Fréttablaðið - 25.10.2010, Blaðsíða 2
2 25. október 2010 MÁNUDAGUR
MENNTAMÁL Börn sem eiga erlenda
foreldra eru helmingi líklegri til
að upplifa einelti en þau sem eiga
íslenska foreldra. Þetta kemur
fram í rannsókn Þórodds Bjarna-
sonar, prófessors í félagsfræði við
Háskólann á Akureyri.
Hins vegar telja rúm 75 prósent
fagfólks í grunnskólum að börn
sem eru með íslensku sem annað
tungumál verði annaðhvort jafn-
mikið eða minna fyrir einelti en
börn sem eiga íslenska foreldra.
Einungis 7,5 prósent telja að börn
með íslensku sem annað tungumál
verði meira fyrir einelti. Fimmt-
ungur vissi ekki hvort mismun-
ur væri þar á milli. Þetta eru nið-
urstöður nýrrar rannsóknar sem
gerð var í 122 grunnskólum og ber
heitið „Nemendur með íslensku
sem annað tungumál í grunnskól-
um – upplifun fagfólks skólanna,“
og var gerð af Huldu Karen Dan-
íelsdóttur, Ara Klængi Jónssyni
og Hilmu Hólmfríði Sigurðardótt-
ur fyrir hönd Þjónustumiðstöðvar
Miðborgar og Hlíða í Reykjavík.
Helstu niðurstöður könnunarinn-
ar eru þær að almenn ánægja virð-
ist ríkja meðal stjórnenda skóla um
aðstæður barna af erlendum upp-
runa, þó að skýr þörf fyrir fræðslu
og þjálfun komi fram.
Í rannsókn Þórodds kemur fram
að 16 prósent þeirra nemenda í 10.
bekk sem eiga báða foreldra af
erlendum uppruna telji sig hafa
orðið fyrir einelti, 12 prósent þar
sem annað foreldrið er íslenskt og
um átta prósent þeirra þar sem
báðir foreldrar eru íslenskir.
Þóroddur segir að þótt börn sem
eiga erlenda foreldra séu helmingi
líklegri til að upplifa einelti en þau
íslensku, sé einelti tiltölulega fátítt
á Íslandi miðað við það sem þekk-
ist í öðrum löndum.
„Það þýðir þó ekki að það sé
minna alvarlegt,“ segir Þóroddur.
„En langflestir krakkar, hvort sem
þeir eru íslenskir eða af erlendum
uppruna, segjast ekki verða fyrir
einelti, þó svo að þeir síðarnefndu
séu helmingi líklegri til þess.“
sunna@frettabladid.is
Rannsókn Þórodds Bjarnasonar var gerð meðal allra nemenda í 6., 8. og
10. bekk á landinu. Þóroddur segir að ein möguleg ástæða fyrir skekkjunni í
könnununum tveimur sé sú að hluti af því einelti sem börnin verði fyrir eigi
sér stað utan skóla og því verði starfsfólk skólanna ekki eins vart við það.
Hann segir þó að mikill kynjamunur sé í niðurstöðunum og að auðveldara
virðist fyrir stráka en stelpur að falla inn í hópa. Einnig kemur fram í rann-
sókninni að mikill munur sé á milli skóla og mikilvægt sé að átta sig á því
að langflestir nemendur upplifa ekki einelti, hvort sem þeir eru af innlend-
um eða erlendum uppruna.
Einelti ekki staðbundið við skólann
Fagfólk skóla virðist
vanmeta eineltið
Börn erlendra foreldra eru helmingi líklegri til að upplifa einelti heldur en þau
sem eiga íslenska foreldra. Fagfólk í skólum telur báða hópa verða jafnmikið
fyrir einelti. Einelti er fátítt á Íslandi miðað við samanburðarlönd.
Á SKÓLALÓÐINNI Í rannsókn Þórodds Bjarnasonar kemur fram að 16 prósent
nemenda í 10. bekk, sem eiga báða foreldra af erlendum uppruna, telja sig hafa
orðið fyrir einelti. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON
Hilmir, ætlarðu að gefa
Stefáni einn á snúðinn?
Ég ætla að minnsta kosti ekki að
hengja hann, en hann verður tekinn
í bakaríið.
