Fréttablaðið - 13.07.2010, Side 21

Fréttablaðið - 13.07.2010, Side 21
ÞRIÐJUDAGUR 13. júlí 2010 13 Í umræðunni um úthlutun veiði-heimilda á Íslandi er því iðu- lega haldið fram að besta leiðin til þess að ná fram hagkvæmni í sjávarútvegi sé að ríkið úthluti varanlegum eignarrétti yfir afla- hlutdeildum og leggi síðan enga frekari skatta á afnot af aflahlut- deildum umfram þá skatta sem öll fyrirtæki greiða. Varanlegur eignarréttur án sérstakra skatta er sagður tryggja að handhafar aflahlutdeilda hafi rétta hvata til fjárfestingar og verðmætasköp- unar og að þeir fari vel með afla- hlutdeildirnar. Þessi rök eru oft notuð gegn hugmyndum um auð- lindagjöld í sjávarútvegi og einn- ig hugmyndum um fyrningu afla- hlutdeilda og endurúthlutun með uppboði til 20 ára. Til þess að sjá gallann við þessa röksemdafærslu er gagnlegt að horfa til úthlutunar annarra tak- markaðra náttúruauðlinda svo sem olíu. Að því er ég best veit úthlutar ekkert ríki heims sem býr yfir olíu varanlegum eignar- rétti yfir olíulindum sínum án þess að innheimta einhvers konar auðlindaskatt að úthlutun lokinni. Flest ríki sem búa yfir olíu og úthluta afnotarétti til einkaaðila innheimta stærstan hluta tekna af olíulindum sínum í formi skatts sem er hlutfall af söluverði olí- unnar. Við fyrstu sýn virðist þessi staðreynd ef til vill illskiljan- leg. Skattur sem er hlutfall af söluverði olíunnar hefur augljós skekkjandi áhrif á rekstur olíu- fyrirtækja. Á einhverjum tíma- punkti verður ekki lengur hag- kvæmt fyrir fyrirtækið að pumpa upp olíunni þar sem tekjur eftir skatta ná ekki að dekka kostnað þess þó svo að tekjur fyrir skatta séu meiri en kostnaður þess. Á þessum tímapunkti hættir fyr- irtækið að pumpa olíu þó svo að það sé þjóðhagslega hagkvæmt að halda áfram að pumpa. Við fyrstu sýn virðist því sem þessi ríki gætu aukið tekjur sínar af olíunni með því að selja varanleg- an eignarrétt í stað þess að leggja á auðlindaskatta. Skortur á trúverðugleika Þegar við hins vegar veltum fyrir okkur hvaða ríki það eru sem búa yfir olíu í heiminum skýrist af hverju það myndi ekki ganga í flestum tilfellum að selja var- anlegan eignarrétt. Tökum til dæmis Nígeríu. Segjum að Níger- ía tilkynnti um sölu á varanlegum eignarrétti yfir ákveðinni olíu- lind. Myndu stóru olíufyrirtæk- in í heiminum bjóða sem nemur væntu verðmæti olíulindarinn- ar? Alveg örugglega ekki. Þau myndu klárlega draga í efa trú- verðugleika loforðs Nígeríu- stjórnar um varanlegan eignar- rétt. Þau myndu meta líkurnar á því að Nígeríustjórn gengi á bak orða sinna og setti síðar meir sér- staka skatta á tekjur af olíulind- inni eða þjóðnýtti hana með öllu. Þessi áhætta myndi gera það að verkum að olíufyrirtækin myndu bjóða mun lægra verð en vænt verðmæti olíulindarinnar. Ef Nígeríustjórn er skynsöm þá gerir hún sér grein fyrir þessu og reyn- ir ekki að selja varanlegan eign- arrétt en gerir þess í stað annars konar samning við olíufyrirtæk- in sem meiri líkur eru á að hún standi við; samning sem felur í sér greiðslur yfir allan samningstím- ann og greiðslur sem taka mið af arðsemi olíuvinnslunnar á hverj- um tíma. En hvað með Noreg? Slíkur skortur á