Fréttablaðið - 25.10.2010, Blaðsíða 4
4 25. október 2010 MÁNUDAGUR
VEÐURSPÁ
Alicante
Basel
Berlín
Billund
Frankfurt
Friedrichshafen
Gautaborg
Kaupmannahöfn
Las Palmas
London
Mallorca
New York
Orlando
Ósló
París
San Francisco
Stokkhólmur
HEIMURINN
Vindhraði er í m/s.
Hitastig eru í °C.
Gildistími korta er um hádegi.
22°
9°
9°
9°
9°
3°
9°
9°
23°
10°
25°
21°
32°
4°
11°
15°
5°
Á MORGUN
5-10 m/s.
MIÐVIKUDAGUR
8-13 m/s.
0
0
-3
-2
2
-2
2
-4
4
7
23
10
9
15
8
7
6
12
7
7
5
-1
3
5
6
1
2
0
3
5
7
2
VONSKUVEÐUR
um sunnan og
vestanvert landið í
dag en búist er við
stormi og mikilli
úrkomu um tíma.
Norðan og austan
til verður heldur
hægari vindur og
úrkomulítið fram á
kvöld. Það hlýnar í
veðri og má búast
við slyddu norðan
til á morgun.
Elísabet
Margeirsdóttir
veður-
fréttamaður
LANDEYJAHÖFN Dýpkun Landeyjahafnar gengur vel og
samkvæmt áætlun en ófært hefur verið um höfnina
vegna ösku og sands.
Bæði dæluskipin, Sóley og Perlan, hafa verið
að störfum í höfninni undanfarna daga en sogrör
frá dæluskipinu Perlunni hefur í tvígang brotn-
að við dýpkun hafnarinnar. Síðan á föstudag hafði
hluti rörsins setið fastur í höfninni en dæluskipið
Sóley kom til aðstoðar á fimmtudag. Í gær var búið
að dýpka í kringum rörið og fór kafari niður til að
kanna aðstæður. „Ég reikna fastlega með því að rörið
hafi náðst upp,“ sagði Þórhildur Elín Elínardóttir,
upplýsingafulltrúi Siglingastofnunar í gær.
Ekki er ljóst hvenær Herjólfur getur aftur hafið
siglingar um Landeyjahöfn en samkvæmt upplýsing-
um Siglingastofnunar er ölduspá fyrir næstu daga
ekki góð. Þegar líður á vikuna mun því verða farið
yfir verkáætlun miðað við ölduspá og þá kemur í ljós
hvernig framhaldið verður. Herjólfur siglir nú milli
Vestmannaeyja og Þorlákshafnar. - rat
Enn ríkir óvissa um það hvenær Landeyjahöfn verður opnuð:
Bæði dæluskipin að störfum í höfninni
SÓLEY Í LANDEYJAHÖFN Dæluskipið Sóley kom til Landeyja-
hafnar á fimmtudaginn. FRÉTTABLAÐIÐ/ÓSKAR
SAMFÉLAGSMÁL Björgunarsveit-
irnar á höfuðborgarsvæðinu hafa
tekið í notkun nýjan stjórnstöðv-
arbíl sem ber heitið Björninn.
Smíði bílsins tók tuttugu mán-
uði og var hún að mestu unnin
í sjálfboðavinnu. Þetta er einn
fullkomnasti stjórnstöðvarbíll
Evrópu. Í honum er nýjasta fjar-
skiptatækni sem völ er á, þar á
meðal þrettán tölvuskjáir, raf-
stöð, símstöð og tveir kílómetrar
af rafmagnsköflum. Áður en bíln-
um var breytt var hann í notkun
hjá Mjólkursamsölunni í Búðar-
dal. - fb
Björninn tekinn í notkun:
Einn flottasti
bíllinn í Evrópu
BJÖRNINN VÍGÐUR Björninn var vígður
fyrir utan Grand Hótel þar sem ráðstefn-
an Björgun fór fram um helgina.
FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM
SVÍÞJÓÐ Íbúi í Malmö í Svíþjóð
kom auga á holu eftir byssuskot í
svalahurð sinni er hann vaknaði
í gærmorgun. Grunur leikur á
um að byssumaðurinn, sem hefur
skotið ítrekað á innflytjendur í
borginni, hafi verið þar að verki.
