Fréttablaðið


Fréttablaðið - 25.10.2010, Qupperneq 16

Fréttablaðið - 25.10.2010, Qupperneq 16
Sýningin Handverk og hönnun hefst í Ráðhúsi Reykjavíkur, fimmtudaginn 28. október klukkan 17. Þar gefst gestum og gangandi tækifæri til að kynn- ast íslensku handverki, listiðnaði og hönnun en listamennirnir kynna sjálfir vörur sínar í Ráðhúsinu. Þetta er í fimmta sinn sem Handverk og hönnun stendur fyrir þessum við- burði. Í ár verða einn- ig Skúlaverðlaunin veitt í þriðja sinn, verðlaun um besta nýja hlutinn, og hefur verðlaunahaf- inn verið valinn úr hópi þeirra þátttakenda sem tilkynntu Handverki og hönnun um nýja vöru. Skúlaverðlaunin eru styrkt af Samtökum iðnaðarins og mun Orri Hauksson, framkvæmdastjóri samtakanna, afhenda þau klukkan 19.00. Sýningin hefur verið vel sótt undanfarin ár og segja aðstandend- ur hennar gróskuna og fjölbreytn- ina í vörum aldrei hafa verið meiri en nú en yfir 60 hönnuðir, hand- verks- og listafólk taka þátt. Hægt er að skoða kynningu á öllum þátttakendum á heimasíð- unni : www.handverkoghonnun.is Sýningunni lýkur mánudaginn 1. nóvember klukkan 19. heida@frettabladid.is Sæunn Þorsteinsdóttir www.frusa- eunn@gmail. com Steinunn Vala Sigfúsdóttir www.hrin- geftirhring.is Helena Sólbrá www.helenasolbra.is Nýir konfektkassar frá Nóa Síríusi eru að koma í verslanir þessa dagana. Kassana prýða myndir af málverkum eftir Gunnellu Ólafsdóttur. „Þeir höfðu samband við mig frá Nóa Síríusi og sögðu að í tilefni af 90 ára afmæli fyrirtækisins væru þeir að fara af stað með nýja línu af konfektkössum og hefðu áhuga á að bjóða upp á íslenska mynd- list. Þeir spurðu hvort ég væri til í samstarf og ég náttúrulega játti því,“ segir Gunnella Ólafs- dóttir myndlistarkona, en myndir af málverkum hennar prýða nýja gerð konfektkassa frá Nóa Síríusi, sem eru að koma í verslanir þessa dagana. „Það varð úr að þeir völdu fjórar myndir eftir mig, tvær með vetr- arstemningu og tvær með sum- arstemningu,“ segir Gunnella. „Myndirnar eru notaðar á tvenns konar kassa, 600 gramma og 300 gramma. Myndirnar sem þeir völdu voru þegar til staðar, sumar óseldar og aðrar í einkaeign, en ég átti til ljósmyndir af þeim sem voru notaðar fyrir prentunina.“ Gunnella er ánægð með hvernig til tókst. „Ég er ánægð, en fyrst og fremst stolt og ánægð með verk- efnið. Mér finnst heiður að hafa fengið þetta tækifæri og þetta er góð kynning á því sem ég er að gera. Fyrir utan það að mér finnst alveg frábært að stórt og virt fyr- irtæki skuli kynna íslenska mynd- list á þennan hátt. Eini gallinn á þessu er að nú veit fjölskyldan hvað verður í jólapakkanum í ár.“ Gunnella veit ekki af hverju hún varð fyrir valinu. „Kannski er það af því að myndirnar mínar eru svo- lítið þjóðlegar og litríkar og hver segir sína sögu. Myndefnið og hug- myndirnar koma víða að, bæði úr nútímanum og æsku minni. Ég set oft hugmyndir í gamalt form og umhverfi frá tímum afa og ömmu. Ég hef alltaf haft gaman af því sem er gamalt og á sér einhverja sögu,“ segir Gunnella. - fsb Jólagjafirnar eru ekki leyndarmál Vetrarstemning á konfektkössum. Gunnella Ólafsdóttir umkringd frummyndunum. