Fréttablaðið - 05.07.2010, Blaðsíða 42

Fréttablaðið - 05.07.2010, Blaðsíða 42
26 5. júlí 2010 MÁNUDAGUR - Lifið heil www.lyfja.is 25% afsláttur af öllum Schollvörum út júlí í öllum verslunum Lyfju. Fallegir fætur með Scholl 16-LIÐA ÚRSLIT Argentína - Þýskaland 0-4 0-1 Thomas Müller (3.), 0-2 Miroslav Klose (68.), 0-3 Arne Friedrich (74.), 0-4 Miroslav Klose (89.). Paragvæ - Spánn 0-1 0-1 David Villa (83.). UNDANÚRSLITIN Úrúgvæ - Holland á morgun kl. 18.30 Þýskaland - Spánn miðvikudag kl. 18.30 MARKAHÆSTU MENN David Villa, Spáni 5 mörk Gonzalo Higuain, Argentínu 4 Miroslav Klose, Þýskalandi 4 Thomas Müller, Þýskalandi 4 Wesley Sneijder, Hollandi 4 Robert Vittek, Slóvakíu 4 ÚRSLIT FÓTBOLTI Ein skærasta knatt- spyrnustjarna heims, Portúgal- inn Cristiano Ronaldo, tilkynnti á Facebook-síðu sinni í gær að hann væri orðinn faðir. Fréttirnar komu á óvart enda er hann einhleypur og engar fregnir höfðu borist af því að þetta væri í vændum. Það var bandarísk kona sem ól honum son en Ronaldo mun sjálfur ala upp barnið. Nafni móðurinnar verður haldið leyndu en hún óskaði sjálf eftir því. Þau hafa komist að samkomulagi um að Ronaldo muni einn hafa forræði yfir drengnum. Portúgalskir fjölmiðlar greindu frá því á föstudagskvöldið að móðir Ronaldo, Dolores, hefði unnið að því ásamt systrum hans að ganga frá pappírsvinnunni og koma barninu til Portúgals. Ronaldo hefur lengi verið í sviðsljósinu og var á sínum ítrekað fjallað um meint samband hans og Paris Hilton á meðan hann var í fríi í Bandaríkjunum. Hann náði sér ekki á strik með portúgalska landsliðinu á HM í Suður-Afríku en liðið féll úr leik í 16-liða úrslitum keppninnar eftir 1-0 tap fyrir Spánverjum. Ronaldo skoraði eitt mark í keppninni, í 7-0 sigri á Norður-Kóreu í riðlakeppn- inni. Eftir leikinn gegn Spáni neitaði Ronaldo að ræða við fréttamenn og sagði svo á heimasíðunni sinni vera „eyðilagður og algjörlega niðurbrotinn“. Það má því gera ráð fyrir því að hann hafi nú tekið gleði sína á ný. - esá Cristiano Ronaldo er farinn heim frá Suður-Afríku og kominn með nýtt hlutverk: Cristiano Ronaldo orðinn faðir CRISTIANO RONALDO Var óánægður með gengi Portúgals á HM en hefur tekið gleði sína á ný. NORDIC PHOTOS/AFP FÓTBOLTI Þýskaland er komið í undanúrslit á HM í Suður-Afríku eftir glæsilegan 4-0 sigur á Diego Maradona og lærisveinum hans í landsliði Argentínu. Miroslav Klose skoraði tvö marka Þýska- lands og þeir Thomas Müller og Arne Friedrich eitt hvor. „Liðið spilaði nánast fullkominn leik. Við spiluðum eins og sannir meistarar,“ sagði Joachim Löw, þjálfari þýska liðsins, eftir leik- inn. „Úrslitin eru nánast ótrúleg því Argentína er með sterka vörn. Það var fyrsta flokks að hafa náð að skora svo mörg mörk.“ Þjóðverjar byrjuðu leikinn af miklum krafti og skoraði Müller strax á þriðju mínútu. Hin mörkin þrjú komu svo í síðari hálfleik þar sem agaður þýskur sóknarleikur fór illa með argentínsku vörnina. „Þetta eru mikil vonbrigði fyrir mig,“ sagði Maradona sem hefur verið mikið í sviðsljósinu í Suður- Afríku. „Það verður erfitt að fara aftur heim eftir þetta tap en við munum setjast niður og kom- ast að því hvað fór úrskeiðis. Við erum mjög leiðir og þetta er erf- itt. Við ætluðum okkur að komast í hóp bestu fjögurra liða heims- ins. Það var draumur okkar en það gagnstæða gerðist.“ Argentína féll úr leik í milli- riðlakeppninni á HM árið 1982 en þá lék Maradona með liðinu. „Ég upplifði þetta árið 1982 sem leikmaður. Þá var ég strákur og skildi þetta ekki fyllilega. Ég verð fimmtugur í október og orð- inn þroskaður. Þetta er erfiðasti dagur lífs míns og eins og einhver hefði sparkað í andlitið mitt. Ég er algerlega orkulaus,“ sagði Mar- adona sem segist ekki hafa íhug- að hvort hann muni halda áfram sem landsliðsþjálfari Argentínu eða ekki. „Ég vona að hann verði áfram,“ sagði Gabriel Heinze. „Þetta er ekki tíminn til þess að taka slík- ar ákvarðanir. Það verður að bíða þar til allir róast á ný. Maradona hefur lagt mikið á sig og það væri frábært ef hann myndi halda áfram.“ Miroslav Klose hefur nú skor- að fjögur mörk í Suður-Afríku og alls fjórtán í úrslitakeppni HM á ferlinum. Hann vantar aðeins eitt mark upp á að jafna markamet Brasilíumannsins Ronaldo. „Ég er hæstánægður fyrir hönd Klose,“ sagði Löw. „Hann er sann- arlega frábær leikmaður sem hefur náð frábærum árangri. Það eru afar fáir leikmenn sem eru á sama stalli og hann og afrek hans verður skráð í sögubækurnar. Hann var frábær á bæði HM 2002 og 2006 og svo aftur nú.