Íbúinn vaknaði við hávaða um
nóttina en hélt að verið væri að
sprengja flugelda. Hann hélt
áfram að sofa en kom síðan
auga á holuna um morguninn og
hringdi þá í lögregluna. Þetta var
átjánda skotárásin af þessu tagi í
Malmö undanfarið ár. - fb
Enn ein skotárásin í Malmö:
Skaut úr byssu
á svalahurð
UMFERÐIN Tvær bílveltur urðu á
Ólafsfjarðarvegi á laugardag-
inn. Ekki urðu slys á fólki. Jeppi
valt við bæinn Krossa um klukk-
an fimm og var ökumaður bílsins
fluttur á slysadeild til skoðunar.
Meiðsl hans reyndust ekki alvar-
leg. Þá valt annar bíll rétt fyrir
miðnættið. Fimm voru í bílnum og
sluppu með minniháttar meiðsli.
Þriðja bílveltan varð í Öxna-
dal á föstudag, en ekki urðu slys á
fólki. Slysin má öll rekja til hálku
á vegum að sögn lögreglunnar á
Akureyri. - rat
Bílveltur á Ólafsfjarðarvegi:
Fólkið slapp
lítið slasað
EVRÓPUMÁL Steingímur J. Sigfús-
son, formaður Vinstri grænna
(VG), segir ekkert athugavert
við áskorun sem lögð var fram
á nýliðnu málefnaþingi. Þar var
flokksforystan hvött til þess að
draga til baka aðildarumsókn
Íslands að Evrópusambandinu
(ESB).
Í samtali við Fréttablaðið hafn-
ar Steingrímur því að þetta sé til
marks um viðskilnað flokksfor-
ystunnar frá grasrót flokksins.
„Þetta eru nú allt meira og minna
traustir og góðir félagar. Ég tek
þessu þannig að þau séu að halda
okkur við efnið og skora á okkur
að halda fastar á okkar stefnu og
áherslum í þessu ferli.“
Hann bætir því við að á mál-
þinginu hafi verið hreinskiptnar
umræður um utanríkismál og
mál manna að hreyfingin þyrfti
að koma sínum málstað betur á
framfæri.
VG heldur flokksráðsfund í
næsta mánuði þar sem málefni
ESB verða væntanlega tekin
upp á ný. Steingrímur kvíðir því
ekki.
„Við erum ekkert feimin við
hreinskiptin skoðanaskipti. Það
er okkar stíll og okkur hefur
gengið vel að finna sameiginleg-
an farveg fyrir okkar áherslur.“
Í kjölfar málþingsins og
áskorunarinnar lýsti
Gylfi Arnbjörns-
son, formaður
ASÍ, yfir undrun
sinni á andstöðu
VG við ESB-
aðild, enda sé
mikill samhljómur milli grund-
vallarstefnu VG og stefnu ESB,
meðal annars í umhverfismál-
um. „Evrópusambandið hefur á
alþjóðavettvangi sennilega verið
með framsæknustu tillögurn-
ar varðandi loftslagsmál og að
móta atvinnustefnu sem byggir
á grænum gildum og hafa einnig
sett umhverfismál að kjarna í
sinni stefnumótun,“ sagði Gylfi í
samtali við Fréttablaðið. „Þessi
umræða hefur mótast af ein-
hverri heift í garð aðila sem ég
myndi halda að væru að mestu
leyti sammála þeim.“
Össur Skarphéðinsson utan-
ríkisráðherra segir að andstaða
innan VG hafi ekki valdið vand-
ræðum í aðildarviðræðunum við
ESB.
„Þetta hefur vakið undrun sums
staðar, en að engu leyti truflað
viðræðurnar til þessa.“
Össur bætti því við að Stein-
grímur hafi tekið skýrt fram
að forysta flokksins hefði fullt
umboð til að halda málinu áfram
og það verður svo að koma í ljós
hvort einhver sérstök vandræði
verði tengd því að VG eða hluti
flokksins séu andsnúin ESB. Ég
á ekki von á því. Menn eru lýð-
ræðissinnar.“ thorgils@frettabladid.is
Ekki gjá milli forystu
og grasrótar innan VG
Formaður Vinstri grænna segist líta á áskorun frá hópi flokksmanna sem
hvatningu til forystunnar. Formaður ASÍ furðar sig á andstöðu VG við ESB-
aðild. Utanríkisráðherra hefur ekki áhyggjur af efasemdarröddum innan VG.