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA ● Konur eru þrisvar sinnum lengur á baðherberginu en karlar. ● Manneskja fer að meðaltali 2500 sinnum á klósettið á ári. ● Á heimsvísu er talið að sjö milljónir farsíma lendi árlega í klósettinu. ● Fólk eyðir minnst þremur árum af ævi sinni á baðherberginu. ● Bandaríkjamenn eiga heimsmet í notkun klósettpappírs. ● Fólk hefur orðið uppvíst að því að sturta ýmsu í klósettið, þar með talið gullfiskum, fölskum tönnum, músum, hömstrum, tannburstum, nærbuxum, sokkum og leikföngum. ● Barn notar að meðaltali tíu þúsund bleiur þar til það lærir að fara sjálft á klósettið. ● Karlmenn eyða að meðaltali140 dögum af ævi sinni í að raka sig. ● Fjórir lítrar af vatni fara til spillis ef fólk lætur vatnið renna meðan það burstar í sér tennurnar. ● Sú tala hækkar upp í 16 lítra ef vatn er látið renna meðan menn raka sig. ● Það fyrsta sem fólk rekur augun í þegar komið er inn á baðherbergi er hversu mikið er eftir á klósettrúllunni. ● Langflestir ganga úr skugga um að til sé meiri klósettpappír í baðherbergisskápnum. Tölfræði um bað- herbergisferðir MARGT SEM VIÐ EKKI VISSUM EN GRUNAÐI KANNSKI UM NÁÐHÚSIÐ. Ólöf Erla Bjarnadóttir www. kirs.is Elísabet Jóns- dóttir og Olga Hrafnsdóttir www.volki.is Handverk í Ráðhúsinu Gróska og fjölbreytni er sögð einkenna sýninguna Handverk og hönnun sem hefst á fimmtudaginn kem- ur í Ráðhúsi Reykjavíkur. Yfir 60 hönnuðir, handverks- og listafólk kynna vörur sínar á sýningunni. Þórdís Jónsdóttir www.thor- disjonsdottir. com Létt leikfimi í Rauða kross húsinu Kl. 10:00 Vöflukaffi Kl. 14:00-15:30 Gönguhópur Kl. 13:00-14:00 Hláturjóga kl. 15:00-16:00 Listin að lifa - Art of Living - Öndunartækni og hugleiðsla sem hjálpar til við að lifa í núinu. Umsjón Lilja Steingrímsdóttir. Kl. 13:00 -14:00 Enskuhópur - Viltu æfa þig í að tala ensku? Komdu og æfðu þig í að tala ensku og fáðu leiðsögn í hvernig þú getur bjargað þér á ensku í daglegu tali. Umsjón: Ásgerður Einarsdóttir, ferðamálafræðingur. Kl. 14:00 -15:00 Gönguhópur kl. 13:00 -14:00 Vinnum saman (Býflugurnar) kl. 14:00 -16:00 Skiptifatamarkaður kl. 14:00 -16:00 Borgartúni 25 | Reykjavík | raudakrosshusid@redcross.is www.raudakrosshusid.is | Opið mánudaga til föstudaga kl. 13-16 Dagskrá vikunnar Rauðakrosshúsið Reykjavík - fyrir atvinnuleitendur Vikan 25. - 29. október Mánudagur 25. október EFT og djúpslökun - Lærðu að innleiða EFT (Emotional Freedom Techniques) í þitt daglega líf og umbreyttu heftandi viðhorfum. Þú átt skilið að njóta tilfinningalegrar gleði, góðrar heilsu og slökunar. Umsjón: Viðar Aðalsteinsson EFT sérfr. Kl. 14:00 -16:00 Þriðjudagur 26. október Miðvikudagur 27. október Fimmtudagur 28. október Tölvuaðstoð kl. 13:30-15:30 Briddsklúbbur kl. 14:00 -16:00 Indland - Matur og menning. Fjallað verður um menningu landsins og sýndar myndir. Eldaður Indverskur réttur í lokin og borðað saman. Umsjón: Hrafnhildur Gísladóttir. Kl.13:00-14:30 Hvað liggur þér á hjarta? - Spjallhópur Býflugna. Kl.13:30-15:00 Föstudagur 29. október Qi-Gong - Fáðu leiðsögn í Qi-Gong æfingum sem hjálpa fólki að afla, varðveita og dreifa orku um líkamann. Umsjón: Viðar H. Eiríksson. Kl. 12 -13 Bowen tækni - kynning á Bowentækni sem getur lagað kvilla og bætt líðan til muna. 20 mínútna einstaklings prufutími. Skráning nauðsynleg. Umsjón: Guðmann Elíasson, Bowen tæknir. Kl.13:00-15:00 Myndlist - Býr listamaður í þér? Nú er tækifærið að finna hann og þroska með aðstoð myndlistarkennara sem leiðbeinir í olíu- og vatnslitamálun, meðferð pastellita og teikningu. Umsjón: Teresa Rodrigues, mynd- og leirlistakona. Kl. 13:30 -15:30 Ljósmyndaklúbbur kl. 13:00 -14:00 Prjónahópur kl. 13:00 -15:00 Lögfræðiráðgjöf fyrir innflytjendur - Skráning æskileg. Kl. 14:00 -16:00 Saumasmiðjan Kl. 13:00-15:00 Jóga Kl. 14:30-15:30 ATH!! Breyttur tími. Áríðandi er að umgangast heita vatnið á heimilinu af varkárni, meðal annars með því að vera með hitastýrð blöndunartæki, tryggja gott eftirlit með þeim og láta renna úr þeim til að ná réttu hitastigi svo fátt eitt sé nefnt. Nánar á www.or.is

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.