Fréttablaðið - 25.10.2010, Blaðsíða 13

Fréttablaðið - 25.10.2010, Blaðsíða 13
MÁNUDAGUR 25. október 2010 13 Tryggðu þér miða á www.hhi.is, í síma 8OO 6611 eða hjá næsta umboðsmanni. Vá, hvenær?! Nú, það er ekkert annað! Drögum 26. okt óber, vertu með! Kl. 16.OO á þriðjudaginn Og það er bara dregið úr seldum miðum! 1O manns fá milljón! – Lifið heil www.lyfja.is ÍS L E N S K A /S IA .I S /L Y F 5 19 69 1 0/ 10 Hjúkrunarþjónusta í Lyfju Lágmúla Veitum ýmsa sérhæfða þjónustu, m.a. ráðgjöf við val á stuðnings- og sjúkrasokkum/sokkabuxum. Einnig fyrir ófrískar konur. Þjónustan er opin virka daga frá kl. 8-17. Þú getur alltaf lesið Fréttablaðið frítt á Vísi eða fengið sendan daglegan tölvupóst með blaði dagsins. Nánari upplýsingar á: visir.is/dreifing FRÉTTABLAÐIÐ Á NETINU „Þú ert í flokki þeim“ „Svara svara: vertu vel-kominn!“ kyrjuðum við strákarnir í KFUM fullum hálsi á meðan við biðum eftir því að komast í borðtennis í næsta herbergi. Við hugsuð- um ekkert út í það sem við vorum að syngja og ekki held- ur í næsta lagi: „Þú æskuskari á Íslandsströnd / þú ert í flokki þeim / er sækir fram í sjónar- rönd/ með sigri að komast heim.“ Maður fór bara með þetta umhugsunarlaust eins og hverja aðra „meinvill“ og „frumglæði ljóssins sem gjörvöll mannkind“. Þannig var okkar kristni. Hún var umhugsunarlaus. Og nú þegar ég hugsa um þennan kveðskap loksins eftir öll þessi ár verð ég að játa að ég botna ekkert í honum. Sjónarrönd? Eða var það „sólarlönd“? „Með sigri að komast heim“? En ég man hins vegar enn þegar KFUM-frömuður kallaði á okkur úr borðtennis eitthvert kvöldið skömmu eftir ferming- una, lét okkur setjast og sagði okkur að nú gætum við ekki lengur verið kristnir umhugs- unarlaust. Nú þyrftum við að velja hvort við vildum fylgja Kristi eða fara á böll og bíó. Ég valdi heiminn. Ég hef ekki einu sinni spilað borðtennis síðan. Lifandi brunnur Mörgum árum síðar er ég staddur í rútu á Indlandi á leiðinni frá Agra þar sem við höfðum skoðað sjálft hof ást- arinnar, Taj Mahal. Skömmu áður höfðum við verið í svip- aðri skoðunarferð um Dehli og þrætt alls konar hof og til- beiðslustaði. Smám saman fór maður að skynja mikla vídd. Þetta var Jörðin og hér gekk Mannkynið um. Maður skynj- aði og sá mikla lífsbaráttu en loftið sindraði líka af andlegri orku. Hún streymdi um mann. Gott ef maður skynjaði ekki þarna lifandi brunn hins „and- lega seims“ – hina miklu upp- sprettu trúarbragðanna í heim- inum. Það var tekið að kvölda í rútunni á leiðinni frá Agra og við vorum öll í undarlegu upp- námi eftir margvíslegt áreiti á öll skynsvið. Eftir heilan dag höfðum við færst nær hvert öðru. Við fórum að tala saman á nýjan hátt. Við töluðum um trúmál: sum voru múslimar, sum kristin, hindúar, búddistar, sum eitthvað annað. Við vorum sameinuðu þjóðirnar, hvert úr sinni álfu, hvert úr sínum hug- myndaheimi. Það ríkti sterk eindrægni milli okkar eins og stundum getur vaknað í rútu á dimmu kvöldi, gagnkvæm vel- vild, kærleikur – hljóð nærvera. Og það rann upp fyrir mér að ég tilheyrði hinum kristna hluta rútunnar – hinum umhugsunarlausa kristna hluta heimsins. Það táknaði ekki að ég væri „trúaður“ eins og sagt er um fólk sem hefur sterka sannfæringu um tilvist Guðs og samband sitt við hann. Það táknaði ekki einu sinni að ég iðkaði trú mína, væri virkur trúmaður. Ég fann hins vegar að þótt ég væri löngu hættur að kalla: „Svara svara!“ var ég hluti af kristnum menning- arheimi og hann hluti af mér; gildi mín og viðmið voru þaðan komin, efi minn líka og meira að segja höfnun mín. Þegar ég er í því skapi að hafna Guði þá er það sá Guð sem ég hafna. Þegar ég skynja í stopulum leiftrum hina hljóðu nærveru er það sá Guð sem ég finn á ný. Hagnaðarerindið Árni Bergmann rithöfundur orðar vel trúarþörfina í bók sinni Glíman við Guð: „Maður- inn trúir vegna þess að hann óttast tómið, hann óttast til- gangsleysi eigin lífs […] hann óttast eigin smæð og vanmátt og einsemd. Hann óttast dauð- ann. Hann þarf liðsinni og vernd, huggun og von. Hann leitar að því grundvallartrausti á tilverunni sem er ekki háð duttlungum sögunnar …“ Við finnum vissulega mis- jafnlega sterkt til þessarar þarfar og veitum henni í mis- jafnan farveg. Hin raunveru- lega ríkistrú á Íslandi und- anfarna áratugi var ekki trú á Jesúm Krist, Föðurinn eða Móðurina eða Heilagan anda heldur var þetta hugmynda- kerfi yfirfært á Markaðinn, sem tók yfir sem hið alvitra og algóða afl í lífi okkar sem við skyldum lúta og trúa skil- yrðislaust á: hinn eiginlegi Guð. Markaðurinn var þríeinn og skiptist í Viðskiptafrelsi, Neyslu og Hagvöxt. Biskup- inn yfir Íslandi var Davíð Oddsson. Hannes Hólmsteinn Gissurarson var Vígslubiskup- inn. Útrásarvíkingarnir voru að sækja „fram í sólarlönd“ eða „sjónarrönd“ með „sigri að komast heim“. Bónusfeðg- ar voru villutrúarmennirnir en í hlutverki Skrattans voru umhverfisverndarsinnar. Í greiningardeildum bankanna og viðskiptadeildum skólanna sátu prestarnir og útbreiddu Hagnaðarerindið. Þetta er Guðinn sem brást. Og fólk er ringlað og ráðvillt og reitt eins og jafnan þegar guðir bregðast. Ég veit ekki hvað mér á að finnast um það að Þjóðkirkj- unni og Kristi skuli úthýst í leikskólum borgarinnar. Ég skil foreldra sem hafa sterka trúleysissannfæringu og vilja ekki að börnin þeirra fái kristi- lega uppfræðslu. En mér finnst erfitt að halda því fram að kristin trú hafi svipaða stöðu í þjóðlífi okkar og hver önnur aflögð hindurvitni. Guðmundur Andri Thorsson rithöfundur Í DAG Við fórum að tala saman á nýjan hátt. Við töluðum um trúmál: sum voru múslimar, sum kristin, hindú- ar, búddistar, sum eitthvað annað. Við vorum sameinuðu þjóðirnar, hvert úr sinni álfu, hvert úr sínum hugmyndaheimi.

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.