Fréttablaðið - 25.10.2010, Blaðsíða 8

Fréttablaðið - 25.10.2010, Blaðsíða 8
 25. október 2010 MÁNUDAGUR Hádegisfundur Evrópuvaktar Samfylkingarinnar á Kaffi Sólon þriðjudaginn 26. október kl. 12-13 Frummælendur Kristján Guy Burgess, aðstoðarmaður utanríkisráðherra Hilmar Veigar Pétursson, forstjóri CCP Allir velkomnir Samfylkingin xs.is Evra eða króna? Hafðu samband Fræðsla fyrir þig Selfoss – 27. okt. Verðtrygging og sparnaður Hótel Selfoss kl. 17:30 Fyrirlesari Breki Karlsson Akureyri – 28. okt. Verðtrygging og sparnaður Hótel KEA kl. 17:30 Fyrirlesari Breki Karlsson Skráðu þig á arionbanki.is. Allir velkomnir - Ókeypis aðgangur. ERTU MEÐ VIÐKVÆMA HÚÐ? Finnur þú fyrir þurrki í leggöngum, kláða, sveppasýkingu eða færðu sár við notkun dömubinda? Prófaðu þá Natracare lífrænar hreinlætisvörur, án klórs, ilm- og plastefna. www.natracare.is LÍFRÆNAR HREINLÆTISVÖRUR Nàttúruleg vellíðan Þú getur alltaf lesið Fréttablaðið frítt á Vísi eða fengið sendan daglegan tölvupóst með blaði dagsins. Nánari upplýsingar á: visir.is/dreifing FRÉTTABLAÐIÐ Á NETINU FRÉTTASKÝRING Hvaðan á hagvöxturinn að koma? Hagvöxtur hér á landi þarf nær örugglega að vera sprottinn af auk- inni framleiðslu skiptanlegra gæða, en svo nefnist á máli hagfræðinn- ar varningur og þjónusta sem létti- lega má flytja á milli landa. Þetta kemur fram í skýrslu sendinefnd- ar Alþjóðagjaldeyrissjóðsins (AGS) í tengslum við þriðju endurskoðun efnahagsáætlunar Íslands. Í skýrslunni er dreginn fram ákveðinn vandi við að auka hag- vöxt hér á landi. Skuldir þjóðar- innar og skorðurnar sem þær setja eftirspurn innanlands bendi til þess að umframgeta í framleiðslu óskiptanlegra gæða (vörur og þjón- usta sem aðeins miðast við innan- landsmarkað) svo sem í byggingar- iðnaði verði ekki nýtt í bráð. Fram kemur að þótt fall krón- unnar hafi aukið samkeppnishæfni útflutningsgeirans og dregið úr framleiðslukostnaði þá sé fram- leiðslugeta útflutningsgeira nærri hámarki. Það bendi til þarfarinnar fyrir nýja fjárfestingu, en þrengt sé að henni vegna fábreytni í fram- leiðslu. Sjávarútvegur og orkugeiri sé aðgreindur frá öðrum iðnaði og það bendi til þess að kostnaður við nýfjárfestingu við uppbyggingu á öðrum sviðum verði mikill. Nýfjár- festing sé þó ein uppspretta vaxt- ar þegar þjóðir séu að ná sér upp úr kreppu. Bent er á að ekki sé svo einfalt að auka framleiðsluna. Fiskistofn- ar séu takmörkuð auðlind og lang- an tíma taki að koma af stað orku- frekum verkefnum. „Brýn mál voru því að draga úr kostnaði við fjárfestingu á Íslandi og stytta tím- ann sem það tekur,“ segir í skýrslu sendinefndarinnar. Stjórnvöld eru sögð meðvituð um þörfina til að ýta undir fjárfest- ingu í útflutningsgeira og skoða með AGS leiðir til að gera það. Efst er þar á blaði fullt afnám gjaldeyr- ishafta og lok opinberra fjárhags- aðgerða sem aflétta myndu óvissu um regluverk viðskipta- og skatta- umhverfis landsins. Þar á eftir kemur endurreisn fjármálageir- ans og úrlausn mála skuldugra fyr- irtækja, sem myndi hjálpa til við að losa um fjárhagshömlur sem að öðrum kosti myndu draga úr nýfjárfestingu. Þriðja áhersluatriðið er svo að tryggja norrænt velferðarkerfi landsins, en