Hilmir Hjálmarsson bakari og Stefán
Gaukur Rafnsson, starfsbróðir hans,
munu eigast við í hnefaleikabardaga
um næstu helgi. Bardaginn er til styrktar
einhverfum og hjartveikum börnum.
Íslendingurinn sem lést af
slysförum í Riga, höfuðborg
Lettlands, á föstudag, hét Árni
Freyr Guðmundsson.
Hann var á ferð í Lettlandi
með vinnufélögum sínum
þegar slysið átti sér stað.
Lést í Riga
FÓLK „Ég bið íslenskar konur um að styðja erlendar
samstarfskonur sínar og hvetja þær á Kvennafrídag-
inn,“ segir Sabine Leskopf, formaður Samtaka kvenna
af erlendum uppruna.
Kvennafrídagurinn er í dag. Þá hyggjast konur
ganga út af vinnustöðum sínum klukkan 14.25 til að
minna á sameiginleg baráttumál sín. Sabine Leskopf
óttast að konur af erlendum uppruna taki ekki virk-
an þátt í viðburðinum. Á kvennafrídeginum 2005 hafi
þátttaka erlendra kvenna verið mjög lítil.
„Ástæðan var örugglega að hluta til sú að konurn-
ar vissu ekki af deginum. Tengsl þeirra við kvenna-
hreyfinguna voru lítil og upplýsingar voru ekki þýdd-
ar. Síðan held ég að þessar konur hafi einfaldlega verið
hræddar um að missa vinnunna á meðan íslenskar
konur hins vegar bara gengu út; það kom ekkert annað
til greina,“ segir Sabine.
Þá kveður Sabine jafnvel hafa verið dæmi um það
árið 2005 að atvinnurekendur hafi boðið erlendum
konum aukagreiðslur fyrir að vinna á meðan íslensk-
ar starfssystur þeirra gengu út. Hún hafi þó ekki heyrt
af slíku nú.
Sabine ráðleggur erlendum konum að leita ráða hjá
íslenskum konum á vinnustöðunum. „Íslenskar konur
með sína sögu og reynslu geta verið mikill styrkur
fyrir erlendar samstarfskonur sínar. Þetta er mál sem
snertir okkur allar og erlendar konur verða fyrir tvö-
földu misrétti, ekki síst hvað varðar launamun.“ - gar
Formaður samtaka kvenna af erlendum uppruna óttast forföll á Kvennafrídaginn:
Konur styðji útlendar starfssystur
SABINE LESKOPF Formaður Samtaka kvenna af erlendum
uppruna óttast að konur af erlendum uppruna taki ekki virkan
þátt í Kvennafrídeginum.
HAÍTÍ, AP Heilbrigðisyfirvöld á
Haítí telja að að minnsta kosti
208 manns hafi látist úr kóleru og
um 2.700 til viðbótar hafi sýkst
í Artibonite-héraðinu, norður af
höfuðborginni Port-Au-Prince.
Tala sýktra hefur hækkað
jafnt og þétt og óttast yfirvöld
að næstu fórnarlömb veirunnar
verði þau hundruð þúsunda sem
misstu heimili sín í jarðskjálft-
anum á Haítí í janúar. „Ef far-
aldurinn nær til Port-au-Prince,
þar sem börn og fjölskyldur lifa
við slæma hreinlætisaðstöðu og í
allt of þröngu rými, gæti útkom-
an orðið hræðileg,“ sagði Dr.
Estrella Serrano hjá hjálparsam-
tökunum World Vision. - fb
Kólerufaraldur á Haítí:
208 hafa látist
og 2.700 sýkst
VEIKT BARN Óttast er að kólera muni
breiðast hratt út á Haítí á næstunni.
MYND/AP
LÖGREGLA Milli sextíu og sjötíu
manns sem heimsóttu Útvarps-
húsið í tilefni af 80 ára afmæli
Ríkisútvarpsins á laugardaginn
fengu sekt upp á fimm þúsund
krónur fyrir að leggja bíl sínum
ólöglega á meðan á heimsókninni
stóð.
