Fréttablaðið - 13.07.2010, Síða 1
Sími: 512 5000MEST LESNA DAGBLAÐ Á ÍSLANDI13. júlí 2010 — 162. tölublað — 10. árgangur
ÞRIÐJUDAGUR
skoðun 12
Sölufulltrúar Henný Árnadóttir henny@365.is 512 5427 Jóna María Hafsteinsdóttir jmh@365.is 512 5473 Þórdís Hermannsdóttir thordish@365.is 512 5447
„Ég er ekkert að reyna að byggja upp einhverja rosalega vöðva en ég finn fyrir gjörbreyttri heilsu eftir að ég fór að hreyfa mig reglulega. Ég hef miklu meira úthald en áður og mér finnst ég mun hnú
byggja upp þrek. Í kjölfar hverr-ar æfingar syndi ég svo líka,“ lýsir hann og telur sundið ekki sístu heilsubótina. Þórhall
urinn er duglegur að hreyfa sig og hann ýtti mér svolítið út í þetta “segir hann bro d
Innblástur nýs lífsstíls kom frá elsta syninumÞórhallur Birgisson framkvæmdastjóri hóf markvissa líkamsrækt fyrir tæpum tveimur árum. Nú mætir
hann yfirleitt í Laugar fimm daga vikunnar, iðkar þrek og þolæfingar og syndir að þeim loknum.
„Ég hef miklu meira úthald en áður og mér finnst ég mun hraustari núna og í betra formi en fyrir tíu árum, “ segir Þórhallur Birg-
isson, framkvæmdastjóri póstkorta- og minjagripafyrirtækisins Sólarfilmu.
FRÉTTABLAÐIÐ/ARNÞÓRPatti.isLandsins mesta úrval af sófasettum
341.000
kr
Lyon B s
ett 3+1+
1
Verð frá
ileg útsk
orin
FULLKOMNUNARÁRÁTTA getur haft bæði góð
og slæm áhrif á heilsu fólks. Kostirnir eru að hún fær
fólk til að fylgja ströngum reglum við meðhöndlun á
sykursýki tvö en ókostirnir eru aukin geðræn pressa.
SÉRBLAÐ
í Fréttablaðinu
Allt
veðrið í dag
„…heldur lesandanum við efnið allan
tímann og það er erfitt að leggja bókina
frá sér fyrr en sagan er öll.“ HET
JAN
RE
ACH
ER
SNÝ
R AF
TUR
! SG / MBL
ÓGLEYMANLEG
HH / MBL
Hrífandi örlagasaga
www.forlagid.is
HEILSA Niðurstöður fyrstu rann-
sóknarinnar á árangri afnæmis-
meðferðar á Íslandi hafa nú verið
birtar. Niðurstöðurnar sýna með
óyggjandi hætti að afnæmismeð-
ferð skilar mikl-
um árangri.
Afnæmismeð-
ferð gengur
út á að auka
þol ofnæmis-
sjúklinga gegn
ofnæmisvaldin-
um.
Rannsóknin náði
yfir árin 1977
til 2006. Björn Rúnar Lúðvíksson,
yfirlæknir á ónæmisfræðideild,
segir fáar rannsóknir státa af jafn
löngu rannsóknartímabili.
Á bilinu 25 til 30 prósent Íslend-
inga þjáist af einhvers konar
ofnæmi. - mmf / sjá Allt
Afnæmismeðferð rannsökuð:
Meðferð skilar
góðum árangri
BJÖRN RÚNAR
LÚÐVÍKSSON
FÓLK Thor Vilhjálmsson skáld fór
í pílagrímsgöngu árið 2005 til
Santiago de Compostela á Spáni.
Erlendur Sveinsson og tökulið
hans fylgdu Thor um 800 kíló-
metra leið og
verður kvik-
mynd um förina
gefin út í fimm
hlutum.
Erlendur
segir ferðina
hafa verið mikla
ævintýraför,
enda leiðin gríð-
arlega löng og
erfið. „Það var
allur þremill-
inn sem kom upp á,“ segir hann.
Myndin er á mörkum heimildar-
myndar og leikinnar myndar.
Hann bætir þó við að raunveru-
legar hættur hafi skapast og að
Thor hafi til að mynda veikst í
ferðinni. - afb / sjá síðu 18
Mynd um för Thors Vilhjálms:
Gekk um 800
kílómetra leið
DÓMSMÁL Jón Ásgeir Jóhannes-
son þarf að greiða 28 milljónir af
málskostnaði slitastjórnar Glitn-
is í London eigi síðar en föstudag-
inn 30. júlí. Samtals þarf hann að
greiða minnst 140 milljónir í máls-
kostnað fyrir að verjast kyrrsetn-
ingu eigna sinna í London og jafn-
vel allt upp í 180 milljónir.
