Fréttablaðið - 27.07.2010, Blaðsíða 15
Sölufulltrúar Henný Árnadóttir henny@365.is 512 5427 Jóna María Hafsteinsdóttir jmh@365.is 512 5473 Þórdís Hermannsdóttir thordish@365.is 512 5447
HEILSA OG LÍFSHÆTTIR eru til umfjöllunar
á vefsíðunni heilsubankinn.is, sem er meðal annars
ætlað að stuðla að bættu líferni og betri heilsu.
„Ég vildi bara sjá og upplifa
ósnortna íslenska náttúru og
ögra sjálfum mér svolítið,“ segir
Þórólfur Jarl Þórólfsson, starfs-
maður hjá Vodafone, um tildrög
þess að hann ákvað að ganga
þvert yfir landið, frá Reykjanes-
vita á Reykjanestanga að vitan-
um á Langanesfonti, frá 20. maí
til 11. júní.
Þórólfur slóst þar í för með
Frey Heiðari Guðmundssyni,
frænda sínum, og vininum
Friðriki Guðjónssyni en enginn
þeirra hafði reynslu af slíku áður.
„Nei, nei, ég hef nú takmarkað
gert af því; ekki einu sinni stigið
fæti inn á líkamsræktarstöð. Það
er helst að maður fari í veiði eða
fótbolta með strákunum,“ segir
Þórólfur og kveður margt hafa
komið á óvart. „Náttúran er ótrú-
leg og sums staðar svo ósnortin
að engu líkara en maður væri
sá fyrsti sem færi þar um. Sér-
staklega þótti mér gaman að
koma í Vonarskarð sem er mjög
fallegt.“
Félagarnir ferðuðust létt,
höfðu meðferðis gps-staðsetn-
ingartæki, farsíma, landakort
og mat í bakpokum og urðu sér
reglulega úti um matarbirgð-
ir á leiðinni og gistu til skiptis í
tjaldi eða sæluhúsum. Ferðalagið
tók í það heila 22 daga en á þeim
nítjánda þurfti Friðrik að hætta
för vegna fótameiðslna. Frænd-
urnir komust þó báðir á leiðar-
enda og sjaldan verið hressari
að sögn Þórólfs. „Upphaflega var
þetta erfitt en kom smám saman
og undir lokin var maður í topp-
formi, búinn að missa nokkur
kíló á leiðinni. Þetta varð því að
svona hálfgerðri detox-ferð fyrir
karla,“ segir hann og hlær.
Þórólfur útilokar ekki að félag-
arnir endurtaki leikinn að ári.
„Ætli þetta verði ekki bara næst
frá Höfn og til Hornstranda. Það
er annaðhvort það eða að maður
leggur skónum alveg,“ segir hann
og glottir. roald@frettabladid.is
Detox-ferð fyrir karla
Þórólfur Jarl Þórólfsson er ekki upptekinn af hollu mataræði og hefur aldrei stigið fæti inn á líkams-
ræktarstöð. Samt lét hann sig ekki muna um að ganga þvert yfir landið á dögunum og hafði gaman af.
Þórólfur ákvað að ögra sjálfum sér með því að ganga þvert yfir landið og uppgötvaði í leiðinni einstaka náttúrufegurð.
FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON
Jóna María Hafsteinsdóttir
jmh@365.is - sími 512 5473
Henný Árnadóttir
henny@365.is - sími 512 5427
Þórdís Hermannsdóttir
thordish@365.is - sími 512 5447
5% teygja - 2 snið
Upp í mitti
Str. 36 - 56
Bæjarlind 6 - Eddufelli 2
Sími 554-7030 Sími 557-1730
www.rita.is
Stretch-buxur
fyrir verslunarmannahelgina
Útsalan í fullum gangi
1190,- og 1990,-
krónu hengi +
=
TUDOR frístundarafgeymir Exide hleðslutæki
Rafmagnað frí... ár eftir ár
Mesta úrval landsins af rafgeymum
fyrir húsbíla, hjólhýsi og fellihýsi
Patti.is
Landsins mesta úrval af sófasettum
Dugguvogi 2 / s: 557 9510 / www.patti.is
Opið : Mánudaga - Föstudaga frá 9 til 18
Láttu þér líða vel í sófa frá Patta
Tilboð gildir til 30. júli
219.9
00 krParis Hor
nsófi
2H2
Aðein
s þes
sa vik
u