“ Sjálfur sagði Klose að marka- metið skiptir hann litlu máli. „Ég veit ekki hvort ég næ meti Ronaldo og mér er í raun alveg sama. Ég var ekki að hugsa um metið fyrir leikinn heldur aðeins að vinna. Ég hef meiri áhuga á því hvernig við stöndum okkur sem lið. Það er miklu mikilvægara að verða heimsmeistarar en að telja mörk- in sem ég hef skorað.“ Það eina neikvæða við sigur Þjóð- verja var að markaskorarinn Müller fékk sína aðra áminningu í mótinu í leiknum og verður því í banni þegar Þýskaland mætir Spánverjum í und- anúrslitum. „Það er mikið áfall fyrir okkur að missa hann enda hefur hann sýnt hversu hættulegur hann er,“ sagði Löw sem setti stórt spurn- ingarmerki við áminninguna sem hann fékk. Müller var áminntur fyrir að handleika knöttinn. eirikur@frettabladid.is Spiluðum eins og sannir meistarar Þýskaland sýndi allar sínar bestu hliðar er liðið vann ótrúlegan 4-0 sigur á Argentínu í fjórðungsúrslitum HM í Suður-Afríku. „Liðið spilaði nánast fullkominn leik,“ sagði Joachim Löw, landsliðsþjálfari Þjóðverja. MAGNAÐIR Þjóðverjar hafa farið á kostum á HM í Suður-Afríku og hafa í þremur leikjum skorað fjögur mörk. NORDIC PHOTOS/AFP FÓTBOLTI Spánverjar komust í und- anúrslit á HM í Suður-Afríku með 1-0 sigri á Paragvæjum um helg- ina og þótt ótrúlega megi virðast er þetta í fyrsta sinn sem þetta knattspyrnustórveldi kemst í und- anúrslit í heimsmeistarakeppni. Spánverjar eru ríkjandi Evrópu- meistarar og munu mæta Þýska- landi í undanúrslitunum en þessi lið mættust einmitt í úrslitum EM 2008. Hetja Spánverja í leiknum á laugardaginn var David Villa sem hefur nú skorað í fjórum leikj- um í röð í Suður-Afríku og er nú markahæsti leikmaður keppninn- ar með fimm mörk. Markið skor- aði hann undir lok leiksins þegar hann fylgdi eftir skoti Pedro sem hafnaði í stönginni. Fyrr í síðari hálfleik höfðu bæði lið misnotað vítaspyrnu. Fyrst varði Iker Casillar frá Oscar Car- dozo og aðeins tveimur mínútum síðar varði Justo Villar frá Xabi Alonso. Alonso skoraði reyndar fyrst en vítið var dæmt ólöglegt og þurfti hann að endurtaka það. „Þetta var afar óþægilegur leik- ur en við áttum svo sem von á því,“ sagði Vicente del Bosque landsliðs- þjálfari Spánar. „Á mínum tíma sem landsliðsþjálfari hefur liðinu aldrei liðið jafn illa á vellinum og gefið svo margar lélegar sendingar í einum leik. En þeir leyfðu okkur ekki að spila eins og við erum vanir.“ Hann sagði þetta þó frábær- an árangur fyrir spænska knatt- spyrnu og Del Bosque á von á hörkuleik gegn Þýskalandi í undanúrslitum. „Við vorum ekk- ert sérstaklega góðir í dag en við vitum að við höfum það sem þarf til að vinna Þjóðverjana.“ Það skal þó tekið fram að Spánn varð í fjórða sæti á HM í Brasilíu árið 1950 en þá voru engir leikir í undanúrslitum og úrslitum held- ur úrslitariðill. Spánverjum hefur gengið betur á Evrópumeistara- mótum og tvívegis fagnað sigri á þeim vettvangi. Alls hefur liðið komist þrisvar í undanúrslit á EM og ávallt sigrað og komist í úrslitin. - esá Spánn komst í undanúrslit á HM með 1-0 sigri á Paragvæ eftir dramatískan síðari hálfleik: Spánn í undanúrslit á HM í fyrsta sinn FIMM MARKA MAÐUR David Villa var hetja Spánverja um helgina, enn og aftur. NORDIC PHOTOS/AFP FÓTBOLTI Iker Casillas, fyrirliði og markvörður spænska landsliðs- ins, þakkaði Pepe Reina fyrir að hann varði víti Oscars Cardozo í leik Spánar og Paragvæs í fjórð- ungsúrslitum HM. Spánn vann leikinn, 1-0. „Það var tilviljun að ég varði vítið,“ sagði Casillas. „Ég skutl- aði mér eins og ég gerði vegna þess að ég var að ræða við Pepe Reina fyrir leikinn og hann sagði mér að Cordozo myndi líklegast skjóta í vinstra hornið. Það var því innsæi, heppni og hjálp liðsfé- laga að þakka að ég varði vítið.“ Reina er markvörður Liverpool og varamarkvörður spænska landsliðsins. „Hann á allt lof skil- ið því hann varði vítaspyrnuna,“ sagði Reina. „Ég veit ekki hvort ég hjálpaði til eða bara ruglaði hann í ríminu. En ég sagði þetta því það var þannig sem Cordozo tók víti fyrir Benfica í leik gegn mér á sínum tíma.“ - esá Iker Casillas varði víti: Reina að þakka FYRIRLIÐINN Iker Casillas fagnar eftir sigurinn á Paragvæ um helgina. NORDIC PHOTOS/AFP

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.