fyrir 16-25 ára. Atvinnuleitin, listahópar og margt fleira. kl.9 -13
Samskipti í lit - Litir nýttir til að auka skilning okkar hvert á öðru. kl. 10 -11
Skapaðu þér góða framtíð! - Hópastarf fyrir 16-25 ára. Styrktu sjálfs-
myndina og lærðu tilfinningastjórnun. Þriðji hluti af sex. Lokað! kl. 13 -15
Jóga - Léttar æfingar og teygjur. Komdu og prófaðu. kl. 15 -16
Ráðgjöf fyrir innflytjendur kl. 14 -16 Briddsklúbbur kl. 14 -16
Gönguhópur kl. 13 -14 Vinnum saman (Býflugurnar) kl. 14 -16
Borgartúni 25 | Reykjavík | Sími 570 4000 | raudakrosshusid@redcross.is
www.raudakrosshusid.is |
Opið mánudaga til fimmtudaga kl. 13-16
Dagskrá vikunnar
Rauðakrosshúsið
Ókeypis fyrir alla
Mánudagur 5. júlí
Hvernig stöndumst við álag? - Hvers vegna snögg reiðumst við og
pirrumst yfir hversdagslegum smámunum? kl.13 -14
Prjónahópur - Heklaðu og prjónaðu með okkur. kl. 13 -15
Verkefni Rauða kross Íslands - Hvað gerir Rauði krossinn innanlands?
Hvað getur þú lagt af mörkum? kl.14:30 -15:30
Þriðjudagur 6. júlí
Miðvikudagur 7. júlí
Miðvikudagar eru dagar unga fólksins í Rauðakrosshúsinu
Fimmtudagur 8. júlí
Tölvuaðstoð kl. 13:30-15:30 Art of living - Sjálfboðavinna kl. 15 -16
LOKAÐ! Rauðakrosshúsið verður lokað alla föstudaga í júlí.
Heilsuhópur Takts - Fyrir 16-25 ára. Útileikfimi í Nauthólsvík.
Mæting kl. 9 í Rauðakrosshúsinu. Leikfimin hefst kl. 9:30.
Föstudagur 9. júlí - Lokað
Gönguhópurinn Njótandi og þjótandi - Gengið um höfuðborgarsvæðið
þrisvar í viku (mán. kl. 13, mið. og fös. kl.10) og margvíslegir staðir skoðaðir.
Upplýsingar um upphafsstaði hverju sinni á raudakrosshusid@gmail.com.
Grínsenur - Leikum okkur saman og búum til grínþætti í sameiningu.
Umsjón: Aldís leikkona. kl. 13-14
Lífskraftur og tilfinningar - Lærðu að þekkja tilfinningar þínar og stjórna
þeim. Fyrsti hluti af sex. Skráning nauðsynleg. kl.14 -16
Taktur - Fyrir 16-25 ára. Atvinnuleitin, listahópar og margt fleira. kl.9 -12
Skapandi skrif í dagbókina - Dagbókarfærslur geta verið margvíslegar
og óþarfi að einblína á upptalningaraðferð. Fyrri hluti. kl.13-14
Ítölsk matargerð -Lærðu að gera ljúffenga rétti og smakkaðu. kl.13 -14
Lífskraftur og tilfinningar - Annar hluti af sex. Skráning nauðsynleg. kl.14 -16
Heilsuhópur - Vertu með í hópi sem vill bæta heilsu sína og líðan. kl.14-15
Laugavegi 178 - Sími: 551 2070
Sími 551 3366.
Opið mán.-fös. 10-18,
laugard. 10-14.
Góð þjónusta - fagleg ráðgjöf.
www.misty.is
teg. ARIEL - saumlaus skál og
getur verið hlýralaus í BCD skálum á
kr. 7.680,-
teg. BRILLANT - yndisleg blúndusam-
fella í BCD skálum á kr. 9.885,- LAGERSALA
5/7 mánudagur kl: 14 - 16
6/7 þriðjudagur kl: 14 - 18
Rýmum til á lager
DIM DÖMU OG HERRA
UNDIRFATNAÐUR
Mikið úrval af SOKKABUXUM
ÝMSAR SNYRTIVÖRUR
MEDICO - heildverslun
Akralind 3 - 201 Kópavogi
MIKILVÆGT er að lesa á miðana á fatnaði til að sjá
hvort hann þolir heitt straujárn. Eigi svo að strauja fleiri
en eina flík er ágætt að byrja á þeim sem þurfa minnst-
an hita og enda á þeim sem þurfa mestan.
Fimmtudaga