Fréttablaðið - 05.07.2010, Page 34
18 5. júlí 2010 MÁNUDAGUR
timamot@frettabladid.is
Tilkynningar um merkis atburði, stórafmæli
og útfarir má senda á netfangið
timamot@frettabladid.is.
Auglýsingar á að senda á
auglysingar@frettabladid.is
eða hringja í síma 512 5000.
Ástkær maðurinn minn, faðir, fóstur-
faðir, tengdafaðir, afi og langafi,
Vigfús Sólberg Vigfússon
Rjúpnasölum 12, Kópavogi,
sem lést föstudaginn 24. júní, verður jarðsunginn frá
Vídalínskirkju miðvikudaginn 7. júlí kl. 13.00.
Margrét Kjartansdóttir
Jónína Vigfúsdóttir Páll Stefánsson
Lára E. Vigfúsdóttir
Magnús Ásmundsson Katrín F. Jónsdóttir
Ólafur Ásmundsson Salgerður Jónsdóttir
Svavar Ásmundsson Pálína Hinriksdóttir
Vivi Andersen
börn og barnabörn.
Ástkær eiginkona mín, móðir, tengda-
móðir og amma,
Hanna Ármann
Sléttuvegi 17,
sem lést mánudaginn 28. júni á Landspítalanum, verð-
ur jarðsungin frá Bústaðakirkju þriðjudaginn
6. júlí kl. 13.00.
Finnur Björnsson
Valdís Ella Finnsdóttir Jónas Ólafsson
Ólafur Jónasson Finnur Jónasson
Elvar Finnur Grétarsson Heiðar Kristján Grétarsson
Hannar Sindri Grétarsson
MOSAIK Sonur minn, bróðir okkar og mágur,
dr. Kjartan G. Ottósson
prófessor við Háskólann í Osló,
sem lést mánudaginn 28. júní, verður jarðsunginn frá
Bústaðakirkju þriðjudaginn 6. júlí kl. 11.
Gyða Jónsdóttir
Óttar Ottósson
Helga Ottósdóttir Stefán S. Guðjónsson
Geirlaug Ottósdóttir Grímur Guðmundsson
Theodór Ottósson Árný Elíasdóttir
Helga Ehlers Reinhard Wolf
Innilegar þakkir færum við þeim sem
sýndu okkur samúð og hlýhug við and-
lát og útför ástkærs föður, tengdaföður,
afa og langafa,
Ólafs Kr. Þórðarsonar
kennara frá Innri-Múla, Barðaströnd,
Hjallaseli 55, Reykjavík.
Sérstakar þakkir sendum við starfsfólki Seljahlíðar
fyrir hlýja og góða umönnun.
Kolbrún Ólafsdóttir Hörður Eiðsson
Skarphéðinn Ólafsson Sigríður M. Skarphéðinsdóttir
Þórður G. Ólafsson Jónína S. Jónasdóttir
barnabörn og barnabarnabörn.
Hátíðin Villa Reykjavík verður hald-
in nú í júlí þegar tólf evrópsk gall-
erí sækja höfuðborgina heim. Hátíð-
in hefst á föstudag næstkomandi og
stendur út júlí.
„Árið 2006 stóð Raster-gallerí-
ið í Varsjá í Póllandi fyrir sambæri-
legri hátíð á yfirgefnum herragarði.
Þar buðu þeir galleríum að koma og
vera með sýningar og viðburðurinn
fékk nafnið Villa Varsjá,“ segir Lilja
Gunnarsdóttir, ein af skipuleggjendum
hátíðarinnar Villa Reykjavík sem er
haldin í fyrsta og eina sinn nú í júlí.
Skipuleggjendur hátíðarinnar í Var-
sjá komu til landsins og langaði að end-
urtaka leikinn í Reykjavík. „Pæling-
in er að búa til galleríþorp eða hverfi
eins og tíðkast víða erlendis. Hug-
myndin er að finna hús sem ekki eru
notuð í augnablikinu og standa tóm og
nýta þau undir myndlistarsýningar,“
segir Lilja og bætir við að húsin sem
hafi orðið fyrir valinu séu Vesturgata
10, Tryggvagata 18 og Fiskkaupahúsið
á Geirsgötu.
Lilja segir að vinatengsl hafi mynd-
ast milli Raster-gallerísins og Íslands.
„Þau eru skipuleggjendur hátíðarinn-
ar í samstarfi við i8 í Tryggvagötu og
Kling og Bang á Hverfisgötu. Það verða
líka sýningar hjá þessum tveimur gall-
eríum í tengslum við hátíðina. Eitt
erlendu galleríanna verður svo með
sýningu í kaffistofunni við hliðina á
Kling og Bang. Sýningar verða á stóru
svæði í kringum höfnina og upp eftir
Hverfisgötunni,“ segir Lilja brosandi.
