Fréttablaðið - 25.10.2010, Blaðsíða 14

Fréttablaðið - 25.10.2010, Blaðsíða 14
 25. október 2010 MÁNUDAGUR14 timamot@frettabladid.is PABLO PICASSO listmálari og myndhöggvari (1881-1973) fæddist þennan dag. „Listin er lygi sem gerir sannleikann ljósan.“ Umhyggja, Félag langveikra barna, fagnar 30 ára afmæli sínu með afmæl- isráðstefnu á Grand Hóteli klukkan 13 í dag. Meðal dagskrárliða er afhending gullmerkis Umhyggju, ávarp forseta Íslands, fyrirlestrar og tónlist barna. Auk þess verður myndband um þróun í aðbúnaði langveikra barna á Íslandi sýnt en myndbandið útbjó Elín Hirst. Myndbandið spannar söguna frá árinu 1950. André Bachmann er einn þeirra sem dvaldi sem barn á sjúkrahúsi á þeim árum, allt til sautján ára aldurs. „Ég fæddist holgóma og með skarð í vör og þurfti að fara í tugi aðgerða sem hófust um leið og ég fæddist, árið 1949. Í fyrstu var enginn lýtalæknir hérlendis og aðgerðirnar skiluðu litl- um árangri. Ég man að þegar ég var 6-9 ára beið ég alltaf spenntur eftir því að aðgerðirnar myndu hjálpa mér og breyta lífi mínu,“ segir André en afleiðingarnar af því hve lítið var hægt að gera fyrir hann voru meðal annars alvarlegt einelti. Aðgerðirnar fóru fram yfir sumar- tímann og André eyddi því öllum sumr- um inni á spítala þar sem enginn mátti heimsækja hann nema foreldrar og þá bara einu sinni í viku. Slíkt var algilt með börn sem dvöldu á sjúkrahús- um hérlendis á þeim árum sem þýddi sársaukafullan aðskilnað fyrir börnin. Þegar André eltist og ný börn komu inn á spítalann og urðu að ganga í gegnum grát og söknuð eftir foreldrum sínum var André þeim til aðstoðar og var „í því að hugga“ eins og hann segir sjálf- ur og hjálpa þeim að aðlaga sig spítal- anum. Á fullorðinsárum hefur André haldið áfram að styðja sjúka og fatl- aða í samfélaginu og hefur meðal ann- ars haldið jólaball fatlaðra í nærri 30 ár. André starfar einnig sem tónlistar- maður og gefur mikið af vinnu sinni. „Það má ekki misskilja mig samt, auðvitað var þetta erfitt en ég vissi samt að það var verið að hjálpa mér, tilgangurinn var að hjálpa mér með útlitslýtin. Ég hafði svo lágt sjálfsmat og upplifði svo mikið einelti að þegar fyrsti menntaði lýtalæknirinn kom hingað til lands úr námi, Árni Björns- son, var ég mjög hamingjusamur yfir að komast í hans hendur, níu ára gam- all. Eineltið setti svo mikið strik í reikninginn því tveir til þrír vinir á móti stórum hópi sem tók mann fyrir vegna þess að maður talaði öðruvísi og leit öðruvísi út gátu lítið gert. En ég hugsaði alltaf: sá vægir sem vitið hefur meira.“ André segist hafa lært það að vanda- málin eru til þess að leysa þau og erf- iðleikarnir til að sigra þá. Hann eins og fleiri óttast þau áhrif sem efna- hagsmálin munu hafa á svið barna- lækninga. „Það skilur enginn, nema þeir sem reyndu, hvernig þetta var hér á árum áður og við megum ekki bakka. Ef læknar fara úr landi, sem þeir hafa þegar gert, stöndum við uppi og getum ekki hjálpað þessum börn- um eins, það er sparnaður sem eng- inn skilur. Annað er líka að ráðamenn verða að vita sjálfir hvernig heilbrigð- iskerfið virkar en þeir geta ekki vitað það ef þeir fá fyrirgreiðslu í kerfinu. Ég fór í aðgerð 2002 og þurfti að ganga í gegnum mikinn frumskóg og bið eins og allir aðrir. Það er spurning hvort ráðamenn hafi upplifað sömu reynslu og þurft að bíða á sama hátt og geti því tjáð sig sannfærandi um málefn- ið.“ juliam@frettabladid.is AFMÆLISRÁÐSTEFNA FÉLAGS LANGVEIKRA BARNA: UMHYGGJA 30 ÁRA Í DAG Aðgerðirnar breyttu lífi mínu ÆSKAN Á SPÍTALA „Ég man að þegar ég var 6-9 ára beið ég alltaf spenntur eftir því að aðgerð- irnar myndu hjálpa mér og breyta lífi mínu,“ segir André Bachmann sem dvaldi langdvölum á spítölum sem barn. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA Að kvöldi þessa dags árið 1984 fundust byssur liggjandi skammt frá Útvarpshúsinu við Efstaleiti. Byssunum, sex rifflum og fjór- um haglabyssum, hafði verið stolið úr versl- uninni Vesturröst nokkrum dögum áður. Fréttir hermdu daginn eftir að ókunn rödd hefði hringt í DV og tilkynnt að byss- urnar lægju við útvarpshúsið. Starfsmenn DV hringdu í lögregluna sem fór á staðinn og fann byssurnar vafðar inn í lak. Auk byssanna fannst þónokkurt magn skota í íþróttatöskum sem lágu hjá auk „annars þýfis“ eins og Morgunblaðið greinir frá daginn eftir. Ljóst þótti að byssurnar hefðu legið hjá Útvarpshúsinu, sem þá var nýreist, í skamma stund. Veturinn á undan hafði haglabyssa verið notuð við vopnað rán í útibúi Landsbankans við Laugaveg en þeirri haglabyssu hafði verð stolið úr Vesturröst. ÞETTA GERÐIST: 25. OKTÓBER 1984 Byssur finnast við Útvarpshúsið Guðni Th. Jóhannesson, dokt- or í sagnfræði, flytur fyrir- lestur í Þjóðminjasafninu í dag sem ber yfirskriftina Hvað má? Skráð og óskráð lög um ævisagnaritun. Fyrir- lesturinn, er hluti af hádegis- fundum Sagnfræðingafélags Íslands í fyrirlestraröðinni Hvað eru lög? Guðni fjallar um ævisögur og álitsmál sem geta vaknað þegar einstaklingur segir ævisögu sína eða fær annan til að gera það fyrir sig, og ekki síður þegar einhver ákveður að segja ævisögu annars manns í óþökk hans eða aðstandenda. Fyrirlesturinn fer fram á annarri hæð safnsins og hefst klukkan 12.05 og lýkur kl. 13. Aðgangur er ókeypis og öllum opinn. - jma Hvað má í ævisagnaritun FYRIRLESTUR Í DAG Guðni Th. Jóhannesson, doktor í sagnfræði, flytur fyrirlestur um álitamál er tengjast ævisagnarit- un í dag. Út er komin b ó k i n Þ ó r – L ey nd a r - mál guðanna, hjá Veröld, en það var Frið- rik Erlingsson sem skrásetti. Þar er sagt frá Þór Óðinssyni sem þeytist um heiminn frá morgni til kvölds að sinna skyldum sínum við guði og menn, í von um að faðir hans vígi hann end- anlega inn í goð- heima. Gömlu guðirnir eru hins vegar fullir öfund- ar yfir vinsældum Þórs og reyna að losa sig við hann. Friðrik Erlings- son er einnig höf- undur að bókinni Þór í heljargreip- um, en sú saga byggist á alþjóðlegri teiknimynd sem íslenska teiknimyndafyrir- tækið CAOZ framleiðir. Átök í goðheimum Ólafur Sólimann, framkvæmda- stjóri fyrirtækisins My Secret, hefur stofnað styrktarsjóð My Secret, til aðstoðar fjölskyld- um barna með sjaldgæfa sjúk- dóma. Samhliða því var í fyrsta sinn veittur styrkur úr sjóðnum, sem er fjármagnaður með hluta af tekjum My Secret. Ragnar Emil Hafþórsson veitti honum við- töku, en Ragnar er með hrörn- unarsjúkdóminn SMA-1, sem lýsir sér í skertum vöðvastyrk og lungnastarfsemi. Þess má geta að Ólafur stefn- ir á útgáfu bóka og mun allur ágóði af þeim renna í My Secret styrktarsjóðinn. Þeir sem hafa áhuga á að leggja sitt af mörkum til sjóðsins er bent á reikning hans í Byr, reikningsnúmerið er 1135-05-762886 og kenni talan 681009-0190. - jbá Stutt við börn með sjaldgæfa sjúkdóma STYRKTARSJÓÐIR Ólafur leit í heim- sókn til Ragnars og fjölskyldu hans í Hafnarfirði til að afhenda styrkinn. Ástkær eiginmaður minn, faðir, tengda- faðir, afi og langafi, Oddur Geirsson pípulagningameistari Sléttuvegi 19 Reykjavík, lést þann 15. október. Útför hans verður frá Fríkirkjunni í Reykjavík þriðjudaginn 26. október kl. 13. Þeim sem vilja minnast hans er bent á Hjartaheill. Margrét Einarsdóttir Einar Oddsson Eva Østerby Sigríður Sesselja Oddsdóttir Erna Oddsdóttir Sigrún Oddsdóttir Vilmundur Gíslason Geir Oddsson Ragna Björg Guðbrandsdóttir afabörn og langafabörn MOSAIK Merkisatburðir 1914 Verkakvennafélagið Framsókn í Rekjavík er stofnað og er þar með fyrsta verkakvennafélagið. Kvenréttindafélag Íslands er meðal þeirra sem standa að stofnuninni. 1947 Kvikmyndasýningar hefjast í Austurbæjarbíói. Nafni bíós- ins er síðar breytt í Bíóborgina. 1962 Rithöfundurinn John Steinbeck hlýtur bókmenntaverð- laun Nóbels. 1983 Bandaríkjamenn hernema Grenada. 1994 Andrew Wiles sendir frá sér tvær stærðfræðilegar ritgerðir, sem endanlega sönnuðu síðustu reglu Fermats. 2001 Microsoft gefur út stýrikerfið Windows XP.

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.