Á vef Ríkissútvarpsins segir
varðstjóri umferðardeildar lög-
reglunnar að um hefðbundið eft-
irlit hafi verið að ræða. Þegar
fólk leggi bíl sínum ólöglega fái
það sekt.
Alls heimsóttu tæplega sex
þúsund gestir Útvarpshúsið en
þar voru meðal annars til sýnis
gamlir munir og fengu gestir
leiðsögn um húsið. - rat
Opið hús hjá Ríkisútvarpinu:
Gestir sektaðir í
afmælisfagnaði
LÖGREGLUMÁL Talsverð ölvun
var á Suðurnesjum um helgina.
Þrír voru handteknir, grunað-
ir um líkamsárás eftir að slags-
mál brutust út í Hafnargötu
í Reykjanesbæ og gistu þeir
fangageymslur.
Einnig leysti lögreglan á Suður-
nesjum upp gleðskap þar sem
unglingar höfðu áfengi um hönd
og þurfti að hafa afskipti af
tveimur 15 ára stúlkum vegna
ölvunar. Foreldrar stúlknanna
voru látnir vita og sóttu þeir
stúlkurnar á lögreglustöðina. - rat
Unglingadrykkja og slagsmál:
Þrír grunaðir
um líkamsárás
Nokkrir gistu fangageymslur
Alls gistu átta fangageymslur
lögreglunnar í Reykjavík aðfaranótt
sunnudags. Eitthvað var um pústra
milli manna að sögn lögreglunnar en
ekki kom til alvarlega átaka.
LÖGRELGUFRÉTTIR
SLYS Lítil fisþyrla brotlenti á
Esjunni um kvöldmatarleytið í
gær. Tveir menn voru um borð í
þyrlunni og slösuðust þeir ekki
samkvæmt upplýsingum frá
Landhelgisgæslunni.
Mennirnir gengu sjálfir niður
af fjallinu. Tildrög þess að þyrl-
an brotlenti eru ekki kunn. Í gær-
kvöldi hugðist Landhelgisgæslan
fljúga yfir Esjuna til að mynda
vettvang óhappsins en aðstæður
voru erfiðar vegna myrkurs. - jhh
Tveir menn sluppu óslasaðir:
Fisþyrla brot-
lenti á Esjunni
ÚTVARPSHÚSIÐ Í EFSTALEITI Lögregl-
an sektaði tugi manna fyrir að leggja
ólöglega þegar Ríkisútvarpið var með
opið hús.
STJÓRNMÁL Aðgangsharka við
innheimtu opinberra aðila
verður tekið til umfjöllunar á
næsta fundi menntamálanefnd-
ar Alþingis eftir ákall einstæðr-
ar móður.
Ónafngreind einstæð móðir
sendi þingmönnum bréf þar sem
hún fór yfir samskipti sín við
Ríkisskattstjóra og Lánasjóð
íslenskra námsmanna (LÍN) og
sagði hún farir sínar ekki sléttar.
Hún hafi verið í námi en um leið
þurft að greiða af námslánum,
en greiðslubyrðin reyndist henni
ofviða. Segir
hú n me ð a l
annars að „ef
alþingismönn-
um er í raun
a lvara með
því að koma
til móts við
skuldsettar
fjölskyldur í
stórum vanda
þá má kannski
byrja á að líta til eigin krafna
ríkisstofnana sem eru að nauð-
beygja fólk.“
Skúli Helgason, þingmað-
ur Samfylkingar og formaður
menntamálanefndar, segir að á
fundinum verði farið yfir vinnu-
aðferðir og verklagsreglur LÍN.
„Það sem skiptir mestu máli
er að reyna að tryggja það að nú,
þegar stjórnvöld eru að reyna að
finna bestu lausnirnar á skulda-
vanda heimilanna, gangi opin-
berir aðilar fram fyrir skjöldu
og sýni þann sveigjanleika sem
nauðsynlegur er gagnvart þeim
sem eiga í skuldavanda.“
-þj
Fundað í menntamálanefnd Alþingis vegna innheimtuaðgerða opinberra aðila:
Fundað vegna meintrar hörku LÍN
SKÚLI HELGASON
SPURNING DAGSINS
Mikið úrval af frábærum tilboðum - líttu við
697 kr/kg