Við erum ekkert
feimin við hreinskipt-
in skoðanaskipti. Það er okkar
stíll og okkur hefur gengið
vel að finna sameiginlegan
farveg fyrir okkar áherslur.
SETINGRÍMUR J. SIGFÚSSON,
FORMAÐUR VINSTRI GRÆNNA.
STEINGRÍMUR J.
SIGFÚSSON GYLFI
ARNBJÖRNSSON
ÖSSUR
SKARPHÉÐINSSON
ÖRYGGISMÁL Skátahreyfingin
dreifir endurskinsmerkjum á
næstu dögum til allra 6 ára barna
á höfuðborgarsvæðinu og í pósti
til allra barna á landinu. Tilefn-
ið er endurskinsmerkjaherferð
Arion banka, Skátahreyfingar-
innar, Umferðarstofu og ríkislög-
reglustjóra, Láttu ljós þitt skína.
Einnig verður hægt að nálgast
merkin í útibúum Arion banka og
fengið þau send heim ef sendur
er póstur á Umferðarstofu á net-
fangið fraedsla@us.is. - sv
Endurskinsmerkjaherferð:
Öll sex ára börn
fá frí merki
ENDURSKINSMERKI Á BÖRNIN Átakið
undirstrikar mikilvægi þess að vegfar-
endur séu vel sýnilegir í umferðinni til
að forðast slysin. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN
Þingmenn styðji Helguvík
Bæjarráð Garðs segir að hver og
einn eigi að líta til ábyrgðar sinnar
um framgang álvers í Garði og skorar
á Oddnýju G. Harðardóttur, Atla
Gíslason og Margrét Tryggvadóttir,
þingmenn Suðurkjördæmis, að styðja
frumvarp Árna Johnsen um að ríkið
komi að kostnaði við uppbyggingu
hafnar í Helguvík á sambærilegan
hátt og gert hafi verið við aðrar stór-
skipahafnir á liðnum árum.
SVEITARSTJÓRNARMÁL
AUGLÝSINGADEILDIR FRÉTTABLAÐSINS – AUGLÝSINGASTJÓRI: Jón Laufdal jonl@frettabladid.is ALMENNAR SÍMI 512-5401: Hendrik Sigurðsson hendrik@frettabladid.is, Guðmundur Steinsson gudmundurs@365.is, Laila Awad laila@365.is, Örn Geirsson orn.geirsson@365.is, Sigmundur Halldórsson sigmundur@frettabladid.is
ALLT SÍMI 512-5402: Jóna María Hafsteinsdóttir jmh@365.is, Henný Árnadóttir henny@365.is, Þórdís Hermannsdóttir thordish@365.is SÉRBLÖÐ SÍMI 512-5016: Sigríður Hallgrímsdóttir sigridurh@frettabladid.is, Hlynur Þór Steingrímsson hlynurs@365.is, Bjarni Þór Sigurðsson bthor@365.is, Benedikt Freyr Jónsson benediktj@365.is
RAÐAUGLÝSINGAR /FASTEIGNIR SÍMI 512-5403: Hrannar Helgason hrannar@365.is, Viðar Ingi Pétursson vip@365.is ÞJÓNUSTUAUGLÝSINGAR SÍMI 512-5407: Sigurlaug Aðalsteinsdóttir sigurlaug@365.is, Arna Rut Kristinsdóttir arnarut@365.is, Guðný Gunnlaugsdóttir gunny@365.is
GENGIÐ 22.10.2010
GJALDMIÐLAR KAUP SALA
HEIMILD: Seðlabanki Íslands
207,3695
GENGISVÍSITALA KRÓNUNNAR
112,04 112,58
175,78 176,64
155,84 156,72
20,896 21,018
19,142 19,254
16,800 16,898
1,3802 1,3882
175,92 176,96
Bandaríkjadalur
Sterlingspund
Evra
Dönsk króna
Norsk króna
Sænsk króna
Japanskt jen
SDR