trúverðugleika er landlægur þegar fátækari lönd heims svo sem Nígería, Bólivía og Venesúela eiga í hlut. En hvað með Noreg? Ef eitthvert ríki í heimin- um er til sem getur staðið við lof- orð um varanlegan eignarrétt þá hlýtur það að vera Noregur. Ég hef spurt nokkra af fremstu hagfræðingum Noregs hvernig standi á því að Noregsstjórn skuli ekki selja varanlegan eignarrétt yfir olíulindum sínum í stað þess að leggja himinháa skatta á tekj- ur af olíuframleiðslu. Þeir segja iðulega að ástæðan sé sú sama og í Nígeríu. Ef í ljós kæmi nokkr- um árum eftir söluna að olíulind- in væri tíu sinnum stærri en búist var við eða að olíuverð tífaldaðist þannig að hagnaður fyrirtækisins sem keypti olíulindina væri gríð- arlegur myndi pólitískur þrýst- ingur á það að skattleggja „ofur- hagnað“ í olíuframleiðslu verða óbærilegur. Bæði olíufyrirtækin og Noregsstjórn gera sér grein fyrir þessu og reyna því ekki að fara þessa leið. Sömu lögmál gilda um Ísland Það er einfeldni að halda því fram að pólitískur þrýstingur um skatt- lagningu „ofurhagnaðs“ myndi ekki vera til staðar á Íslandi í framtíðinni ef stjórnvöld reyndu að úthluta varanlegum eignarrétti á aflahlutdeildum eða öðrum nátt- úrauðlindum (hvort sem þær auð- lindir væru gefnar eða seldar) og lofa síðan handhöfum að þeir muni fá að halda öllum hagnaði umfram venjulega fyrirtækjaskatta. Af þessum sökum er vænleg- asta leiðin hvað hagkvæmni varð- ar að úthluta þessum auðlindum þannig að gjaldið sem tekið er af afnotum þeirra hækki og lækki sjálfkrafa í takt við verðmæti auðlindanna. Fyrning aflaheim- ilda og endurúthlutun til 20 ára og/eða auðlindagjald hafa þennan mikilvæga eiginleika. Varanlegur eignarréttur yfir auðlindum Auðlindamál Jón Steinsson lektor við Columbia- háskóla Við sem stóðum fyrir átakinu Akureyri í öndvegi töldum miklu skipta að heildarbragur yrði á frekari uppbyggingu í miðbæn- um og samræmis gætt þannig að hann myndaði vistvæna heild frá Samkomuhúsinu og norður fyrir íþróttavöllinn. Með þessu yrði vikið frá því fyrirkomulagi sem hafði ríkt og oft líkt við bútasaum og felst í því að drita niður ósam- stæðum byggingum hér og þar – allt eftir hagsmunum einstakra verktaka, einstaklinga eða fyrir- tækja. Það er hinsvegar á könnu og á ábyrgð bæjaryfirvalda að gæta heildarsýnar og tryggja að ákvarð- anir um byggingar á tilteknum stöðum og aðrar framkvæmdir falli vel að fyrirfram ákveðinni stefnu eins og þeirri sem hið fjöl- menna íbúaþing á Akureyri árið 2004 óskaði eftir: Að miðbærinn yrði skjólsæll og bjartur, hús ekki hærri en þau sem fyrir væru og íbúðum fjölgað þar svo úr yrði líflegur vettvangur atvinnu og mannlífs. Þannig voru mótaðar meginlínur sem íbúarnir óskuðu að lagðar væru til grundvallar í nýju heildarskipulagi miðbæjar- ins. Í arkitektasamkeppni og vand- aðri vinnu sérstaks starfshóps sem fram fór í kjölfarið var tekið tillit til þessara óska. Nú liggur fyrir til afgreiðslu í bæjarstjórn nýtt deiliskipulag miðbæjarins sem byggir á þess- ari sýn. En nú virðist eins og ný bæjarstjórn hafi vikið af þessari leið og leitt bútasaumsaðferðina aftur til öndvegis með tilheyrandi hrossakaupum. Bensínstöðvum skal fjölgað! Á