Fari svo er málskostnaðurinn
þegar orðinn 75 prósent af and-
virði allra eigna Jóns Ásgeirs, sem
nema 240 milljónum króna sam-
kvæmt lista sem hann hefur lagt
fram í London. Eignirnar eru hins
vegar kyrrsettar og verða ekki
nýttar til að greiða málskostn-
aðinn. Jafnframt er enn ótalinn
kostnaður vegna málaferla í New
York, sem að öllum líkindum verð-
ur mun hærri.
Páll Eiríksson í slitastjórn Glitn-
is segir að ekki verði fylgst með
því hvernig Jón Ásgeir greiðir
málskostnaðinn. „Það er bara hans
að leysa úr því,“ segir hann.
Forstjóri verslunarkeðjunnar
Iceland Foods staðfesti við Stöð 2
í gær að 38 milljarða innstæður
sem Jón Ásgeir sýndi í tölvupósti til
Lárusar Welding og Jóns Sigurðs-
sonar skömmu fyrir hrun hefðu
verið eign Iceland. - sh / sjá síðu 10
Jón Ásgeir þarf að byrja að greiða málskostnað slitastjórnar Glitnis í næstu viku:
Málskostnaður slagar í virði allra eigna
SKIN OG SKÚRIR Í dag verður
víðast hæg norðaustlæg eða breyti-
leg átt. Bjartviðri syðra en annars
skýjað með köflum og hætt við
stöku skúrum síðdegis. Hiti 10-18
stig, hlýjast SV-lands.
VEÐUR 4
14
13
12
11
14
Haffi kveður Valla
Leiðir Haffa Haff og
umboðsmannsins Valla
Sport skilja.
fólk 22
THOR
VILHJÁLMSSON
Langstærsta húsið á vellinum
Nokkrar knáar stúlkur smíðuðu
kofa sem gnæfði yfir alla hina á
lóðinni við Háteigsskóla í sumar.
allt 3
Efnt til útgáfuhátíðar
Fjallaþytur, úrval af ljóðum
Hákonar Aðalsteinssonar,
kemur út í dag.
tímamót 14
EFNAHAGSMÁL Alþjóðagjaldeyris-
sjóðurinn leggur til að virðis-
aukaskattur á matvæli verði
hækkaður úr sjö prósentum í 25,5
prósent. Einnig er lagt til að aðrar
vörur sem nú er lagður sjö pró-
senta virðisaukaskattur á verði
hækkaður og neðra þrep virðis-
aukaskattsins þannig lagt niður.
Þetta er meðal tillagna sjóðsins
um það hvernig íslensk stjórn-
völd geti aukið tekjur sínar.
Gylfi Magnússon efnahags-
og viðskiptaráðherra segir enga
ákvörðun hafa verið tekna í ríkis-
stjórn um hvort farið verði að
þessari tillögu sjóðsins. „Þetta
eru bara þeirra tillögur og hug-
myndir og ég vil svo sem ekkert
segja til um hvort það sé líklegt
eða ólíklegt að eitthvað þessu líkt
verði gert,“ segir Gylfi. Hann vís-
aði að öðru leyti á Steingrím J.
Sigfússon fjármálaráðherra, en
ekki náðist í hann.
„Ég er alfarið á móti þessu,“
segir Jóhannes Gunnarsson for-
maður Neytendasamtakanna.
„Það er allt of mikil árás á lífs-
kjörin, þau þola það ekki. Ég ætla
rétt að vona að það verði ekki
farið að þessum tillögum.“
Íslensk stjórnvöld báðu sér-
fræðinga AGS um úttekt á skatt-
kerfinu og tillögur um hvern-
ig auka mætti tekjur ríkisins
um eitt til tvö prósent af vergri
landsframleiðslu á næstu árum.
Sérfræðingarnir telja skattkerfið
í grundvallaratriðum gott. Meðal
annarra tillagna sem settar eru
fram er að fjármagnstekjuskatt-
ur hækki í 20 prósent og skatt-
þrepum í tekjuskattskerfinu verði
fækkað í tvö. - þeb, bj / sjá síðu 4
Skattur á mat verði
hækkaður í 25,5%
Skattur á mat ætti að hækka í 25,5 prósent samkvæmt skýrslu Alþjóðagjaldeyris-
sjóðsins og hafa ætti flatan virðisaukaskatt. Viðskiptaráðherra segir enga ákvörð-
un hafa verið tekna. Árás á lífsgæðin, segir formaður Neytendasamtakanna.
FRELSINU FEGIN Freydís Vigfúsdóttir sleppir branduglu lausri eftir vikulanga aðhlynningu á Nátt-
úrustofu Vesturlands. Freydís fann ugluna nær dauða en lífi eftir kríuárás við Rif fyrir viku. Vikuhvíld og tveimur
hrossagaukum síðar fór uglan að hressast og var frelsinu fegin þegar hún flaug á braut. MYND/RÓBERT A. STEFÁNSSON
Undanúrslitin klár
Fram, KR og Víkingur
Ólafsvík tryggðu sér sæti
í undanúrslitum VISA-
bikarsins í gær.
sport 17