Fréttablaðið - 25.10.2010, Blaðsíða 13
MÁNUDAGUR 25. október 2010 13
Tryggðu þér miða á www.hhi.is, í síma 8OO 6611 eða hjá næsta umboðsmanni.
Vá, hvenær?!
Nú, það er
ekkert annað!
Drögum
26. okt
óber,
vertu
með!
Kl. 16.OO
á þriðjudaginn
Og það er bara
dregið úr seldum
miðum!
1O manns
fá milljón!
– Lifið heil
www.lyfja.is
ÍS
L
E
N
S
K
A
/S
IA
.I
S
/L
Y
F
5
19
69
1
0/
10
Hjúkrunarþjónusta
í Lyfju Lágmúla
Veitum ýmsa sérhæfða þjónustu,
m.a. ráðgjöf við val á stuðnings-
og sjúkrasokkum/sokkabuxum.
Einnig fyrir ófrískar konur.
Þjónustan er opin virka daga frá kl. 8-17.
Þú getur alltaf lesið Fréttablaðið frítt á Vísi
eða fengið sendan daglegan tölvupóst
með blaði dagsins. Nánari
upplýsingar á: visir.is/dreifing
FRÉTTABLAÐIÐ Á NETINU
„Þú ert í
flokki þeim“
„Svara svara: vertu vel-kominn!“ kyrjuðum við
strákarnir í KFUM fullum
hálsi á meðan við biðum eftir
því að komast í borðtennis í
næsta herbergi. Við hugsuð-
um ekkert út í það sem við
vorum að syngja og ekki held-
ur í næsta lagi: „Þú æskuskari
á Íslandsströnd / þú ert í flokki
þeim / er sækir fram í sjónar-
rönd/ með sigri að komast
heim.“ Maður fór bara með
þetta umhugsunarlaust eins
og hverja aðra „meinvill“
og „frumglæði ljóssins sem
gjörvöll mannkind“. Þannig
var okkar kristni. Hún var
umhugsunarlaus. Og nú þegar
ég hugsa um þennan kveðskap
loksins eftir öll þessi ár verð
ég að játa að ég botna ekkert
í honum. Sjónarrönd? Eða var
það „sólarlönd“? „Með sigri að
komast heim“?
En ég man hins vegar enn
þegar KFUM-frömuður kallaði
á okkur úr borðtennis eitthvert
kvöldið skömmu eftir ferming-
una, lét okkur setjast og sagði
okkur að nú gætum við ekki
lengur verið kristnir umhugs-
unarlaust. Nú þyrftum við að
velja hvort við vildum fylgja
Kristi eða fara á böll og bíó. Ég
valdi heiminn. Ég hef ekki einu
sinni spilað borðtennis síðan.
Lifandi brunnur
Mörgum árum síðar er ég
staddur í rútu á Indlandi á
leiðinni frá Agra þar sem við
höfðum skoðað sjálft hof ást-
arinnar, Taj Mahal. Skömmu
áður höfðum við verið í svip-
aðri skoðunarferð um Dehli
og þrætt alls konar hof og til-
beiðslustaði. Smám saman fór
maður að skynja mikla vídd.
Þetta var Jörðin og hér gekk
Mannkynið um. Maður skynj-
aði og sá mikla lífsbaráttu en
loftið sindraði líka af andlegri
orku. Hún streymdi um mann.
Gott ef maður skynjaði ekki
þarna lifandi brunn hins „and-
lega seims“ – hina miklu upp-
sprettu trúarbragðanna í heim-
inum. Það var tekið að kvölda í
rútunni á leiðinni frá Agra og
við vorum öll í undarlegu upp-
námi eftir margvíslegt áreiti á
öll skynsvið. Eftir heilan dag
höfðum við færst nær hvert
öðru. Við fórum að tala saman
á nýjan hátt. Við töluðum um
trúmál: sum voru múslimar,
sum kristin, hindúar, búddistar,
sum eitthvað annað. Við vorum
sameinuðu þjóðirnar, hvert úr
sinni álfu, hvert úr sínum hug-
myndaheimi. Það ríkti sterk
eindrægni milli okkar eins og
stundum getur vaknað í rútu á
dimmu kvöldi, gagnkvæm vel-
vild, kærleikur – hljóð nærvera.