síðasta bæjarstjórnarfundi var samþykkt að auglýsa nýtt deili- skipulag á reitnum fyrir norðan og neðan Samkomuhúsið. Samkvæmt því er gert ráð fyrir að þar verði sett á laggirnar enn ein bensínstöð- in. Þó eru nægar slíkar í bænum og raunar fleiri á hvern íbúa en fyrir finnast á byggðu bóli. Auk þessar- ar bensínstöðvar er gert ráð fyrir veitingastað á blettinum í amerísk- um stíl með tilheyrandi auglýsinga- mennsku, bílaumferð og skarkala. Dæmigerð bútalausn sem að auki er ekki í neinu samræmi við niður- stöðu íbúaþings að haga skipulag- inu á þann veg að miðbærinn laði til sín fleiri íbúa. Lögð var áhersla á að slík byggð yrði í útjaðri mið- bæjarins en veitingarekstur og önnur atvinnustarfsemi nær miðj- unni eða þá annarsstaðar í bæjar- landinu. Þar eru margir og góðir valkostir. En nú þarf nauðsynlega að fjölga bensínstöðvum því auk þessarar er verið að gefa leyfi fyrir enn annarri á Glerártorgi enda heilir 100 metrar í þá næstu! Um það virðist bæjarstjórnin sammála að sé hið mesta nauðsynjamál! Viljum við þetta? Bútasaumur í skipulagi borga og bæja er kjörland þeirra sem vilja fara sínu fram án heildarsýnar. Hefst þá hið dapurlega böggla- uppboð á lóðum og lendum þar sem auðna ræður för en skipulegri hugsun er ýtt til hliðar. Í mörgum bæjarfélögum hefur verið kvart- að undan slíkum vinnubrögðum og því haldið fram að aðrir en stjórnir þeirra ráði í raun meiru um skipu- lagið enda þótt bæjarstjórnir beri ábyrgð á þeim málaflokki. Þá ríður einmitt á að hafa heildarsýn og mótaða stefnu. Það ágæta fólk sem nú hefur tekið við stjórn Akureyr- ar er ekki þekkt fyrir að hafa hana en frekar talað almennt um einstök málefni, forðast að setja fram mót- aðar skoðanir og enn síður hvern- ig þau hyggjast fylgja þeim eftir. Þau verða því ekki hönkuð á að hafa ekki gert það sem þau vildu stefna að þar sem engin var stefn- an. Þess vegna er ástæða til að ótt- ast að í hönd fari blómatími þeirra sem unna ómarkvissum vinnu- brögðum við frekari uppbyggingu bæjarins. Fyrsta verk nýrrar bæj- arstjórnar bendir því miður til að bútasaumsaðferðin hafi verið leidd til öndvegis og hún síðan skreytt með bensínstöðvum hvar sem unnt er að pota þeim niður í bæjarland- inu. Það er að mínum dómi ógæfu- leg stefna og til marks um að til valda sé komið fólk sem hefur ekki tileinkað sér heildarsýn um mála- flokka eins og skipulagsmál og sé því berskjaldað gagnvart ásókn sérhagsmunahópa. Bútasaumur og bensínstöðvar Skipulagsmál Ragnar Sverrisson kaupmaður Við erum hér alla virka daga frá 9.00-16.00. Einnig getur þú hringt eða sent okkur tölvupóst og við finnum hentugan tíma handa þér. Okkur er ávallt sönn ánægja að taka vel á móti þér. Með bestu kveðju, Guðrún Gísladóttir, útibússtjóri í Kópavogi kopavogur@byr.is VIÐ ERUM HÉR FYRIR ÞIG BYR | Sími 575 4000 | www.byr.is Við erum 12 manna samhentur hópur hér í Kópavogi sem starfar með það að markmiði að veita þér persónulega þjónustu og faglega ráðgjöf. D Y N A M O R E Y K JA V ÍK KÓPAVOGUR Útibúið er hluti af öflugri 200 starfsmanna liðsheild sem kappkostar að veita viðskiptavinum Byrs góða þjónustu.

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.