Fréttablaðið - 25.10.2010, Blaðsíða 46

Fréttablaðið - 25.10.2010, Blaðsíða 46
26 25. október 2010 MÁNUDAGURSJÓNVARPSÞÁTTURINN „Ég horfi aðallega á America‘s Next Top Model, Project Runway og þessa týpísku stelpuþætti eins og Gossip Girl, Desperate Housewives og Glee.“ Stella Björt Bergmann Gunnarsdóttir tískubloggari. „Ég er mikill aðdáandi Bjartmars og tel okkur eiga meira sameiginlegt en marga grunar,“ segir Erpur Eyvindarson rappari en hann og tónlistarmaðurinn Bjartmar Guðlaugsson ætla að leiða saman hesta sína næstkomandi þriðjudag og halda tónleika á Café Ros- enberg. „Ég tel okkur Bjartmar báða vera menn orðsins, þó að við séum með mismunandi undirspil. Ekki hræddir við að segja okkar skoðanir, sem eru kannski sterkari en hjá fólki flestu,“ segir Erpur en hann hefur löngum verið í svokölluðum Bjartmarsklúbbi með ekki minni mönnum en Helga Seljan, Andra Frey Viðarssyni og flestum meðlimum Mínussveitarinnar. „Við erum miklir aðdáendur Bjartmars og telj- um hann vera mann fólksins á tímum þegar allt er til sölu. Hann tók ekki þátt í þessu góðærishjóli og beið þangað til öllu því linnti fyrir austan,“ segir Erpur og fer ekki leynt með aðdáun sína á tónlist- armanninum góðkunna. Sú aðdáun er gagnkvæm ef marka má Bjartmar, sem segir Erp vera greindan dreng og góðan vin. „Við erum mjög líkir og okkur finnst báðum gaman að glíma við orð. Svo skiljum við hvor annan vel,“ segir Bjartmar en hann lofar góðu kvöldi á þriðjudaginn vegna þess að þeir eigi eftir að skemmta sér svo vel saman á sviðinu. Erpur segir þá félagana vera að æfa saman atriði en vill ekki gefa upp nánari upplýsingar um það. „Það kemur í ljós, ég hvet bara alla til að mæta. Bjartmar ætlar að mæta með kertaljós og reykelsi og ég kem með derhúfuna. Þetta verður notaleg stund.“ - áp Menn orðsins saman á svið „Fólk var farið að tala um að ég væri orðinn svo bangsalegur. Ég er að reyna að eyðileggja þessa bangsaímynd,“ segir popparinn Frið- rik Dór, sem er í stífri einkaþjálfun um þessar mundir. Fyrsta sólóplatan hans, Allt sem þú átt, kemur út á fimmtudag- inn og Friðrik Dór vill líta sem allra best út þegar hann kynnir hana. Einka- þjálfunin hófst fyrir um mánuði hjá frjálsíþróttakonunni fyrrver- andi, Silju Úlfarsdóttur, og á þeim tíma hefur Friðrik misst heil sex kíló. „Ég þekki hana frá fornu fari þegar ég var í fótboltanum,“ segir hann um Silju. „Þetta hefur gengið bara mjög vel. Það hafa verið nokkrir erfiðir hjallar að klífa en ég hef komist yfir þetta að lokum. Þegar maður ætlar að fara sem víðast með sjálfan sig verður maður að líta vel út.“ Leiðir Friðriks og Silju lágu saman á skemmti- staðnum Vegamótum: „Þá sagði Silja við mig að enginn vildi hlusta á feita poppstjörnu. Þar með hófst þetta,“ segir hann og hlær. Æfingarnar snúast mikið um ólympískar lyftingar og aðaláhersl- an er að ná upp góðri brennslu. Róðrartæki, hefðbundnar lyfting- ar og hlaup einu sinni í viku eru einnig hluti af prógramminu. Að sjálfsögðu þarf mataræðið líka að vera í lagi og Friðrik pass- ar vel upp á það sem hann lætur ofan í sig. „Nú er það ekkert nema hrökkkex og prótínhristingur. Helgarnar geta verið erfiðar. Ef maður hefur farið villt í laugar- dagskvöldin geta sunnudagarnir orðið erfiðir. En maður reynir að standa sig og fara eftir þeim regl- um sem hún setur. Maður má ekki falla í sömu gryfjuna aftur því bangsaímyndin er ekki það sem maður vill.“ Popparinn efnilegi er að vonum spenntur fyrir nýju plötunni, sem hann vann með upptökuteyminu Redd Lights. „Ég er mjög ánægð- ur með útkomuna. Hún tók mikl- um framförum á síðustu metrun- um þessi plata og varð betri en ég átti von á. Ég er virkilega ánægður með hana.“ freyr@frettabladid.is FRIÐRIK DÓR: Í STÍFRI EINKAÞJÁLFUN FYRIR ÚTGÁFU FYRSTU PLÖTUNNAR Sex kíló fokin á mánuði GAGNKVÆM VIRÐING Erpur Eyvindarson og Bjartmar Guð- laugsson eru góðir vinir en koma í fyrsta skipti saman fram á tónleikum næstkomandi þriðjudag. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON TEKUR Á ÞVÍ Friðrik Dór tekur vel á því í róðrartækinu. Hann hefur verið í stífri einkaþjálfun undanfarinn mánuð og misst heil sex kíló. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM KEYPTU ÞÆTTINA Í FORSÖLU Matreiðsluþættir Völla Snæs um íslenskt hráefni á ensku hafa verið seldir til Ungverjalands, Póllands og Nýja-Sjálands. Aðilar frá Banda- ríkjunum, Frakklandi og Bretlandi bíða í startholunum. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON „Það er búið að forselja þættina til Nýja-Sjálands, Spánar, Ungverja- lands og Póllands, bara út á stikl- una sem við gerðum. Nú bíða aðil- ar í Bandaríkjunum, Frakklandi og Bretlandi eftir að sjá alla þáttaröð- ina en draumurinn er auðvitað að koma þessu yfir á BBC Lifestyle. Það er hins vegar ekki í mínum höndum,“ segir Völundur Snær Völundarson matreiðslumeistari. Dreifingarfyrirtækið TVF vinnur nú að því að dreifa þáttaröð hans um íslenskt hráefni út um allan heim. Þættirnir eru unnir upp úr bók- inni Delicious Iceland sem Völli gerði fyrir nokkru ásamt þeim Hreini Hreinssyni ljósmyndara og Hauki Ágústssyni. Sú bók vakti feykilega athygli og fékk meðal annars virt verðlaun á matreiðslu- bókahátíð í Kína. Eins og Frétta- blaðið greindi frá í fyrra fékk Völli til liðs við sig leikstjórann Dominic Cyriax, sem hefur leikstýrt mat- arþáttum Nigellu, til að gera með sér prufuþátt. „En svo höfum við Gunnar Konráðsson leikstjóri verið í þessu tveir í heilt ár.“ Tíminn hefur ekki alveg verið á bandi Völla því hann eignaðist sitt annað barn með eiginkonu sinni, Þóru Sigurðardóttur, á þessu ári. Og hún gaf líka út Foreldrahand- bókina fyrir skemmstu. „Þetta hefur verið ansi brjálað en nú er ég á leið til Bahamaeyja yfir vetr- artímann að sinna veitingastaðn- um.“ Ekki er hægt að sleppa Völla án þess að spyrja hvort hann syngi ekki reglulega Bahamalag Ingós og Veðurguðanna: „Nei, en fólk hefur alveg ótrúlega mikla þörf fyrir að syngja þetta lag fyrir mig.“ - fgg Matreiðsluþættir Völla að slá í gegn ÚTIDÚR Hljómveitin Útidúr spilaði í Tjarnarbíói á Airwaves-tón- listarhátíðinni. FRÉTTABLAÐIÐ/ARNÞÓR „Við fórum í viðtöl hjá Frakka og einhverj- um Ameríkana sem eru bloggarar,“ segir Kristinn Roach Gunnarsson, píanóleikari Útidúrs. Þessi efnilega poppsveit spilaði í Tjarnarbíói á Airwaves-hátíðinni fyrir skömmu og vakti þar athygli erlendra blaðamanna. „Þetta var mjög gaman. Þetta er mjög flottur staður og við fengum fín viðbrögð.“ Meðlimir Útidúrs eru tólf og eru á aldrin- um 16 til 24 ára, allir af höfuðborgarsvæð- inu. Sveitin hefur verið starfandi í eitt ár og var að gefa út sína fyrstu plötu, sem nefn- ist The Mess We’ve Made. „Ég og Gunnar [Örn Egilsson] söngvari vorum í Kvennó saman og vorum í mörgum hljómsveitum þar. Þar kynntumst við Rakel [Mjöll Leifs- dóttur] og svo bættist smám saman í hóp- inn,“ segir Kristinn. Hljómsveitin gefur plötuna út sjálf en Record Records sér um dreifingu. Mikil vinna var lögð í plötuna og ber fagmannlega unnið umslagið vott um það. „Við þurfum að selja ansi mikið til að komast upp í núllið en vonandi gengur það vel.“ Hönnuður umslagsins var söngvarinn Gunnar Örn, sem stundar nám í arkitektúr í Listaháskóla Íslands. „Þetta er eitt af áhugamálum hans,“ segir Kristinn. Útidúr ætlar að fylgja plötunni eftir með útgáfutónleikum í Iðnó 17. nóvember. Sveit- in stefnir á að fara til útlanda næsta sumar en ekkert er öruggt í þeim efnum. „Það er dýrt vesen að flytja svona stóra hljómsveit út.“ - fb Fjölmennur Útidúr vekur athygli Nú er það ekkert nema hrökkkex og prótínhrist- ingur. FRIÐRIK DÓR POPPARI HARMAGEDDON ALLA VIRKA DAGA KL. 15 – 17:30

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.