Og það rann upp fyrir mér
að ég tilheyrði hinum kristna
hluta rútunnar – hinum
umhugsunarlausa kristna hluta
heimsins. Það táknaði ekki að
ég væri „trúaður“ eins og sagt
er um fólk sem hefur sterka
sannfæringu um tilvist Guðs
og samband sitt við hann. Það
táknaði ekki einu sinni að ég
iðkaði trú mína, væri virkur
trúmaður. Ég fann hins vegar
að þótt ég væri löngu hættur
að kalla: „Svara svara!“ var
ég hluti af kristnum menning-
arheimi og hann hluti af mér;
gildi mín og viðmið voru þaðan
komin, efi minn líka og meira
að segja höfnun mín. Þegar ég
er í því skapi að hafna Guði þá
er það sá Guð sem ég hafna.
Þegar ég skynja í stopulum
leiftrum hina hljóðu nærveru
er það sá Guð sem ég finn á ný.
Hagnaðarerindið
Árni Bergmann rithöfundur
orðar vel trúarþörfina í bók
sinni Glíman við Guð: „Maður-
inn trúir vegna þess að hann
óttast tómið, hann óttast til-
gangsleysi eigin lífs […] hann
óttast eigin smæð og vanmátt
og einsemd. Hann óttast dauð-
ann. Hann þarf liðsinni og
vernd, huggun og von. Hann
leitar að því grundvallartrausti
á tilverunni sem er ekki háð
duttlungum sögunnar …“
Við finnum vissulega mis-
jafnlega sterkt til þessarar
þarfar og veitum henni í mis-
jafnan farveg. Hin raunveru-
lega ríkistrú á Íslandi und-
anfarna áratugi var ekki trú
á Jesúm Krist, Föðurinn eða
Móðurina eða Heilagan anda
heldur var þetta hugmynda-
kerfi yfirfært á Markaðinn,
sem tók yfir sem hið alvitra
og algóða afl í lífi okkar sem
við skyldum lúta og trúa skil-
yrðislaust á: hinn eiginlegi
Guð. Markaðurinn var þríeinn
og skiptist í Viðskiptafrelsi,
Neyslu og Hagvöxt. Biskup-
inn yfir Íslandi var Davíð
Oddsson. Hannes Hólmsteinn
Gissurarson var Vígslubiskup-
inn. Útrásarvíkingarnir voru
að sækja „fram í sólarlönd“
eða „sjónarrönd“ með „sigri
að komast heim“. Bónusfeðg-
ar voru villutrúarmennirnir
en í hlutverki Skrattans voru
umhverfisverndarsinnar. Í
greiningardeildum bankanna
og viðskiptadeildum skólanna
sátu prestarnir og útbreiddu
Hagnaðarerindið.
Þetta er Guðinn sem brást.
Og fólk er ringlað og ráðvillt
og reitt eins og jafnan þegar
guðir bregðast.
Ég veit ekki hvað mér á að
finnast um það að Þjóðkirkj-
unni og Kristi skuli úthýst í
leikskólum borgarinnar. Ég
skil foreldra sem hafa sterka
trúleysissannfæringu og vilja
ekki að börnin þeirra fái kristi-
lega uppfræðslu. En mér finnst
erfitt að halda því fram að
kristin trú hafi svipaða stöðu
í þjóðlífi okkar og hver önnur
aflögð hindurvitni.
Guðmundur Andri
Thorsson
rithöfundur
Í DAG
Við fórum að tala saman á nýjan
hátt. Við töluðum um trúmál: sum
voru múslimar, sum kristin, hindú-
ar, búddistar, sum eitthvað annað.
Við vorum sameinuðu þjóðirnar, hvert úr sinni
álfu, hvert úr sínum hugmyndaheimi.