Lilja vill meina að Villa Reykja-
vík verði mikil vítamínsprauta fyrir
listalífið í höfuðborginni en tólf evr-
ópsk listagallerí munu setja upp sýn-
ingar. „Það er bara eins og tólf ný gall-
erí opni hérna,“ segir Lilja en galleríin
eru frá ýmsum löndum, þar á meðal
frá Ítalíu, Frakklandi, Tyrklandi og
Englandi.
Lilja segir að Raster-galleríið hafi
séð um að kynna Villa Reykjavík fyrir
erlendu galleríunum. „Ég held að það
hafi bara gengið mjög vel að fá gallerí-
in hingað. Það eru allir mjög spenntir
að koma og opna sýningar hérna,“ upp-
lýsir Lilju. Hún segir að fyrirhugað sé
að íslenskir listamenn muni í tengslum
við Villa Reykjavík setja upp sýningar
erlendis líka.
Villa Reykjavík hefst á viðburða-
viku frá 9. til 16. júlí. „Þá er opnunar-
vika með viðburðum á hverjum einasta
degi. Það eru tónleikar, svo eru kvik-
myndasýningar og ýmislegt fleira en
enginn aðgangseyrir,“ segir Lilja. „Við
erum í samstarfi við Havarí og Útúr-
dúr niðri í Austurstræti og þar verður
húsband hátíðarinnar Villa Reykjavík-
bandið sem samanstendur af íslensk-
um tónlistarmönnum og pólskum sem
koma hingað sérstaklega fyrir hátíðina.
Svo erum við í samstarfi við Bakkus
þar sem fram kemur fjöldi tónlistar-
manna.“ martaf@frettabladid.is
GALLERÍHÁTÍÐIN VILLA REYKJAVÍK: HALDIN Í FYRSTA OG EINA SKIPTIÐ
Eins og tólf ný gallerí opni
VÍTAMÍNSPRAUTA FYRIR LISTALÍFIÐ Lilja Gunnarsdóttir og Edda Kristín Sigurjónsdóttir undirbúa gerð gallerís á Vesturgötunni. FRÉTTABLAÐIÐ/ARNÞÓR
EVA GREEN LEIKKONA
ER ÞRÍTUG Í DAG.
„Velgengni er hverful. Þú reiðir
þig algerlega á löngun annarra
og þess vegna er erfitt að slaka
á.“
Eva Green er frönsk leikkona sem
ólst upp í París. Hún vann BAFTA
verðlaunin árið 2006 fyrir leik sinn
í James Bond myndinni Casino
Royale.
EDIE FALCO
leikkona er 47
ára.
PAUL SMITH
tískuhönnuð-
ur er 64 ára.
Þennan dag fyrir fjórtán árum
var kindin Dolly fyrsta spendýrið
sem var klónað. Fruman sem var
klónuð var tekin úr brjóstkirtli og
af þeim sökum var hún nefnd
eftir hinni frægu söngkonu Dolly
Parton. Dolly hefur verið kölluð
frægasta kind heims samkvæmt
vef breska ríkisútvarpsins BBC.
Dolly var borin á Roslin-stofnun-
inni í nálægt Edinborg í Skotlandi
þar sem hún lifði alla sína ævi.
Hún eignaðist sex afkvæmi og það
fyrsta var kallað Bonnie en hún
fæddist í apríl árið 1998. Næsta ár
varð hún tvílembd og það þriðja
þrílembd. Haustið 2001 þegar
Dolly var fimm ára fékk hún liða-
gigt og átti erfitt með gang. Gigtin
var þó læknuð með bólgueyðandi
lyfjum.
Dolly var svæfð 14. febrúar
2003 vegna vaxandi lungnasjúk-
dóms og alvarlegrar liðagigtar.
Haft var eftir vísindamönnum á
Roslin-stofnuninni að það hefði
ekkert með það að gera að Dolly
væri klónuð. Veikindi af því tagi
sem Dolly glímdi við koma oft
upp hjá kindum sem hafðar eru á
húsi lengi, en þar hafi Dolly verið
í sex ár.
Í dag er Dolly höfð til sýnis á
hinu konunglega safni í Skotlandi.
ÞETTA GERÐIST: 5. JÚLÍ 1996
Fyrsta spendýrið klónað
AFMÆLI
MERKISATBURÐIR
1080 Ísleifur Gissurarson, fyrsti
íslenski biskupinn, andast
í Skálholti.
1541 Ögmundur Pálsson, síð-
asti kaþólski biskupinn í
Skálholti, er tekinn fastur
í skip sem flytur hann til
Danmerkur.
1811 Venesúela fær sjálfstæði
frá Spáni.
1846 Helgi Thordersen dóm-
kirkjuprestur vígður bisk-
up yfir Íslandi og gegnir
embættinu í tuttugu ár.
1851 Þjóðfundur sem fjallar
um frumvarp dönsku rík-
isstjórnarinnar um rétt-
arstöðu Íslands er sett-
ur í húsi Lærða skólans í
Reykjavík.