Fréttablaðið - 05.07.2010, Side 36
20 5. júlí 2010 MÁNUDAGUR
BAKÞANKAR
Gerðar
Kristnýjar
Í fyrra var ég stödd á alþjóðlegri ljóðahátíð í Kolkata á Indlandi. Það var ljómandi
skemmtilegt, naanbrauð snætt í hvert mál
og handartak fólksins hlýlegra en víðast
hvar annars staðar. Eftir tveggja daga
linnulausan ljóðaflutning á bengölsku
ákváðum við ferðafélagar mínir að bregða
okkur á markað. Eitthvað forvitnilegt yrði
maður nú að koma með heim frá þessum
fjarlægu slóðum. Það var enginn vandi að
rata því ekki leið á löngu þar til menn komu
aðvífandi og smöluðu þeir okkur niður í
steinsteyptan niðurgrafinn markað
hvíslandi: „Sjöl, sjöl.“
OG ÉG var eins og litla stúlkan sem
ætlaði að kaupa klæði í kjól á brúð-
una sína. Við vorum heldur ekkert
að tvínóna við þetta og í fyrstu búð-
inni sem varð á vegi okkar áskotnuð-
ust okkur fallegir silkiklútar. Það var
ekki fyrr en komið var aftur út á götu
að sannleikurinn blasti við. Þetta var
ekki silki og hafði aldrei verið. Öll
vorum við sammála um að eilitlir
prettir væru partur af prógramm-
inu en okkur var þægð í því að láta
sölukonuna, virðulega frú um
sextugt, vita að við hefðum áttað
okkur á bolabrögðunum. Við héld-
um því til baka og bárum henni á
brýn að hafa farið heldur frjáls-
lega með sannleikann.
VIÐBRÖGÐ konunnar komu á óvart því
henni virtist fyrirmunað að skilja hvers
vegna við vorum að gera veður út af við-
skiptaháttum hennar. Hún brosti blíð á svip
og sagði hæg í tíðinni: „You’ve got plenty of
money“ eða „Þið eigið fullt af peningum.“
Vitaskuld hafði hún rétt fyrir sér, ekki hjó
það stórt skarð í fjárhaginn að greiða 600
kr. fyrir afbragðs pólýester-tuskur. Ég
skipti þeim nú samt, fékk ullarsjal í staðinn
og þurfti að borga eilítinn mismun. Þegar
heim var komið bar ég sjalið saman við það
sem ég hafði keypt í bengalskri Ramma-
gerð skammt frá markaðinum og komst
að því að enn á ný hafði konan haft mig að
féþúfu, enda staðföst í þeirri trú að ég ætti
„plenty of money“.
EINS og ég var nú lens yfir framkomu kon-
unnar hef ég nú fundið að á þessu eina og
hálfa ári sem liðið er síðan fundum okkar
bar saman hefur hugsunarháttur hennar
birst mér víðar. Ólíkt því sem áður var læt
ég mér nú í léttu rúmi liggja þótt ég sjái
erlenda ferðamenn kaupa sér rándýrt vatn
á brúsum í matvöruverslunum og þegar
ég á von á útlendingum í heimsókn þegi ég
þunnu hljóði yfir strætisvögnum borgarinn-
ar, hvað þá ég bjóðist til að sækja þá, heldur
segi þeim að taka bara leigubíl. Innra með
mér, eins og hjá svo mörgum öðrum Íslend-
ingum, hvíslar nefnilega bengölsk kven-
rödd: „You’ve got plenty of money.“
Hnattrænn skilningur
■ Pondus Eftir Frode Øverli
■ Gelgjan Eftir Jerry Scott & Jim Borgman
■ Handan við hornið Eftir Tony Lopes
■ Barnalán Eftir Jerry Scott & Rick Kirkman
Ókei.
Hlustum
á þetta.
„Kill the
Filth“ með
Släpphe
Pikkür.
Algjör
list, Elli!
Ég veit! Släpphe
Pikkür þarf samt
alltaf að hafa
eina ballöðu. Ég
hata það! Hitt er
fínt!
Hæ,
dúlla.
Sjáumst,
dúlla.
Ég elska
þig, dúlla. Ég elska þig líka, dúlla.
Hæ,
dúlla.
Við erum
ekki alveg
komin á
gælunafna-
stigið.
Ekki
alveg.
Aðalfundur
farangurs-
höndlara.
Meinarðu að þessi fundur
átti að fara fram í London?
Ég verð svo ánægður
þegar þessi ritgerð
klárast.
Lesturinn, skrift-
irnar, teikning-
arnar. Ég er að
brjálast!
Eins gott að Solla
er að hjálpa þér.
Grunnskólinn er erfiðari í
annað skipti.
VILTU VINNA
RISA
SJÓNVARP FRÁ LG?
HM LEIKUR
ELKO
ÞÚ SENDIR SMS ESL HMV
Á NÚMERIÐ 1900
VIÐ SENDUM ÞÉR SPURNINGU UM HM.
ÞÚ SVARAR MEÐ ÞVÍ AÐ SENDA SMS
ESL A, B EÐA C Á NÚMERIÐ 1900.
ÞÚ GÆTIR UNNIÐ 42" LG SJÓNVARP
GEGGJAÐIR AUKAVINNINGAR
LG GSM SÍMI · FULLT AF GOSI · FIFA WORLD CUP LEIKINN
DVD MYNDIR · TÖLVULEIKIR OG MARGT FLEIRA
Vinningar verða afhendir í ELKO Lindum, Kópavogi. Með því að taka þátt ertu kominn í SMS klúbb.
149 kr/SMS-ið. Þú færð 5. mín. til að svara spurningu. Aðalvinningar dregnir út úr öllum skeytum 9. júlí.