með því yrði dregið úr landflótta – en með því að halda mannauðnum yrði dregið úr kostn- aði við nýsköpun. Sendinefndin og stjórnvöld sjá þó bæði blikur á lofti hvað fjár- festingu varðar, að hluta til vegna hiks þegar kemur að erlendri fjár- festingu í viðkvæmum geirum, svo sem í orkuiðnaði, segir í skýrslu sendinefndarinnar. olikr@frettabladid.is HUMARTROLLIÐ LAGFÆRT Hagvöxtur og ný störf spretta tæpast upp úr þeim geirum sem oft er horft til, sjávarútvegi og orku- geira, að því er fram kemur í skrifum Alþjóðagjaldeyrissjóðsins. Efla þarf fjárfestingu í öðrum geirum. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA Vexti settar skorður í sjávarútvegi og orku Leiðin til aukins hagvaxtar hér á landi er í gegn um aukna fjárfestingu. Veiðar er ekki hægt að auka til að búa til hagvöxt og orkufrek verkefni eru tímafrek. Ryðja þarf gjaldeyrishöftunum úr vegi. Tvö skilyrði afnáms af þremur uppfyllt. Tvö af þremur skilyrðum uppfyllt Már Guðmundsson seðlabankastjóri fór yfir stöðuna í íslensku efnahagslífi, nú tveimur árum eftir hrun, á fundi Íslensk-ameríska viðskiptaráðsins í New York í Bandaríkjunum 19. þessa mánaðar. Í máli hans kom fram að með þriðju endurskoðun efnahags- áætlunar landsins hjá AGS í síðasta mánuði hafi verið uppfyllt tvö af þeim þremur skilyrðum þess að aflétta mætti hér gjaldeyrishömlum. Stöðugleika hafi verið náð í efnahagslífinu og trausti á að ríkið fái staðið undir skuldum sínum, auk þess sem gjaldeyrisforði landsins sé af viðunandi stærð. Þá sé bara eftir að tryggja heilbrigði fjármálakerfisins. „Líkur eru á að þriðja skilyrðinu verði fullnægt fyrir lok þessa árs,“ sagði hann og kvað þá þann vanda einan eftir að draga eins og hægt væri úr hættunni á tímabundnu gengisfalli krónunnar og óstöðugleika á fjármála- markaði við afnám hafta, því á riði að aflétta þeim fyrr en síðar. MÁR GUÐMUNDSSON SAMKEPPNISMÁL Samkeppniseftirlit- ið hefur samþykkt yfirtöku Lands- bankans og Límtré Vírnets ehf. en setur samrunanum ströng skil- yrði og krefst þess að stjórn bank- ans feli óháðum eftirlitsmanni að tryggja að farið sé í einu og öllu eftir skilyrðunum. Samkvæmt ákvörðun Samkeppn- iseftirlitsins verður Landsbankinn að reka fyrirtækið óháð bankanum til að tryggja að það starfi áfram sem sjálfstæður aðili á samkeppn- ismarkaði. Þá verður bankinn að selja fyrirtækið í opnu söluferli fyrir ákveðinn tímafrest. Frestur- inn er ekki gefinn upp í ákvörðun eftirlitsins. Í ákvörðun Samkeppniseftirlits- ins segir að óheimilt sé að hlutast til um viðskipti milli Límtrés Vír- nets og tengdra fyrirtækja. Þannig er lagt blátt bann við því að bank- inn beiti sér fyrir því að tengd fyrirtæki eigi viðskipti við Lím- tré Vírnet eða að það beini sínum viðskiptum til annarra viðskipta- vina bankans. Límtré Vírnet rekur verskmiðju sem framleiðir nagla, bárujárn, límtré og fleira. Þá rekur fyrirtækið blikk- og járnsmiðju og flytur inn byggingavörur. - bj Samkeppniseftirlitið samþykkir samruna Landsbankans og Límtré Vírnets ehf.: Setur samruna ströng skilyrði NAGLAR Límtré Vírnet framleiðir meðal annars nagla, bárujárn, límtré og fleira.

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.